Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005
Menning DV
Landar sækja fram í útlendum leikhúsum
íslenskir listamenn sækja fram á fleiri
sviðum en íLondon.þarsem Vesturport
þrauterindi fyrirskömmu með Rómeó
sinn og Júllu. í byrjun febrúar verður
frumsýndur ÍToronto Blái hnötturinn eftir
Andra Snæ Magnason. Verkið veröur
frumsýnt þann 3. febrúar i leikhúsi
Lorraine Kimsey.
Það var fyrir atbeina Maju Árdat að
verkið barst til leikhússins, en Maja er
afíslensku ættum og hefur nokkrum
sinnum komið hingað heim og
starfaöi með Leikfélagi Akureyrar fyr-
ir nokkrum árum. Þetta mun vera
fyrsta sviðsetning á leikgerð sögunn-
ará erlendum vettvangi, en hún hef-
ur þegar verið þýdd á fjölda tungu-
mála og skapað höfundinum
frægðarorð.
Þá er í æfíngum nýtt verk eftir Kristján
Ingimarsson, þann flinka trúðleikara, í
Túrbínuhöllinni i Kaupmannahöfn, en
gamli vélasalurinn er annexía frá Kon-
unglega leikhúsinu. Fyrir jólin var þar í
gangi ieiksýning, byggð á textum
Foucoult hins franska um geðveikina,
sem Egill Heiðar Þáisson samdi og svið-
setti með fræknum hópi.
Verkið kallar Kristján BlowJob og iýsir
það tilraun þarsem hversdagsleikinn,
með sínar fjórar stundir, er samþjapp-
aður i stundarfjórðung. Hefur Kristján
samið og stýrt sýningunni sem verður
frumsýnd þann 27. þessa mánaðar.
Andri Snær / vesturvegi.
Kristján Ingimarsson Virtur og vel metinn
í Danaveldi
Tónlistarsjóður er
tekinn til starfa og
í hann er safnað
fjárveitingum sem
hafa legið hér og
þar í ráðuneytinu
og bætt um betur.
Sjóðnum er ætlað
að styrkja íslenska
tónlistarmenn til
útrásar og
kynninga á er-
lendri grund, sem
og hér heima.
Það er alkunna að hentistefna
í fjárveitingum er oft til lítils
gagns. Innan menntamála-
ráðuneytis okkar hafa lengi
satnast fyrir nokkrir hefðbundnir
liðir sem ætlaðir eru að kosta tón-
listaruppákomur heima og heiman.
Raunar mun ráðuneytið hafa sett
einhverskonar fagnefnd sér til ráðu-
neytis fyrir allmörgum árum, en nú
hefur ráðherrann bætt um betur og
sett á stofn Tónlistarsjóð, skipað ráð
sér til halds og trausts um fjárveit-
ingar og er þessa dagana verið að
móta úthlutunar - og starfsreglur
sjóðsins.
Brýn þörf
Einhver kann að segja að engin
þörf sé á sjóðum af þessu tagi.
Reynslan er önnur. Fyrri ráðgjafa-
nefndin hafði yfir að ráða rúmum
tíu milljónum og var þá innan ráðu-
neytis til annað eins fjármagn sem
dreifðist víða. Nú er áætlun ráðu-
neytisins að í þennan sjóð fari
fimmtíu milljónir. Gríðarleg þörf er
á styrkjum til utanfara hljómlistar-
manna sem annars þurfa að kosta
ferðir sínar tO tónleikahalds alfarið
sjálfir, þó þeir komi fram í nafni
þjóðar og fyrirtækja á ýmisskonar
samkomum á erlendum vettvangi.
Styrkir nýtist heima og
heiman
I greinarstúf sem Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir ráðherra reit
af þessu tilefni segir: „íslenskir tón-
hannsson, ásvæðinu: „Við verðum í
þetta sinnið þar til að semja um það
efnisem við höfum gefið útog opna
ný markaðssvæði fyrir okkar vörur.
Þetta er söluferð en ekkikaupferð",
segir Lárus Jóhannesson forstjóri
sem á ekki heimangegnt. „Þetta var
skemmtilegt i fyrra. Við hittum fullt
affólki sem við höfðum átt í við-
skiptum við lengi."
íslensk tónlist er orðin útflutnings-
vara og hafa hjólin snúist nokkuð
frá þeim árum þegar íslendingar
sóttu Midem mest til að kaupa efni
inn og sinna útflytjendum annarra
landa. Nú mæta þeir og slá upp
sölubás og hafa með sér ráðherra til
að laða fólk að.
„Þetta er söluferð en ekki kaupferð"
Mugison Hvert veröur hann seldur?
DV-mynd Hari
Árið um kring hópast fólk á suður-
strönd Frakklands - ekki til að sóla
sig eða slappa af- heldur i stífa
vinnu, samningafundi og þvarg,
langa daga frá því snemma á
morgnana þar til seint á kvöldin. Til-
efnin eru mörg: Cannes á suður-
ströndinni hefur markaðssett sig
sem borg fyrir söluráðstefnur af
ýmsu tagi. Sjónvarpssefni og kvik-
myndir hafa aukið hróður hennar
sem slíkrar, en frá 22.janúar mun
tónlistarbransinn i Evrópu senda
þangað sitt fremsta fagfólk sem
mun sitja þar næstu viku, sumir
skemur, aðrir lengur.
