Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005
Sport DV
Sænski handboltakappinn Stefan Lövgren hefur verið einn af bestu handboltamönnum heims undan-
farin ár. Hann hefur orðið vitni að þrennum kynslóðaskiptum með sænska liðinu og alltaf verið lykil-
maður í liðinu. Hann hefur verið fyrirliði liðsins undanfarin níu ár.
Stefan Lövgren hefur verið meðal yngstu leikmanna í sænska
landsliðinu. Hann hefur tilheyrt meðalaldrinum. Nú er hann
einn af gömlu mönnunum í sænska landsliðinu. Hann hefur
hins vegar alla tíð verið leiðtoginn, fyrirliðinn og sá leikmaður
sem allt stendur og fellur með.
Sænska dagblaðið Aftonbladet
ræddi við Lövgren fyrir skömmu í
tilefni af því að nú styttist í heims-
meistaramótið í Túnis og okkur hér
á DV fannst tilvalið að birta þetta
viðtal, enda Lövgren eitt af stærstu
nöfnum handboltans.
Lövgren varð fyrirliði sænska
landsliðsins þegar línumaðurinn
Per Carlén lagði skóna á hilluna eftir
Ólympíuleikana í Atlanta árið 1996.
Það var ekki sjálfgefið þá, því innan
raða sænska liðsins voru leikmenn á
borð við Magnús Wislander, Staffan
Olsson, Ola Lindgren og Magnus
Andersson. Allt voru þetta frábærir
leikmenn og sterkir persónuleikar
sem gerðu tilkall til fyrirliðastöð-
unnar. Bengt Johannsson, þáver-
andi landsliðsþjálfari, hafði alltaf
látið leikmennina sjálfa velja fyrir-
liða en þar sem hann óttaðist að at-
kvæðin myndu dreifast á milli þess-
ara fjögurra, tók hann af skarið og
valdi Lövgren sem fyrirliða. Hann
var aðeins 26 ára og var hissa á
ákvörðun Bengts.
„Ég sagði við hann að hann gæti
ekki bara ákveðið þetta. Þetta er sér-
stök staða og mér fannst að lands-
liðshópurinn yrði að samþykkja mig
sem fyrirliða, því annars væri komin
upp staða sem gæti ekki gengið til
lengdar. Síðan veit ég ekki hvað
Bengt borgaði þeim mikið fyrir að
samþykkja mig,“ sagði Lövgren og
hló.
Það er þó líklegra að ekki hafi
þurft að borga leikmönnum fyrir að
samþykkja Lövgren sem fyrirliða,
því að hann er leiðtogi frá náttúr-
unnar hendi. Það er mat flestra að
Lövgren sé fæddur leiðtogi, að hann
leiði með því hvernig hann talar,
spOar og hvernig hann er. „Það
hentar mér að taka ábyrgð á hlut-
unurn," sagði Lövgren sem þrífst vel
sem leiðtogi.
„Þegar hlutirnir, sem ég hef tekið
ábyrgð á, ganga upp og leiða til
framfara, þá verð ég ánægðari
heldur en eftir sigurleik. Það skiptir
einnig máli hvernig við vinnum."
Miklar breytingar
Það hafa orðið miklar breytingar
á sænska landsliðinu á skömmum
tíma. Bengt Johannsson, sem stýrði
sænska liðinu lengi, er hættur og í
stað hans er kominn Ingemar
Linnéll. Nýir leikmenn hafa leyst
gamla af hólmi og liðið spUar öðru-
vísi en áður. Lövgren segir að miklar
umræður fari fram innan leik-
mannahópsins um leikstíl og viður-
kennir að hann eigi oft lokaorðið
þegar rætt er um kerfi og hvernig
liðið eigi að spUa. „Ingemar hefur
lagt okkur línurnar og það er síðan
okkar að þróa það áfram. Það fer
fram mikil umræða innan hópsins
og margar mismunandi skoðanir
koma fram. Þá er mikilvægt að ein-
hver gangi fram og segi: „Svona
verður þetta, punktur," sagði
Lövgren og viðurkennir að hann sé
ansi oft þessi einhver.
Ungu strákarnir egóistar
Aðspurður hvort hann sakni ekki
gömlu félaganna, Magnús Wisland-
ers, Staffan Olsson, Ola Lindgren og
Magnus Andersson, sem allir eru
hættir, sagði Lövgren að allt hafi
sinn vitjunartíma. „Leikmenn koma
og fara. Það hefði verið frábært ef
þeir hefðu verið lengur með okkur
en nú er ný lest lögð af stað," sagði
Lövgren, sem er hæstánægður með
ungu leikmennina sem eru að stíga
sín fyrstu skref með landsliðinu.
