Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2005, Page 29
W Sjónvarp
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 29
lllugi Jökulsson er nú í óða önn að leggja drög að dagskrá sem mun bera uppi nýja
talmálsstöð. Það kemur á daginn að þeir sem eru búnir að mynstra sig á þá góðu
skútu eru gömul útvarpsbrýni upp til hópa.
Innsti kjarni lllugi og hans fólk. Það
kemur á daginn að ekki skortir reynslu I
þennan hóp en öll sem eitt eiga þau ár og
áratugi að baki bak við mikrófóninn.
„Þessu miðar mjög vel. En það er
engin dagsetning komin á það enn
hvenær útsendingar hefjast. Við
miðum við að þær hefjist eftir um
þrjár vikur en það veltur á ýmsum
tæknimálum, hvenær stúdíóið
verður smíðað, tækjum reddað og
slíku. En það strandar ekki á dag-
skránni sem slíkri," segir Illugi Jök-
ulsson útvarpsstjóri um hvernig
gangi að koma nýrri útvarpsstöð á
koppinn.
Líkt og flestir þekkja var nýverið
skrúfað fyrir útsendingar Skonrokks,
X-ins og Stjörnunnar en 365 ætlar að
leggja aukinn kraft í Bylgjuna, FM
957 og svo hina nýju talmálsstöð
sem enn hefur ekki hlotið nafn.
Illugi segir menn ekki ætla að hengja
sig alfarið á hið sagða heldur mun
einhver tónlist heyrast en hún verð-
ur í algjöru aukahlutverki. Útvarps-
stöðin nýja hefur gengið undir
vinnutitlinum „Gufan" en Illugi
segir það vinnutitil sem að öllum lík-
indum verði ekki brúkaður þegar til
kastanna kemur.
Ljósmyndari DV fór á vettvang
þegar starfsmenn funduðu í gær og
má sjá að þetta eru miklir jaxlar sem
hafa mynstrað sig til samstarfs við
Illuga: Þarna getur að líta Sigurð G.
Tómasson, Hallgrím Thorsteinsson,
Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur og
Helgu Völu Helgadóttur auk Illuga
en samanlögð reynsla þeirra við
störf í útvarpi fer örugglega vel yfir
öldina.
Er þá ekki rökrétt aö álykta sem
svo að þetta verði gamalt útvarp?
„Nei, þetta verður ekki gamalt
útvarp. En þetta verður útvarp
hokið af reynslu," segir útvarps-
stjórinn nýi sem reyndar er hinn
erfiðasti og verst allra frétta. Hann
er til að mynda ekki einu sinni til-
búinn að upplýsa hvort hinn um-
deildi Ingvi Hrafn Jónsson verði í
hópnum eða ekki. Þá er fyrirliggj-
andi, svo enn sé tekið mið af með-
fylgjandi mynd, að þarna eru sam-
an komnir margir fyrrverandi
starfsmenn RÚV. Illugi segir þó
ekki rétt að líta svo á að hin nýja út-
varpsstöð beri keim af ríkisútvarp-
inu.
„Nei, þetta er það fólk sem þegar
er komið til starfa og er að leggja lín-
ur. En svo munu koma til starfa aðr-
ir sem koma úr allt annarri átt og
munu væntanlega setja mark sitt á
dagskrárgerðina."
Fjöldi manna hefur sett sig í
samband við Illuga og sótt um
vinnu en meira um vert, segir Illugi,
er að hann hefur tekið fjölmörg
símtöl þar sem fram kemur mikil
ánægja meðal fólks með þessa
viðbót í útvarpsflóruna. Aðspurður
segir Illugi að hlustendur megi bú-
ast við „aggressívu" útvarpi - „Þeg-
ar tilefni er til.“ jakob@dv.is
Þórhallur og Reynir Þeir
félagarnir láta sér ekki nægja
að ritstýra timariti eða stjórna
heimildarþætti. Athafnasemi
j þeirra er viðbrugðið.
Þórhallur Gunnarsson og Reynir Traustason taka höndum saman
Sjónvarpsstjarna og stjörnublaðamaður
gera heimildarmynd um undirheimana
Þórhallur Gunnarsson sjón-
varpsstjarna og Reynir Traustason
stjörnublaðamaður hafa stillt
saman strengi sína. Þeir
P vinna nú saman að heim-
ildarmynd sem fjallar um
undirheimana en þó frá nokkuð
nýstárlegu sjónarhomi.
Þannig er að Reynir
er, samhliða því að
ritstýra tímaritinu
Mannlífi, að vinna að
bók sem Edda útgáfa
hyggst gefa út. Sú
bók fjallar um undir-
heimana íslensku.
Þórhallur fylgist síðan grannt með
gangi mála, ásamt kvikmyndatöku-
manninumÞorvarðiBjörgólfssyni, og
fjallar myndin um það þegar Reynir
hittir mann og annan vegna bókar-
innar sem em öllum hnútum kunn-
ugir þegar handrukkanir og dópsala
eru annars vegar. Myndina er fyrir-
hugað að sýna næsta haust en þegar
liggja fyrir klukkustundir af teknu
efni. Meira á eftir að taka og svo hefst
klippivinna.
Reynir virðist reyndar vera að feta
sig æ meira í átt að kvikmyndagerð.
