Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2005, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2005, Page 10
1 0 FIMMTUDAGUR 10. MARS 2005 Fréttir DV Markús þykir vera mikill vinnu- hestur, heiöarlegur með ein- dæmum og ávallt traustur. Hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum ígegnum tíð- ina og þótti klár blaðamaður á sínum tíma. Margir vilja meina að út- varpsstjóri Ríkisútvarpsins sé nokkuð þurr á manninn. Hann hefur verið gagnrýnd- ur fyrir að gefa litið afsér og þykir sjást lítið á göngum Ríkisútvarpsins. „ Við Markús störfuðum vel saman I borgarstjóm á sínum tíma. Sá timi stóð skemur en ég bjóst við. En fyrir mér er hann mikill hugsuður og ráðagóður maður. Hann er hreinn og beinn og það eru mjög mikilvægir kost- ir. Einhverjum myndi þykja það ókosturað vera ekki mjög áber- andi útá við. Mér finnst það þó fremur kostur en galli að menn séu hlédrægir." Arni Sigfússon bæjarstjóri „Það hafa fáir brallað og hlegiðjafn mikið saman og við Markús á þeim fjör- utíu árum sem við höfum þekkst. Hann er mjög traustur og vandaður maður í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur og er algjör vinnuhestur. Hann hefur einnig góðan húmor. Það halda þvi margir fram að hann sé svolítið þurr á manninn en það er misskiiningur. Hann er bara ekki þessi týpa sem reynir að kaupa sér vinældir og vill frek- ar halda sig svoiítið til hiés. Hann geturþó stundum verið nokkuð stífur." Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi br:' m „Markús er einkar Ijúfur og skemmiiegur, mikill húmoristi og hefur gam- anafað gantast í góðra vina hópi. Hann hefur líka mikla leikarahæfi- leika og er ófeiminn við að beita þeim. Við unnum saman á frétta- stofu Sjónvarpsins hér fyrir margt löngu. Þar naut hann sín vet, hugmyndaríkur og með gott fréttanef, skipulagður, röskur til verka og vinsæli meðal sam- starfsmanna. Hann sýndi þá þeg- ar leiðtogahæfileika og var um tima formaður starfsmanna- fétagsins." Ólafur Ragnarsson útgefandi Markús Örn Antonsson er fæddur árid 1943 í Reykjavík. Hann er kvæntur Steinunni Ár- mannsdóttur skólastjóra og eiga þau tvö börn. Markús hefur komiö viöa viö. m.a. sem blaðamaður, og var um tíma borgarstjóri Reykvíkinga. Hann gegnir nú stöðu útvarps- stjóra og ræður þar menn i stööur innan rik- isbdknsins samfara ööru daglegu amstri. Tekist á um meinta galla Mál hjónanna Karls Ágústs Úlfssonar ogÁs- dísar Olsen gegn Guð- rúnu Þóru Hjaltadóttur sem keypti af þeim íbúð áÆgisíðu var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavfkur í gær. Eins og DV hefur áður greint frá telur Guðrún Þóra hjónin hafa leynt sig göllum við sölu á íbúðinni og neitar að greiða umsamið kaupverð að fullu. Karl Ágúst og Ás- dís vitna í niðurstöðu mats- manna og krefjast þess að Guðrún verði dæmd til að borga upphæðina sem á vantar. Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðsdómi fyrir ótal innbrot og fikniefnabrot. Hann reyndi meðal annars að stela hjólhýsi á stolnum jeppa í versluninni Evró. Eigandi verslunarinnar stöðvaði þjófinn og hefur nú komið sér upp sérþjálfuðum hermanni til þess að gæta verslunarinnar á næturnar. Júgóslavneskur sérsveitarmaður gætir hjólhýsa a Hörður Hákon Jónsson var í gær dæmdur í Héraðsddmi fyrir nokkur þjófnaðarbrot og einnig fyrir að hafa verið tvívegis tekinn með fíkniefni í fórum sínum. Hörður virðist á skömmum tíma hafa farið ránshendi um höfuðborgarsvæðið og var ákæran í átta liðum. Grensasveginum Hörður braust inn í Hótel Smára og stal þar IBM-fartölvu, 12 flöskum af áfengi og 6 bjórum. Því næst fór hann inn í geymslu og tók þrjá borð- lampa. Rúða í þvottahúsinu Laugar- stapa var svo brotin og ýmsum tölvubúnaði, dagbókum, leður- möppu, litaborða i faxtæki og ýms- um ritföngum var stolið. Radarvari og bílskúrsopnari voru teknir og myndbandsupptökuvélar í öðru ráni. Einnig var hann stöðvaður af lögreglu með kannabisefni og am- fetamín. Hörður ákvað síðan að gerast stórtækur