Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2005, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2005, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005 Kærisáli DV Fingralengd segir til um árásargirni Kanadískir vísindamenn telja sig hafa fundið leið til að bera kennsl á þá karlmenn sem eru árásargjarnari en aðrir. Eftir því sem vísifingurinn er styttri í hlut- falli við baugfingur er tilhneig- ingin til líkamlegrar árásargirni meiri. f fyrstu töldu vísinda- mennimir þetta vera eins og hverja aðra vitleysu en komust að því að þetta mætti til sanns vegar færa. Er fingralengdin talin meðal annars ráðast af því hversu mikið af karlhormónin- um testesteróni þeir fá í móður- kviði. Því meira af hormónum, því meiri árásargirni. Fingra- lengdin og hlutföllinn milli baug- og vísifingurs hafa ekki sömu þýðingu hjá konum. Ertu alkóhólisti 1. Hefur þú einhvern tíma misst úr vinnu vegna áfengisdrykkju? • Já 9 Nei 2. Telur þú að áfengisneysla þin hafi slæm áhrif á heimilislíf þitt? • Já 9 Nei 3. Drekkur þú stundum til að drsga úr feimni þinni gagnvart öðru fólki? 9 Já 9 Nei 4. Telur þú að áfengisneysla þin hafi skaðað mannorð þitt? 9 Já 9 Nei 5. Hefur þú fundlð fyrir sektarkennd i kjölfar drykkju? 9 Já 9 Nei 6. Hefur þú átt í fjárhagsörðugleikum sem rekja má til áfengisneyslu? 9 Já 9 Nei 7. Leitar þú f félagsskap einstaklinga sem þú telur verr setta en þú þegar þú neytir áfengis? 9 Ja 9 Nei 8. Flnnur þú fyrir kæruleysi gagnvart velferð fjölskyldu þinnar þegar þú drekkur? 9 Já 9 Nei 9. Hefur dregið úr metnaði þfnum vegna drykkju? 9 Já 9 Nei 10. Sækir að þér löngun f áfengi á ákveðnum tíma dagins? 9 Já 9 Nei 11. Langar þig oft til að halda drykkjunni áfram daginn eftir? 9 Já 9 Nei 12. Veldur drykkjan þvf að þú átt erfitt með svefn7 9 Ja 9 Nei 13. Hefur dregið úr afköstum þfnum samhliða aukinni drykkju? 9 Já 9 Nei 14. Hefur áfengisneyslan haft slæm áhrif á nám þitt, vinnu eða viðskipti? 9 Já 9 Nei 15. Drekkur þú til að slaka á? 9 Já 9 Nei 16. Drekkur þú f einrúml? 9 Já 9 Nei 17. Hefur komið fyrir að þú hefur misst minnið vegna drykkju? 9 Já 9 Nei 18. Hefur þú þurft að leita þér læknis- hjálpar vegna drykkju? 9 Já 9 Nei 19. Drekkur þú tll að auka sjálfstraust þltt? 9 Já 9 Nei 20. Hefur þú lent á spftala eða stofnun vegna áfengisdrykkju? 9 Já 9 Nei Ef þú svara einni af spurningunum ját- andi eru það greinilegar vfsbendingar um að þú sért alkóhólisti Ef þú svaraðir tveimur spurningum ját- andi eru Ifkur á þvf að þú sért alkóhólisti Ef þú svaraði þremur eða fleiri spurning- um játandi bendir flest allt til þess að þú sért alkahólisti Til eru mörg áfengispróf sem ætlað er að gefa fólki vfsbendingar um ástand sitt. Prófið hér að ofan er eftir Dr. Robert V. Sellger en hann útbjó það fyrir Háskóla- sjúkrahús John Hopkins f Baltimore. Gunnar Kvaran segir fundi Heiðursmanna SÁÁ afar skemmtilega enda hafi félags- skapurinn vaxið mjög hratt og örugglega. Heiöursmenn snua hok- um saman nagn áfengi „Það eru hörkukarlar í þessum fé- lagsskap, menn sem vita að þeir þurfa ekki að vera feimnir við að op- inbera vandamál sín," segir Gunnar Kvaran, meðlimur í Heiðursmönn- um, en það er félagsskapur karla innan samtaka SÁÁ sem hafa það að markmiði að efla starf samtakanna auk þess sem þeir styðja hvern ann- an í baráttunni gegn því böli sem svo oft hlýst af áfengis- og vímuefna- neyslu. „Eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta félagsskapur karla, þeirra sem hafa sjálfir átt við áfengisvanda- mál að stríða, eiga aðstandendur sem eru í neyslu eða bara menn með áhuga á málefnum SÁÁ því fundirnir eru öllum opnir.