Það verða átta islensk fyrirtæki sem
taka þátt í Midem-tónlistarkaup-
stefnunni að þessu sinni en þetta er
39. árið sem hún er haldin, en hún er
sú stærsta sinnar tegundar i heimi.
Þetta er annað árið i röð sem skipu-
lögð ersameiginleg þátttaka á is-
lensku sýningarsvæði á Midem á
vegum Útflutningsráðs og mun
menntamálaráðherra, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, sækja sýning-
una.
„Það var samdóma álit sýnenda á
síðasta ári að þátttakan hefði verið
árangursrik, skilað samningum um
útgáfu og dreifingu auk þess sem is-
lensku fyrirtækin voru að leita að
tónlist fyrir islenskan markað og
treysta sambönd við viðskiptavini
sina/'segir Þórhallur Ágústsson hjá
Útflutningsráði en hann hefur ann-
astskipulagningu og undirbúning
áhlaups íslendinganna á suður-
ströndina að þessu sinni.
Íslensku fyrirtækin sem taka þátt í
Midem að þessu sinni eru: Reykja-
vik Records, Skifan, Smekkleysa, Zo-
net, 12 Tónar, Tónlist.is, islensk tón-
verkamiðstöð og Concert. Auk þess
verða þar fulltrúar frá Samtóni, Stefi
og FÍH. Mun þetta vera ein stærsta
sendinefnd sem islensk fyrirtæki
hafa sent suðureftir, en menn frá ís-
lenskum útgefendum hafa verið ár-
vissir gestir á Mldem.
Tólftónar taka þátt i kaupstefnunni
i annað sinn. Þar verður markaðs-
og útgáfustjórinn, Jóhann Á. Jó-
listarmenn, jafnt á sviði sígildrar
tónlistar sem dægurtónlistar, hafa
náð að skipa sér í ffemstu röð í
heiminum. Árangur þeirra hefur
ekki einungis vakið athygli heims-
byggðarinnar á hæfíieikum þeirra
heldur jafnframt orðið til að vekja
áhuga umheimsins á íslandi, ís-
lenskri menningu og fslendingum."
Ráðherrann leggur áherslu á að
sjóðurinn skuli ekki síður annast
styrkveitingar til starfsemi innan-
lands: „Menntamálaráðuneytið
hefur árlega veitt margvíslega styrki
á sviði tónlistar af safnliðum í fjár-
lögum. Hefur þar verið um að ræða
ferðastyrki til einstaklinga og hópa,
styrki vegna einstakra verkefna
innan lands og ut.an, sem og tónlist-
arhátíða innan lands. Þá hefur ráðu-
neytið veitt starfsstyrki til hljóm-
sveita af sérstökum fjárlagalið."
Ráðsmenn
Ráðherrann hefur skipað
tónlistarráð til þriggja ára og mun
það starfa til ársloka 2007. Jónatan
Garðarsson er formaður ráðsins,
Ásta Hrönn Maack og Anna Guðný
Guðmundsdóttir eru aðalfulltrúar
en varamenn eru Einar Örn Bene-
diktsson, Selma Guðmundsdóttir og
Áshildur Haraldsdóttir. Allt þetta
fólk hefur haft beina reynslu af tón-
listarstarfsemi á ólíkum vettvangi:
einleikarar, útgefendur og kynning-
arstjórar. Er því hér sarnan komin
mikil reynsla á einum stað og geta
tónlistarmenn vænst faglegra til-
lagna til ráðherra um úthlutanir frá
hópnum sem að ráðinu stendur.
Hefur þegar verið mótuð sú stefna
að Tónlistarsjóður veiti styrki á
tveim sviðum: til flutnings og kynn-
ingar.
Jónatan formaður
Nýskipaður formaður sjóðsins,
hinn kunni tónlistarfrömuður Jón-
atan Garðarsson, sagði að stefnt
væri að útgáfu reglugerðar hið
fyrsta, auglýst yrði í febrúar og út-
hlutun yrði lokið sex vikum
síðar.
Svo vitnað sé á ný til heillaorða
ráðherrans þegar sjóðurinn var
stofnaður: „Það er von mín að
tilkoma Tónlistarsjóðs verði ís-
lensku tónlistarlífi til heilla og
hlúi að tónlistinni og tónlistar-
lífi í allri sinni fjölbreytni.
Listin verður ekki til fýrir tilstilli
rfldsins eða miðstýrðs reglu-
verks. Það býr ekki til lista-
mennina og tónverkin. Með því
að styðja við bakið á listsköpun og
listflutningi með markvissum og
skynsamlegum hætti, getur hið op-
inbera hins vegar lagt sitt af
mörkurn til að íslenskt menningarlíf
haldi áfram að einkennast af grósku
og nýsköpun.''
pbb@dv.is
Jonatan Garðsson For-
maður nýja fagráðsins
sem leggja skal fram til-
lögur um fimmtíu milljónir.
Þorgerður Katrín „Að
vekja áhuga umheimsins
á Islandi, islenskri menn-
ingu og Islendingum."