á föstudaginn langa í fyrra. Þá stal hann Pajero-jeppabif- reið og náði í félaga sinn suður í Sandgerði. Þeir keyrðu síðan til Reykjavíkur í útivistarbúðina Evró þar sem hjólhýsi að verðmæti 2.300.000 var fest aftan í jepp'abif- reiðina. „Við vorum fyrir tilviljun staddir í versluninni að horfa á fót- bolta þegar við sjáum jeppabifreið- ina út um gluggann," segir Svein- björn Árnason, annar eigandi versl- unarinnar, en hann náði að stöðva þjófana áður en hjólhýsinu var ekið á brott. Vaktar verslunina „Þegar við komum að þeim hljóp sá stelsjúki í burtu en við náðum lyklunum af jeppanum og hringdum á lögregluna," segir Sveinbjörn og „Ég var án gríns að spá í að fá mér hund og hefsjálfur gist hérnatil þessað passa hjólhýsin“ furðar sig á því hversu mikið vesen er að kæra svona lagað. „Það var alltaf verið að biðja mig um að koma niður í héraðsdóm en ég mætti aldrei enda mikið að gera. Síðan var mér skipað að mæta og ég sagði mína sögu. Það mætti halda að ég hefði lent í þessu en ekki hann,“ segir Sveinbjörn, sem var verulega ósáttur með allt þetta vesen og fannst undarlegt hversu æstur dóm- arinn varð þegar hann mætti með tyggjó í vitnastúkuna. Eigendur verslunarinnar hafa nú þegar gert ráðstafanir og vakta nú verslunina á næturnar. „Við höfum samt ekkert lent mikið í þjófnaði en menn hafa verið að reyna að stela húsbflum og myndavélum," segir Sveinbjörn en nýlega voru tvær fánastangir brotnar fyrir utan versl- unina. Sérþjálfaður Júgóslavi „Við erum nú komnir með næt- urvörð sem er sérþjálfaður hermað- ur frá Júgóslavíu. Það þarf að ná þessum náungum," segir Svein- björn, sem hefur einnig komið sér upp öflugu þjófavarnarkerfi. Sér- þjálfaði hermaðurinn gistir í versl- uninni enda nóg af rúmum í vögn- unum að sögn Sveinbjarnar. „Ég var án gríns að spá í að fá mér hund og hef sjálfur gist hérna til þess að passa hjólhýsin," segir Sveinbjörn að lokum, ákveöinn í að grípa næstu hjólhýsaþjófa. breki@dv.is Nýjar tölur frá Stígamótum eru sláandi Hópnauðganir standa í stað Sjö einstaklingum var hóp- nauðgað á síðasta ári. Það er sami fjöldi og árið 2003 og standa því hópnauðganir í stað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Stígamóta sem kynnt var fjölmiðlum í gær. Þar kemur einnig fram að aðsókn að Stígamótum hafl minnkað, vinnu- álagið aukist en stuðningsviðtöl- um fjölgað. Tölfræðin um hópnauðganirn- ar er þó trúlega mest sláandi. Þór- unn Þórarinsdóttir, ráðgjafi hjá Stígamótum, sagði í viðtali við DV í sumar þegar fyrsta útborgunar- helgin nálgaðist að meiri grimmd væri í kynferðisofbeldisbrotum en áður. „Það er meira um hóp- nauðganir. Strákar taka sig kannski þrír fjórir saman og skipt- ast á að nauðga stúlkunum dauðadrukknum eða uppdópuð- um. Þetta er öðruvísi en áður.“ Þórunn tók jafnframt fram að það væru ekki bara stúlkur sem væru í hættu. „Þetta gæti verið dóttir manns, frænka eða frændi. Oft eru það strákar sem nauðga strákum. Þeir sem ætla sér að fremja glæpi gera það,“ sagði hún. í ársskýrslu Stígamóta er farið yfir öll nauðgunarmál. Þau eru sögð hafa fækkað úr 155 í 133 og sifjaspellsmálum fækkað úr 163 í 149. Einnig er farið í vændismál en árið 2003 hafði Stígamót sam- band við 30 einstaklinga vegna vændis en sú tala lækkar niður í 22. Sem hljóta að vera góðar fréttir. Þórunn Þórarinsdóttir, ráð- gjafi hjá Stígamótum Hópnauðgunum fækkar ekki. Garðbæingar sárirJóni Bæjarráð Garðabtejar segir ákvörðun heilbrigðisráðuneytisins um sameiningu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu ganga þvert gegn sjónarmiðum um eflingu á starfsemi heilsugæslunnar í Garða- bæ. Aukin miðstýring dragi úr „ffumkvæðisáhrifum" heilsugæsl- unnar og hafi neikvæð áhrif á sam- starf við bæjaryfirvöld. Bæjarráð hefur falið Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra að ræða málið við Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og stjórnendur Heilsugæslunnar í bænum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.