„Það er frábært að fá þessa ungu
stráka inn. Þeir hafa allt öðruvísi
hugmyndir en við hinir gömlu og
það er gaman að heyra eitthvað nýtt.
Það er komin ný hugsun í liðið og
ungu strákarnir eru miklu meiri
egóistar heldur en við vorum á
þeirra aldri. Ég segi það á jákvæðan
hátt því að þeir þora að láta í sér
heyra. Það hefur lengi verið talað
um það í Svíþjóð að okkur vantar
meiri egóista í liðið, að leikmenn séu
of miklir liðsspilarar. Nú eigum við
Zlatan [Ibrahimovic] og Ljungberg
sem eru lýsandi dæmi fyrir egóista í
jákvæðri merkingu þess orðs og það
er svo sannarlega þörf á því. Nýja
kynslóðin í handboltalandsliðinu er
af sama meiði og þessir tveir og það
getur haft mjög jákvæð áhrif á lands-
liðið þegar fram í sækir," sagði
Lövgren.
Allt snýst um Lövgren
Allt hefur snúist um Lövgren fyrir
undanfarin tvö stórmót hjá sænska
landsliðinu, bæði fyrir heimsmeist-
aramótið í Portúgal 2003 og Evrópu-
mótið í Slóveníu í fyrra. Lövgren
varð pabbi í annað sinn fyrir keppn-
ina í Portúgal og í fyrra var hann
meiddur rétt áður en haldið var til
Slóveníu. Hann var lykilmaður í lið-
inu og því var að sjálfsögðu slæmt að
„Yfirmaður er einhver
sem menn fylgja af
því að þeir verða en
leiðtoga fylgja menn
afþví að þeir vilja.
Lövgren er sá sem fær
alla með sér. Hann er
hinn fullkomni fyrir-
liði."
hann skyldi ekki geta tekið þátt í
undirbúningi liðsins af fullum krafti.
Lövgren sagði sjálfur að það hefði
verið gert allt of mikið úr mikilvægi
hans sem leikmanns og það hefði
skaðað liðið. „Allt í einu fór allt að
snúast um mig. Það skipti engu máli
þótt ég hugsaði ekki um það eða lét
það hafa áhrif á mig - þetta skaðaði
liðið verulega," sagði Lövgren rétti-
lega enda voru þessi tvö mót mikil
vonbrigði fyrir Svía. í dag lítur
dæmið öðruvísi út fyrir Lövgren
sem er að stíga upp úr meiðslum
enn eina ferðina. Þegar Ingemar
Linnéll tilkynnti hópinn fyrir
heimsmeistaramótið í Túnis var
hann spurður hvort hann liti á
Lövgren sem lykilleikmann.
Hann svaraði því til að hann
væri ekki meiri lykilmaður en
hver annar því að það væri
óþarfi að setja óraunhæfar
kröfur á Lövgren.
„Áður fyrr var ég síðasta
stykkið í púsluspilið en í dag
er það breytt. Við erum með
nýtt lið og enginn veit raun-
verulega hver er mikil-
vægur og hver ekki. Það er
mikill munur," sagði
Lövgren.
Eitt ár í einu
Þessi frábæri hand-
knattleiksmaður er að
verða 35 ára og hann
er með samning við
þýska stórliðið Kiel
til vorsins 2006.
Hann sagðist ekki
eiga von á því að
spila þar til hann
verður fertugur, líkt
og félagar hans
Staffan Olsson og
Magnus Wislander.
Hann segir að álagið á
bestu leikmönnunum í
dag sé of mikið til að þeir
geti spilað svo lengi.
„Ég held að þeirra kyn-
slóð sé sú síðasta sem spili
svo lengi þegar mið er
tekið af álaginu sem er á
leikmönnum nú til dags.
Ég held að leikmenn
muni hætta fyrr í fram-
tíðinni, jafnvel þegar þeir
eru um þrítugt, vegna
álagsins . Ég á eitt ár eftir af
samningi mínum við Kiel og er
kominn á þann aldur að ég tek
eitt ár íyrir í einu," sagði Lövgren.
Hversu lengi sem hann spilar
þá hefur hann nú þegar skipað sér
á bekk með bestu handboltamönn-
um heims frá upphafi og einnig sem
einn af stærstu persónuleikum
handboltasögunnar. Eins og Johan
Pettersson, félagi Lövgrens hjá Kiel
og sænska landsliðinu, orðaði það:
„Yfirmaður er einhver sem
menn fylgja af því að þeir verða en
leiðtoga fylgja menn af því að þeir
vilja. Lövgren er sá sem fær alla
með sér. Hann er hinn fullkomni
fyrirliði."
Svíinn
Stefan
Lövgren
Sést hér
lyfta
Evrópu-
titlinum á EM
2002 í
Sviþjóð.