Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2005, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2005, Side 4
4 FIMMTUDACUR 10. MARS 2005 Fréttir DV Hafna einka- slökkviliði Ekkert verður af rekstri einkarekins slökkviliðs í Skagafirði á vegum öryggis- fyrirtækisins Pro ehf. Byggðarráð Skagaíjarðar hefur samþykkt að hafna ósk InPro um að fá að gera úttekt á brunavörnum í sveitarfélaginu með tilliti til einkareksturs. Eins og ífam hefur komið í DV telja for- svarsmenn InPro hægt að ná fram bættri þjónustu og hagræðingu með samein- ingu slökkviliða. Vill InPro sameina slökkvilið víða um land í eignarhaldsfélagi sínu og annarra fjárfesta. Hraðakstur í blindni Lögreglan á Selfossi stöðvaði fimm ökumenn fyrir of hraðan akstur í gær- morgun. Voru þeirteknirá allt frá 110 til 114 kflómetra hraða. Yfirleitt er ekki talað um neinn ofsaakstur þegar fólk er á þessum hraða. Að sögn lögreglunnar var hins vegar þó nokkur þoka á heiðinni í gær og aksturslag ökumannanna í háskalegri kantinum vegna þess. Öku- mennirnir fá einungis sekt- arboð. Sumarfrí að eigin vali Ólflct því sem gerist í flestum nágrannasveitarfé- lögunum verða leikskólar í Garðabæ opnir í allt sumar. Foreldrar geta því valið hvenær börn þeirra taka sumarffí. Eins og annars staðar er þó almenna regl- an sú í Garðabæ að börn taki fjögurra vikna samfellt sumarffí. Munurinn er bara sá að í Garðabæ velja for- eldrar sumarleyfistímann sjálfir í samráði við við- komandi leikskóla. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri réö í gær Auðun Georg Ólafsson sem frétta- stjóra Ríkisútvarpsins. Yfirmaður Rásar tvö hótar að hætta og ritstjóri Morgun- vaktarinnar segir að fréttastofan hafi verið niðurlægð og útvarpsstjóri gefið skít í það fólk sem þar vinnur. Nýi fréttastjórinn segist ætla að bregðast við meintri óá- nægju starfsmanna og annarra umsækjenda með því að taka einn dag í einu. Sölumaðup páðinn í útvupplð 01 lupsljúpi Rúsap 2 hótap oö hætta Fundur á RÚV Fréttamenn funduðu fram eftirkvöldi i gær eftirað fréttastjórinn var valinn. Rásar tvö, „Maður er búinn að leggja sig undir, það er búið að Allt varð vitlaust í gær á fréttastofum útvarps og sjónvarps eftir að Markús Örn Antonsson skipaði Auðun Georg Ólafsson, sölu- og markaðsstjóra hjá Marel, sem fréttastjóra Útvarpsins. Fréttamenn segja ráðninguna pólitíska og með henni séu fréttamenn niðurlægðir. Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri réð í gær Auðun Georg Ólafs- son fréttastjóra Rfldsútvarpsins. Auðun var meðal tíu umsækjenda um starfið en lenti þó ekki á topp fimm lista sem Bogi Ágústsson, yfir- maður fféttasviðs, lagði fram með nöfnum þeirra sem hann taldi hæf- asta. Hins vegar hlaut Auðun Georg öll atkvæði sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í útvarpsráði. „Þetta er mjög mikill heiður og ég hlakka til að taikast á við þetta starf," segir Auðun Georg en höfuðstöðvar Rfldsútvarpsins í Efstaleiti loguðu í gær þegar út spurðist að sniðganga ætti fjölmarga reynda fréttamenn sem sóttu um og sækja fféttastjóra rfkisins þess í stað út í bæ. Tek einn dag í einu Um ólguna vegna ráðningarinn- ar segir Auðun Georg: „Ég tek einn dag í einu. Enn hef ég ekki hitt þetta fólk né það heldur mig þannig að ég Það eina sem ég get gert er að fara að gera eitthvað annað. get ekki annað en látið verkin tala. Ég stefiii að því að gera góða frétta- stofu betri og stuðla að upplýstri umræðu í þjóðfélaginu." Auðun Georg starfaði lengi sem sölumaður fyrir Marel í Asíu og þar kynntist hann eiginkonu sinni sem er brasilísk en af japönskum upp- runa: „Hún heitir Fernanda Naka- yama og er tannlæknir en hefur starfað hér á landi sem tannsmiður. Hér hefur hún búið í sex ár,“ segir Auðun Georg Ólafsson, nýráðinn fréttastjóri Rfldsútvarpsins. Hugsa um að gera eitthvað annað „Mér er ekki mjög ljúft að sitja undir þessu persónulega," segir Jó- hann Hauksson, einn umsækjenda og forstöðumaður rekja úr manni garnirnar, prófa mann og meta reynslu og störf og ég hélt að það væri gert