Freyr - 01.03.1950, Síða 21
FRE YR
71
verða svampkenndar. í hlýrri geymslu rotna
þær. Kjarnarotnun getur orsakast af bór-
vöntun og getur byrjað allsnemma í görð-
unum. Ef veikin er skæð rotnar rófan öll
innan, verður dökk, blaut, þefill og ónýt
með öllu. Sjá mynd III. Bórvöntun er al-
þekkt fyrirbrigði víða um lönd. Verður veik-
in jafnan skæðust í þurrkasumrum, eiknum
í sendinni eða kalkborinni jörð. Búfjárá-
burður og foraráburður draga heldur úr
veikinni. Sömuleiðis stækja = ammoníum-
súlfat. En kalk og kalkköfnunarefni auka
hættuna á bórskorti.
★
Varnir: Helzta varnarráðið er að bera á
bórax að vorinu. Af bóraxinu þarf mjög lít-
Bórvöntun.
I. Lengdarsneið af gulrófu.
11. Þversneið af gulrófu.
ið, aðeins um 15 kg á ha. Nauðsynlegt er að
bóraxið dreifist sem jafnast. Er auðveldast
að blanda því vandlega saman við tilbúna
áburðinn (súperfosfat, kalí eða saltpétur)
og dreifa því svo þannig með áburðinum.
Ef ekki er notaður tilbúinn áburður, dugar
vel að blanda bóraxinu í sand, svo að það
dreifist sem jafnast (2 gr á fermetra). Næg-
ir venjulega að bera bóraxið á annað hvort
ár.
Verði vart bórvöntunar þegar líður á sum-
arið, lánast oft vel að leysa bórax upp í
vatni og vökva síðan með blöndunni. 20 kg
bórax leyst upp í 100 1 vatns, nægir á einn
ha. Bóraxduftið gerir síður gagn svo seint,
og sízt ef þurrkar ganga. Of mikið bór getur
skemmt jurtirnar. Bórax hefir reynst lækna
bórvöntun (ef rétt er að farið) bæði hér á
landi og erlendis. Þess vegna ættu þeir, sem
varir hafa orðið við bórvöntun í görðum sín-
um að útvega sér bórax fyrir vorið og bera
það svo d með tilbúna áburðinum í vor.
Bórax mun fást hjá Áburðarverzlun ríkis-
ins. Bórvöntunar hefir ekki mikið orðið
vart hér á landi í öðrum jurtum en rófum.
Geta skal samt þess, að í gróðurhúsum hefir
stundum borið á bórskorti í tómatjurtum,
III. Bórskortur í gulrófu. Rófan er blaut og rotnuð
tnnan.