Þannig er hann, ásamt vini sínum
Lýði Arnasyni lækni sem er haldinn
ólæknandi kvikmyndadellu eins og
kunnugt er, að vinna heimildarmynd
um ísmanninn ógurlega. Heimsat-
hygli vakti þegar Fréttablaðið greindi
frá því á síniun tíma þegar Sigurður
Pétursson, sem búsettur er í
Kuummiit á Grænlandi, handsamaði
hákarl með bemm höndum. Nú er
Sigurður ísmaður væntanlegur til
landsins vegna lokataka. Til stendur
að setja ísmanninn, sem þrífst best í
náttúmnni, í erkivestrænar aðstæð-
ur, klæða hann upp hjá Sævari Karli
og fara með hann í Kringluna til að
varpa ljósi á og skerpa andstæðurnar.
jakob@dv.is
Stjörnuspá
HilmarOddsson kvikmyndaleikstjóri er
48 ára í dag. „Þegar við erum fullviss um
að við erum Ijós sannleika og feg-
urðar, eftirsóknarverð og
ágæt, afhjúpum við okkur
með ánægju fremur en
skelfingu og þetta veit
maðurinn sem hér um
ræðir svo sannarlega.
Hann nýtur sín í ástarsam-
bandi þar sem mjög gott
jafnvægi ríkir," segir
í stjörnuspánni
hans.
Hilmar Oddsson
H
\/\ Vatnsberinn (20.jan.-i8.febr.)
W ----------------------------------------
Þér er ráðlagt að losa þig við
venjur og jafnvel hluti sem kunna að
vera þér samgrónar og virðast vera
hluti af þér en eru það ekki.
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
Gefðu þér smástund í einrúmi
til að henda reiður á hugsunum þínum
og tilfinningum og sjá, þegar þú ferð
síðan aftur af stað kemstu lengra. Jafn-
vægi er svarið þegar stjarna fiska er
annars vegar.
Hrúturinn (21.mars-19.aprn)
Ekki hika við að hjálpa einhverj-
um daglega. Ef þú hlustará undirmeðvit-
und þína þá finnur þú löngunina að að-
stoða náungann. Stjarna þín leitar eftir
hlýju hérna en á sama tíma ættir þú að
taka skref í átt að yfirvegun. Gefðu sjálf-
inu forskot með því að efla tilfinningar
þínar innra með þér. Það krefst hugrekkis
svo sannarlega kæri hrútur.
T
b
Nautið (20. apríl-20. mal)
Ekkert okkar þarf að réttlæta
eigin tilvist og er stjarna nautsins minnt á
það sérstaklega um þessar mundir. Vertu
reiðubúin/-n að starfa minna og afkasta
meiru framvegis því þegar þú hættir að
leggja of mikið á sjálfið og jafnvel svo
mikið að þú ert örvinda í lok dagsins, mun
árangurinn ekki láta á sér standa.
|1 Tvíburarnir (21. mai-2i.júni)
Þér er ráðlagt að taka ákvörð-
un sem allra fyrst að þú hafir tíma fyrir
það sem er mikilvægt í tilveru þinni.
Þegar og ef þú tekur þessa ákvörðun lít-
ur þú dagana öðrum augum og hafnar
öllu óviðkomandi án þess að það ræni
þig tíma þínum á nokkurn hátt.
Krabbinn (22.júni-22.júii)
Tákn atlætis kemur hér fram
og erfiðleikar eru senn á enda og á það
sér í lagi við fjárhagsáhyggjur einhvers
konar sem gætu tengst þér hérna.
l]Ón\b(23.júli-22. ágúsl)
Vertu þú sjálf/-ur án nokkurrar
tilgerðar. Þegar þú leyfir þér að finna fyrir
eigin tilveru meðvitað þá öðlast þú innri
frið og ró. Hlustaðu á þig sjálfa/-n og
treystu því sem þú heyrir um þessar mund-
ir. Stjörnu Ijónsins er ráðlagt að þróa sitt
eigið líf á þann hátt að hún verði trú sínum
innstu þrám og heilögustu skyldum.
m
Meyja n (23. ágúst-22. septj
Vandaðu valið þegar þú um-
gengst fólk, hluti og þegar þú neytir
fæðu. Stjarna meyju er stödd á vega-
mótum og nú tekur nýr góður kafli við
sem eflir þig sem einstakling á margan
hátt. Nærðu hjarta og huga meðvitað.
Q Vogin (23.sept.-23.okt.)
Völd eiga greinilega vel við
þig og stjórnunarhlutverkið virðist vera
sérsniðið að þinni manngerð ef marka
má stjörnu vogar.
Sporðdrekinn (24.ott.-21.n6v.)
Þú stendur jafnvel frammi fyrir
freistingum sem þú ættir að standast
því annars mun samviskan ávallt angra
þig. Hér birtast að sama skapi breyting-
ar á högum þínum til betri vegar.
/
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Hér gæti frétt sem tengist
barnsfæðingu eða upphafi á einhverju
mikilfenglegu verið á ferðinni. Þú ert
fær um að uppfylla óskir þínar og getur
átt von á að lenda í ástarævintýri innan
niu nátta.
z
Steingeitin (22.des.-19.janj
Ef þú finnur fyrir álagi í starfi
eða námi þessa dagana ættir þú að taka
þér stutta stund í miðri hringiðunni eins
oft og þú getur.
SPÁMAÐUR.IS