Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2005, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 10. MARS 2005 Menning DV unmng insson pbb(a)dv.is junssonar. n r Jarð. Ritfregn skjálftinn í Kobe er miðdepill þessa áhrifaríka smásagnasafns; „skjálftinn er eins og bergmál löngu liðinna atburða sem nú brjótast ffam úr sálardjúpinu og skekja tilveru fólks sem svo lengi hefur stigið afar varlega til jarðar" segir í fréttatilkynningu Bjarts. Haruki Murakami er einn vin- sælasti rithöfúndur samtímans. Á síðustu árum hafa verk hans vak- ið gífurlega athygli í Japan og víða annars staðar í heiminum. Murakami var meðal gesta á Bókmenntahátíð í Reykjavík haustið 2003. Áður hefur Bjartur gefið út eftir hann skáldsögurnar Spútnik-Ástin og Sunnan við mærin, vestur af sól. Nýjasta verk hans, Kafka on the Shore, hefur vakið mikla at- hygli og verið fáanlegt í ensku þýðingunni í bókaverslunum í Reykjavík. Það er Oddi hf. sem prentar, en kápu hannar Ásta S. Guðbjartsdóttir, verð 1.980 kr. Afgangar á Ganginum á Rekagranda Haraldur Jónsson myndlistarmað- ur opnar sýningu í Ganginum hjá Heiga Þorgils Friðjónssyni á föstudag- inn kl. 17. Þar hefur hann sett upp innsetninguna Afgangar. Gangurinn er margfrægt rými sem Helgi Þorgils hefur rekið um langt skeið á heimili sínu að Rekagranda 8 þar sem forðum voru sorphaugar Reykjavíkur og nefndist gatan þá Ástarbrautin. Haraldur vinnur jöfnum höndum í marga miðla en skynjun og margbrot- in tengsl eru honum einkar hugleikin; hvemig við ritskoðum sumar tilfinn- ingar og hugsanir um leið og þær brjótast upp á yfirborðið. f innsetn- ingu sinni hefur hann dregið saman eitt og annað sem hann telur mynda heildstæða mynd. Klósettið segir hann einskonar kapellu; „Ég sakna skriftastólsins" segir hann. „Einu leif- ar hans í okkar samfélagi er klósettið." Hann segir ganginn hjá þeim hjónum á Rekagranda „Kafkaeskt rými" sem heilli sig. Áhugasamir geta hringt á undan sér vilji þeir skoða sýninguna, en Helgi er í símaskránni. Forleikur að sýningunnl Af- gangar hjá Haraldi Jónssyni. Fórst þú til Riccione á árunum 1980 til 1990? Þá manst þú eftir veitingastaðnum La Travíata. Á laugardag verður opnuð allsérstæð sýning í Þjóðminjasafninu þar sem úrval ljósmynda frá þessum vinsæla veitingastað sýnir íslendinga á erlendri grund í hátíðarskapi hjá þeim glöðu gestgjöfum og trúðum, bræðrunum Manfroni. Samvinnuferðir Landsýn hófu sldpulagðar ferðir á Rimini-ströndina við Adriahafið 1980 og til Riccione streymdu flugvélafarmar af íslensk- um ferðamönnum. Bræðurnir Nerio og Maurizio ráku þá veitingastað í Riccione, La Travuata, sem varð strax miðstöð íslendinga í þessu gamla smáþorpi sem á þessum árum var heldur vanþróaður ferðamannastað- ur en hefur nú skipt um ham svo þeir sem áður fóru þar um þekkja hann varla sem sama stað. Bræðumir héldu uppi fjörinu á staðnum og helguðu gestum frá íslandi krafta sína. Hluti af þjónustu þeirra var myndataka af gestum og þær myndir gefa einstaka sýn á hvemig landinn ber sig á sólarströnd, hvemig þjóðin bar sig við skemmtanahald á þessum næstsíðasta áratug tuttugustu aldar. Hin afvegaleidda Ólafur Gíslason listffæðingur seg- ir í sýningarskrá: La Traviata var ekk- ert venjulegt veitingahús, heldur allt í senn, matsölustaður, bar, kabarett og leikhús, og leikaramir í þessum kab- aretti vom allir gestir og starfsfólk staðarins, ungir sem gamlir. Þeir bræður höfðu ótrúlega hæfi- leika til að leiða farþega okkar út úr vanabundinni hugsun og fordómum hversdagsins og láta staðinn standa undir nafhi, ekki bara sem merkis- bera ítalskrar menningar í mynd tón- skáldsins Verdi og óperunnar La Tra- viata, heldur líka samkvæmt bókstaf- legri merkingu orðsins La Traviata: Hin afvegaleidda. Á La Traviata var hin afvegaleidda íslenska þjóð sann- arlega komin í annan heim þar sem stöðnuðum forskriftum og fordóm- um var kastað fyrir róða. Það er forsenda farsælla ferðalaga að menn villist af leið svo að þeir þekki aftur eigin heimkynni og sjái þau í nýju ljósi. Ekkert stóðst saman- burð við La Traviata í þessari viðleitni okkar sem störfuðum á Rimini og Riccione á árunum 1980-90. Einstakt safn „Sú myndasýning sem hér hefur verið sett upp er afrakstur samvisku- samlegrar umhirðu Nerio Manffoni, sem hélt til haga öllum gögnum um starfsemi veitingahússins umræddan tíma, meðal annars þeim ljósmynd- um sem urðu afgangs hjá götuljós- myndurunum sem komu þar við á hverju kvöldi. Ljósmyndasafn Nerio Manfroni frá þessum tfrna fýllir mörg bindi og það lýsir höfðingsskap hans og framsýni að hann skuli nú hafa af- hent Þjóðminjasafhi íslands að gjöf þann stóra hluta safnsins sem snertir hina íslensku gesti staðarins sérstak- lega. Þetta safn ér ómetanleg heimild um íslenska þjóðhætti og menningu á síðari hluta 20. aldar, þegar ferðalög íslendinga til ffamandi landa urðu í fyrsta skipti möguleg fyrir