Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2005, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2005, Blaðsíða 40
T1 J* íí í Z* í\j> Í* Við tökum við fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^nafnleyndarergætt. *-* _«-* q «-> SKAFTAHLÍÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ1910] SÍMI5SOSOOO 5 690710 1111171 • Áhuga- menn um fjölmiðla velta fyrir sér hvers vegna Kastljósið hafi ákveðið að vera með þátt sem var tekinn upp nokkrum dögum fyrir sunnudagskvöldið í stað þess að taka fyrir eitt af þeim brenn- andi málum sem í gangi voru. Páfinn var nýlega látinn og fréttastjóramálið var að leysast eftir æsilega baráttu. Inni í Rík- isútvarpinu undruðust menn að hið vel mannaða Kastljós skyldi dúkka upp með viðtal við Guðrúnu Bergmann um ferðamálaverðlaunin sín á slík- um fréttadegi... Mig langar í ókeypis niðurhal! Varaþingkona vill verðo ólétt Vantar karlmann „Þetta er mér mikið hjartans mál,“ segir Brynja Magnúsdóttir, varaþingmaður Sam- fylJdngarinnar, sem skrifar einlæga grein á vefrit jafnaðarmanna um aðstæður til barn- eigna á Suðurnesjunum. Hún segir að ekki einungis hrjái atvinnuleysi Suðurnesjakon- ur heldur einnig öryggisleysi. Ástæðan sé bágborið ástand fæðingardeildar bæjarins. „í hreinskilni sagt þá langar mig að búa fjarri borg óttans og mig lang- Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Brynja gagnrýnir fæðingar- deildina sem hefur áður legið undir ámæli. ar að hafa atvinnu," segir Brynja í grein sinni og bætir við: „Og mig langar að geta orðið ólétt og geta átt barnið mitt fyrir sunnan." Aðspurð segir Brynja ekkert öruggt þegar komi að frjósemi kvenna en þrátt fyrir orða- lagið, að henni langi að geta eignast barn, vid hún ekki til þess að hún sé ófrjó. „Nei, ég á meira við aðstæðurnar. Ef manni verður á að eignast barn í Keflavík er svo margt sem getur komið upp á.“ Sem dæmi um það nefnir Brynja í grein sinni sögu konunnar sem fæddi barn sitt andvana vegna lokunar fæðingardeildar- innar í Reykjanesbæ. FjaUað var um sögu þeirrar konu í sjónvarpsfréttum og varð enginn sem heyrði frásögn hennar ósnort- inn. En hyggur varaþingmaðurinn Brynja Magnúsdóttir á barneignir á næstunni? „Nei, áður en maður fer að plana barn- eignir þarf maður jú að eiga rnann," svarar hún og hlær. Sirrý snæðir með ofætum „Þetta var alveg ótrú- lega gaman og áhuga- vert að sjá,“ segir Sigríð- ur Arnardóttir, eða Sirrý á Skjá 1, en hún er ný- komin úr matarboði hjá ofætum en í þættínum á morgun verður fjallað um þessa alvarlegu fíkn sem svo margir þjást af. Sirrý segist afar heill- uð af því sem hún hefur kynnst meðal ofætanna, sérstaklega matarins sem þær borða. Hún segir að það hafi verið ótrúlegt að hitta fólk sem næstum því hefur étið sig í gröfma vegna matarfíknar en hefur nú fengið bata með vilja- styrk og rétt mataræði að vopni, fyr- ir utan að hafa lést um ótrúlegan fjölda kílóa. „Sjálf er ég ekki matarfíkill en ég vil að sem flestir fái að vita af þeirri leið sem þetta fólk hefur notað til að ná bata og til að létta sig, því þetta er alveg ofboðs- lega góður og góm- sætur matur sem hægt er að borða mikið af en búið er að taka út vissar fæðutegundir sem kynda undir og viðhalda fíkninni. Til dæmis var mér sagt að oft forðast ofætur bakarí eins og áfengissjúklingur þarf að forðast vínbúðir," segir Sirrý sem hlakkar til beinu útsendingarinnar með ofæt- unum í kvöld. Sigríður Arnardóttir Skemmti sér konunglega í matarboði hjá ofætum. Langar meira í Nokia-síma „Við höfum ekki ljáð máls á því að kaupa Símann og erum ekki að skoða þetta af miklum áhuga," segir Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Kers sem nefndur hefur verið sem einn af hugsanlegum kaupendum Símans. „Mig langar meira að kaupa nýjanNokia-síma,“ segir hann. Ólafur var í hópi þeirra sem keyptu Búnaðarbankann á sínum tíma. „Ég vil ekki útiloka alfarið að við verðum með í Símanum," segir hann og á þá við Ker og tengda aðila. „Það eru breskir og þýskir aðilar sem hafa verið í sambandi við okkur og rætt við okkur um hugsanlegt sam- starf. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar og einkavæðingarnefndar liggur núna fyrir og við eigum eftir að skoða hana en höfum frekar verið að draga lappirnar og haft meiri áhuga því á að einbeita okkur að fjárfestingum erlendis," segir Ólafur. Ólafur Ólafsson Ekki spenntur fyrir að bjóða I Slmann en skoðarþað með útlendingum. DANSIeikhúsið frumsýnir á Nýja sviði Borgarleikhússins 21., 24. apríl og 1. maí Ath. Breyttur leikhústÍITIÍ kl. 19:09 Danshöfundar/leikstjórn: Irma Gunnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Halla Ólafsdóttir, Katrín Inqvadóttir og Ólöf Ingólfsdóttir Dansarar og leikarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Ásdís Ingvadóttir, Ásta Bærings, Guðrún Óskarsdóttir, Halla Ólafsdóttir, íris María Stefándsóttir, ívar Örn Sverrisson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Ólöf G. Söebech og Þórdís Schram Miðasala er hafin í Borgarieikhúsinu í síma 568 8000 og www.borgarleikhus.is Hægt er a0 panta ítalska ostaveislu að loklnnl frumsýningu í síma 568 8000. leggur línumar Krlnglunnl NÓl SlRiUS lifandi • skemmtilegt • skapandi Jfw ^ r w 7 :Mámr/ ' í -v \ Jf . KsmKHiiasijSí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.