“ Starfsemi Heiðursmanna er í sífeldri mótun en kjarni hennar er sá að hópurinn hittist hálfsmánaðar- lega á fimmtudögum í hádeginu á Vogi, og ræðir þar landsins gagn og nauðsynjar eins og segir á heimasíðu SÁÁ. Vaxa hratt og örugglega „Þetta eru mjög skemmtilegir fundir og vel mætt á þá,“ segir Gunn- ar með áherslu og sannfæringar- krafti eins og honum er lagið. Við fáum til okkar góða gésti, oft þjóð- kunna menn svo sem ráðherra, alþingismenn og aðra sem eitthvað áhugavert hafa fram að færa og fjöll- um um ýmis mál sem varða starf SÁÁ og svo þau sem varða samfélagið hverju sinni. Eftir ffamsöguna spinnast svo oft líflegar umræður sem gaman er að taka þátt í eða hlýða á,“ segir Gunnar og víst er að óhætt er að leggja trúnað á orð hans því um það bil 150 manns hafa skráð sig í félagið þótt aðeins séu rúm tvö ár síðan það tók til starfa. Það má því segja að starfsemin hafi vaxið hratt og örugglega og margt gott hlotist af. Heiðursmenn á Norðurlandi „Hópur Heiðursmanna er orð- inn mjög sterkur og er góður bak- hjarl við starfsemi SÁÁ, en því mið- ur er hann einungis starfræktur á höfuðborgarsvæðinu eins og er en við erum nú að færa út kvíarnar og blása til fundar Heiðursmanna á Ákureyri í næsta mánuði svo menn á Norðurlandi geti stofnað sams- konar félagsskap. Ég sjálfur fór í meðferð 1980 og hef sem betur fer ekki farið út af brautinni síðan þannig að nú eru að verða 25 ár sem ég hef verið án áfengis. Ég hef tekið virkan þátt í samtökunum við ýmis sjálfboðaliða- störf frá 1981 en fyrir tveimur og hálfu ári tók ég til starfa sem ffam- kvæmdarstjóri Félags- og út- breiðslusviðs SÁÁ. Þannig hef ég get- að lagt mitt af mörkum til að vinna veg samtakanna sem mestan en það eru ótal menn og konur sem hafa unnið ómetanlegt starf innan þeirra og lagt grunninn að grasrót samtak- anna til framtíðar.” Þeir sem hafa áhuga á félagsskap Heiðursmanna SÁÁ geta haft sam- band við Gunnar Kvaran í netfangið kvaran@saa.is eða í síma 824-7610. karen@dv.is Bandarískir vísindamenn telja sig hafa fundið orsök samskynjunar Af hverju er A rautt og S gult? Talið er að allt að einn af hverjT um tvö þúsund séu haldnir allsér- stöku ástandi sem veldur því að skynfærin fimm blandast saman. Heitir það samskynjum og getur valdið því að sumir sjá ákveðna liti þegar þeir heyra tónlist eða lesa orð. Aðrir finna bragð af orðunum. Vísindamenn í Bandaríkjunum segja að rekja megi orsakir sam- skynjunar allt aftur til vistarinnar í móðurkvið. Heilataugum slær ein- L . ,PP. PPPPPPPPP, jji. pppppppppppr pppppppppppp pppppppppppp Ipppppppppppp Litakort eða nótnablað? Mismunandi litirgeta vakið mismunandi viðbrögð, til dæmis kallað fram mismunandi tegundir aftónlist. faldlega saman sem veldur því að fleiri heilastöðvar en venjulega verði virkar við eitthvað eitt ákveðið áreiti. Til dæmis ef einstaklingur sér töluna fimm, skrifaða í svörtu bleki á hvítan grunn, virkjar hann stöð í heilanum sem ber kennsl á tölur. Einstaklingur með samskynjun get- ur þá einnig virkjað aðrar stöðvar, tO dæmis litagrunninn, og kallar þessi ákveðna tala þá fram einhvern ákveðinn lit. Var heilastarfssemin könnuð hjá einstaklingum sem voru ýmist með samskynjun eða ekki og eru niður- stöður rannsóknarinnar byggðar á því. Það kom einnig í ljós að sumir þeirra sem eru með samskynjun eiga betur með að sjá og aðgreina liti. Segja vísindamennimir það enga tilviljun að samskynjun er átta sinnum algengari meðal lista- manna en annarra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.