allan al- menning." Gefst nú mönnum kostur á að sjá þennan tíma eins og þeir séu gestir í fjarlægu landi og athuga hvort þeir þekkja þetta fólk, vilji menn kannast við spegilinn þegar litið er í hann. Sýningin verður opn- uð á laugardag. ÁítaKu Landar aö skemmta sér hjd Hinni af- vegaleiddu þarsemalltgatgerst * BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 1 03 Reykjavík Þing um H.C. Andersen og listina að segja sögu i Gerðubergi STÓRA SVIB DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Aðalæfing Fí 10/3 Id 20 - kr. 1.000,- Frumsýníng Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 kl 20 HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögum BöOvars Cuðmundssonar Su 13/3 kl 20 Fí 17/3 kl 20, Fí 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20, Su 17/4 kl 20 HERI HERASON e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20 LINA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 2/4 kl 14 - Aukasýning Su 3/4 kl 14 - Aukasýning Lokasýningar HOUDINI SNYR AFTUR Fjölskyldusýning um páskana. Mi 23/3 kl 20, Fi 24/3 kl 15, Fi 24/3 kl 20, Lau 26/3 kl 15, Lau 26/3 kl 20 LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA - UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI Kl 18:00 GleÖistund f forsal - veitingasalan opin Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið - kynníng á verki kvöldsins Kl 19:00 Matseðill kvöldsins Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins NÆRING FYRIR SAL OG LÍKAMA - BÓKIÐ í TÍMA NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN SEGÐU MER ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur Su 13/3 kl 20. Lau 19/3 kl 20, Su 20/3 k! 20 BELGISKA KONGO e. Braga Ólafsson, Críman fyrir besta leik I aðalhlutverki Fi 10/3 kl 20 - UPPSELT. Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 16 - AUKASÝNING Lau 12/3 kl 20 - UPPSELT, Lokasýningar AUSA eftir Lee Hall / samstarfí við LA. Su 13/3 kl 20, Su 20/3 kl 20 - Ath: Miðaverð kr. 1.500 AMERICAN DIPLOMACY eftir Þorleif örn Arnarsson. í samstarfi við Hið lifendi leikhús. Fö 11/3 kl 20, Lau 18/3 kl 20 SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR eftir Agnar Jón Egilsson. í samstarfi við TÓBÍAS. Fi 10/3 kl 20, Fi 17/3 kl 20 ALVEG BRILLJANT SKILNADUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Fö 11/3 kl 20, Lau 12/3 kl 20 - UPPSELT, Fö 18/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 19/3 kl 20 Fö 1/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 2/4 kl 20 eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA Lau 12/3 kl 20, Lau 19/3 kl 20 Börn 12 ára óg yngri fá frítt í ‘ Borgarieikhúsíð í fyigd fuilorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusimi 568 8000 * midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.botgarleikhus.is Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku , fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga Þetta var nú ósvikin saga Ráðstefria helguð rithöfundin- um H.C. Andersen verður haldin í Gerðubergi á laugardaginn. Að henni standa Borgarbókasafnið, Félag skólasafnakennara, IBBY, Gerðuberg, SÍUNG, Skólasafna- miðstöð Reykjavíkur og Upplýsing. Á ráðstefnunni verða haldin nokk- ur erindi. Annette Lassen segir ffá norrænum áhrifum á upphafsár skáldsins, en hún er bókmennta- fræðingur sem hefur lagt stund á ís- lensku og kennt hér um nokkurt skeið. Annette hefur þýtt íslensk verk, meðal annars Bláa hnöttinn. Kristín Unnsteinsdóttir segir frá munnmælaævintýrum, hvar rætur þeirra liggja og hvaða gildi þau hafa fyrir börn. í erindinu teflir Kristín saman andstæðum hugmyndum fræði- manna um uppruna sígildra tákn- mynda í ævintýrum, um gildi ævin- týra fyrir börn og hvenær þau eru móttækilegust fyrir sögum af þessu tagi. Eftir Kristínu hafa á undan- fömum árum birst greinar um munnmælaævintýri og ævintýri sem börn hafa samið sjálf. Kristín lauk MED prófi frá Kennaraháskóla íslands og doktorsprófi ffá Uni- versity of East Anglia í Bretlandi og fjallar doktorsritgerð hennar um ævintýri úr munnlegri geymd, sagnahefðina og notkun ævintýra í kennslustofunni. Jónína Óskarsdóttir ber í erindi sínu „Alltaf sama sagan...?" saman íslenskar þýðingar á verkum H.C. Andersens og segir lauslega frá því sem hefur verið að gerast í sam- bandi við endurritun á ævintýrun- um í Danmörku. Margrét Tryggvadóttir talar um Andersen á okkar tímum, um end- urritanir og þýðingar sem ásamt myndskreytingum eru túlkun á upprunalegum texta H.C. Ander- sens. Hvað segja sögur okkur um samfélagið sem þær eru sprotmar úr og hvað segja þýðingar, endur- ritanir og myndskreytingar okkur um samfélag okkar? Leikarar Þjóðleikhússins sækja ráöstefiiuna heim og flytja brot úr Klaufum og kóngsdætrum sem byggist á ævintýrum Andersens. Ráðstefnunni stýrir Ragnheiður Gestsdóttir, en hún hefst kl. 11.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.