Freyr - 01.03.1950, Síða 13
FRE YR
63
stálið að vera blandað öðrum málmi, svo
að sýrur fóðursins tæri það ekki á stuttum
tíma. Um skeið voru stálturnar notaðir
nokkuð í Þýzkalandi og Póllandi, en þeir
entust illa og reyndust því dýrir í notkun.
Turnar úr öðrum málmum hafa og verið
reyndir — um þessar mundir turnar úr
alumíníum. Þá þarf að styrkja mjög og
torvelt reynist að útiloka spennu þá er
myndast við snertingu málmsins og sýra
eða málma þeirra, sem í fóðrinu eru og
uppleysast í jurtasafanum. Um framtíð
þeirra skal engu spáð.
Gleraða stálturna er nú verið að reyna
vestanhafs.
Steinturnar.
Minnst hefir verið á turna, hlaðna úr
steinum, en ekki má búast við að þeir eigi
framtíð hér á landi, þó að annarsstaðar
hafi náð nokkurri útbreiðslu.
Hinsvegar má gera ráð fyrir, að turn-
byggingar úr steinsteypu, eigi framtíð
hér. Við notum yfirleitt innlent efni til
bygginga, svo sem mögulegt er. Og ef hér
verður byggð cementsverksmiðja, er ekki
að efa, að sú framtíð verður tryggð um
leið. Steinturninn er betri og nokkru dýr-
ari en timburturn, en í gjaldeyri er hann
ódýrari. Og þegar fengin er til aðstoðar
við bygginguna hin fullkomnasta aðferð,
sem ennþá er þekkt og tekin í notkun við
slíkar byggingaframkvæmdir, þá má gera
ráð fyrir, að á þessum vettvangi verði rudd
braut til bættrar fóðurverkunar hér á
landi. Vel gerður steinturn, járnbentur í
samræmi við þrýsting fóðursins hið innra
og hamfarir náttúruafla, sem stundum
geysa ægileg og ólm, er traust bygging og
varanleg, sem þarfnast lítils árlegs við-
halds, aðeins að strokið sé kalki innan-
vert á veggi, en það viðhald kostar smá-
muni og sáralitla fyrirhöfn.
Sumarið 1949 voru fyrstu turnarnir úr
steinsteypu reistir hér á landi, með hinni
svonefndu „concreto-aðferð,“ (hét áður
prometo-aðferð). Aðferð þessi á uppruna
sinn í Svíþjóð; var byrjað að nota hana
þar árið 1946 en nú hefir notkunarleyfi
aðferðarinnar verið selt til nokkurra landa,
Fyrsti steinsteypti votheysturninn hér á landi var
byggður í Oljúfurholti í Olfusi, í ágúst 19í9. Hann er
5 m í þvermál og I j m hár, eða 275 m að rúmmáli og
rúmar 36.000 fóðureiningar a. m. k. eða 20 kýrfóður.
þar á meðal til bæði Suður- og Norður-
Ameríku, en þar er hún tekin til meðferð-
ar um þessar mundir. Steypt er í stálmót-
um, og er það ekkert nýtt. Uppfinningin
felst í sjálfvirkum lyftiútbúnaði, þannig
fyrir komið, að mótin lyftast fyrir véla-
krafti jafnóðum og steypt er. Uppfinning
þessi er til orðin vegna tilmæla sænskra
búnaðarfélaga og landbúnaðarráðuneytis-
ins sænska, en hana á verkfræðingur að
nefni Emrik Lindman. Maður þessi er víð-
frægur uppfinningamaður, á yfir 20 „pat-
ent“ skrásett, sum vítt um heim, einkum
þau er snerta hergagnaiðnað.
Hér voru steyptir 9 turnar meö aðferð
þessari síðastliðið sumar. Aðferðinni hefir
Vilhjálmur Guðmundsson, verkfræðingur,