Freyr - 01.03.1950, Side 24
74
PRE YR
.4 Stekkjarjlötum í Eyjafirði var fyrsti steinturninn
byggður norðanlamjs, með concretóaðferð.
vegna þeirra, sem bóndinn þarf að svara.
Þessa pósta ber þó vitanlega að reikna með,
en þeir eru hátt metnir ef reiknað er með
kr. 700 í gjaldeyri á turn af nefndri stærð
og 2000 krónur vegna þessa til útgjalda fyr-
ir bóndann. (Aflvél og annar tækniútbún-
aður ekki talinn hér, hann kemur í stað
vinnu en ekki í stað efnis).
Að sjálfsögðu ber að taka tillit til þessara
útgjalda, bæði vegna þjóðfélagsins (gjald-
eyrir) og bóndans (bein útgjöld). Að óat-
huguðu máli er það segin saga, að stálmót,
með tilheyrandi tækniútbúnaði muni vera
hagkvæm í notkun fyrir íslendinga úr því
að skógauðugar þjóðir telja notkun þeirra
mikinn vinning, en þar kostar timbrið smá-
muni miðað við það er hér gerist.
Þegar tekið er tillit til nefndra talna í
mótakostnaði og þeim bætt við efniskostn-
að, sem í dæmum er sýnt, verður niðurstað-
an þessi:
Gjald- Verð d
eyris- sölustað
þörf hér
Kr. Kr.
Efni í votheysturn 2.068 6.110
Hluti í mótakostnaði 700 2.000
Samtals kr. 2.768 8 610
I turni: kostnaður á kýrfóður . . 261 783
I gryfjum: kostnaður á kýrfóður. . 467 1.220
Tölurnar þurfa ekki skýringa með. Efnis-
kostnaðurinn er samanlagt því nær tvöfalt
meiri þegar byggja skal margar hlöður iitl-
ar í stað einnar stórrar.
Um kostnaðinn, við byggingu turnanna,
er að segja, að áætlanir, sem gerðar voru
haustið 1948, sýndu, að 12 m turn, 4 m í
þvermál, mundi kosta fullger 18—19 þús-
und krónur.
Reynslan sýnir á Norðurlöndum, að
turnar af þessari stærð kosta þar kr. 10.000,
þ. e. sívalningurinn um 9.000 og þak og
stokkur tæplega 1.000 krónur.
Reynslan hér sýndi í sumar, að 12y2 met-
ers hár turn, 4 m í þvermál, kostar um 17
þúsund krónur, og er þá framlag heimilis,
vinna og fæðiskostnaður reiknað um 3000
krónur.
Þetta sýnir, að hér hefir bolurinn verið
byggður fyrir sem næst tvöfalt fleiri krón-
ur en hjá grannþjóðum okkar og má það
telja vel sloppið, því almennt mun kaup
og annað vera þrefalt dýrara hér en þar.
Eftir er þá stokkur og þak, en með sama
verðhlutfali ætti það að kosta 2.000 krónur.
Er þá turn af nefndri stærð kominn upp
á um 19 þúsund kr. eða um 1.700 krónur
fyrir hvert kýrfóður. í 14 m háum turnum,
5 m í þvermál, var kostnaðurinn samtals
um 1.300 kr. fyrir hvert kýrfóður.
Nemur kostnaður þessi mjög álíka upp-
hæð og tilsvarandi fóðurrými kostar í
þurrheyshlöðum, samkvæmt tölum þeim,
er Teiknistofa landbúnaðarins fær hvað-
anæfa af landinu.
Grannþjóðir okkar telja, að votheys-
hlaðan megi kosta a. m. k. 1 y2 sinnum
meira fyrir hvert kýrfóður en í þurrheys-