á faglegan hátt. Það er hægt að taka þessu eins og háði eða gríni þegar manni er gefið langt nef og maður hefur verið að sinna sínum störfum í alvöru og af heflindum. Þegar það er allt að því gert grín að þessu, þá hefur maður fullt frelsi til að fara að gera eitthvað annað. Það eina sem éget gert er að fara að géra eitthvað annað. Það getur enginn frá manni tekið. Óðinn Jónsson Verið að gefa skít f fólk sem hefur sinnt sfnum störfum aftrúmennsku. Jóhann Hauksson Manni gef ið langt nefog þá hefur maður frelsi til að fara annað. Auðun Georg ólafsson Fréttastjóri með brasilíska eigin konu afjapönskum uppruna. „Ég sé í anda hvernig Friðrik Páll Jónsson, Óðinn Jónsson, Arnar Páll Hauksson og Broddi Broddason eiga eftir að leiða þennan unga mann í gegnum allt sem lýtur að hinni eig- inlegu fréttamennsku, hvernig á að bregðast við hamförum á fslandi og erlendum stórviðburðum, í raun öllu því sem felst í að sinna fréttum en ekki bókhaldi, krónum og aurum. Maður hugsar sinn gang. Ég get líka leitað að vinnu hjá Marel og sótt meðmæh til Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar." Gefa skít í fréttamenn „Þetta er dapurleg niðurstaða. Þarna eru stjórnmálamenn að nið- urlægja Fréttastofu útvarpsins, elstu og virtustu fréttastofu ljósvakans. Annars ætti maður sjálfsagt að sam- fagna með Framsóknarflokknum að hafa tekist með sex mánaða aðdrag- anda að finna verðugan arftaka fyrir Kára Jónasson. Hér er algjörlega verið að gefa skít í aha fag- mennsku sem stunduð hefur verið hér og verið að gera lítið úr reynslu fólks sem hefur lagt sig fram um að sinna sínum störf- um af trúmennsku. Það er ekki ólíklegt að þetta eigi eftir að hafa eftirmál." Fjöltefli í landi sólarinnar 'T- '•i Svarthöfði Hvað er eiginlega að gerast í Jap- an? Sæmi Rokk og Bobbi Fokk í tómu tjóni. Skákmeistarinn í fanga- búðum Japana eins og eftirlegukind úr síðari heimsstyrjöldinni. Sæmi, sem ekki hefur hitt Fischer kallinn í aldarþriðjung, mættur með tvist í hverju spori og Jailhouse Rock á vör- um. Nema í gær því þá var afmælis- veisla hjá Bobbi og Sæmi söng Happy Birthday to you, Bobbi gamli drengur. Og nú er Sæmi einn eftir með Bobba kallinum. Hinir íslending- arnir farnir heim úr björgunarleið- angrinum sem helst var farinn að líkjast sjálfsmorðsárás úr norðri á land sólarinnar. Máhð virðist snúið. Jafnvel of flókið fyrir Svarthöfða. Sem þó telur sig vera meistara í svona fléttum. í fyrsta lagi kom Bobbi sér í bobba með því að tefla manntafl við Boris gamla Spassky á Balkanskaganum. Það vhdu landar hans ahs ekki því Balkanmenn áttu ekki skhið að fá Boris og Bobba í heimsókn. Síðan er drjúgur dropi runninn th sjávar. Fischer dúkkaði síðast upp í japönsku fangelsi með innkahað vegabréf og hver veit hvað. Nú eru góð ráð dýr. Landar Bobba vhja að Japanir sendi þeim meistarann, lifandi eða dauðan, á silfurfati heim til USA. Þar er mein- ingin að vista hann th langframa í einu af hinum notalegu endurhæf- ingar- og betrunarheimhum sem aht úir og grúir af þar í landi. Þetta vhja Sæmi Rokk og félagar fyrir aha muni koma í veg fyrir. Dav- íð er sammála og hefur úthlutað Bobba aðgöngumiða að íslandi. Það sé ekki sanngjarnt að Bobbi komi sér úr eigin bobba. Svoleiðis geri menn bara ekki. Krókur hefur enn komið á móti bragði. Nú segja óvildarmenn Bobba hann vera hrikalegan stór- glæpamann sem eytt hafi drjúgum hluta efri áranna við að hvítþvo iha fengið fé. Og á sama tíma eru japanskir Hvernig hefur þú það' „Ég er dálltið þreytt en glöð og I baráttuhug," segir Hildur Sverrisdóttir, fram- kvæmdastjóri V-dagssamtakanna. „V-dagurinn tókst alveg rosalega vel ogþað var þvíllk stemmning. Ég er afar ánægð og það láta sig miklu fleiri þetta mál varða en ég hafðinokkurn tíma gert mérgrein fyrir." fangaverðir eins og eitruð peð á hjólum í kringum stórmeistarann og espa hann áfram lflct og ljón í búri. Bobbi er í hinu endanlega fjöltefli. Enginn má við margnum. Sæmi, komdu heim. Við spælum handa þér egg. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.