Freyr - 01.03.1950, Page 26
78
FRE YR
Húsmæðra-
þáltur
Á LÖNGUMÝRl
I öndverðum ágústmánuði, á síðastliðnu
sumri, kom ég í Skagafjörð. Þar hefi ég oft áð-
ur komið og dvalið, þó að langt sé síðan. En
ég hefi aldrei komið að Löngumýri fyrri en í
þetta sinn og gaf sú heimsókn mér tilefni til
að festa á blað nokkur atriði, sem greind eru
í eftirfarandi línum.
Þegar komið er að Varmahlíð, þar sem kross-
götur eru og víðsýni um hið fagra og frjósama
hérað, getur að líta á láglendinu, til vinstri við
veginn yfir Hólminn, reisulegar byggingar.
fyrst og fremst langhús með kvisti móti vestri,
en að baki því stórhýsi mikið, langtum stærra
en algengt er í sveit, og miðað er við venjuleg-
an búskap.
Það leynir sér ekki, að þarna, mitt á hinu
frjósama og víðáttumikla flatlendi, hlýtur að
vera unnið eitthvað það, sem gerir kröfu til
nokkurs húsrúms. Sú er og raunin á.
Sögur fóru fyrrum af því, að á Löngumýri
væri gott að búa, jörðin víðlend, nóg gras og
beit góð. Þar mun líka hafa verið búið all stórt
réttað í. Það er því gefið, að gj aldeyrisþörf-
in, vegna tækniútbúnaðar við fyllingu hárra
votheyshlaða, verður minni en vegna súg-
þurrkunar, miðað við sama fóðurmagn.
Eftir er þá að líta á vinning þann, sem
er við votheysverkun, samanborið við aðr-
ar aðferðir, og tel ég alls ekki þann
vinnusparnað, sem verða kann við votheys-
verkunina.
Á hinni víðfrægu tilraunastöð, Belts-
ville, í Bandaríkjunum, hafa tilraunir og
rannsóknir sýnt hve mikið þurrefni, pró-
tein og karótín, varð til fóðrunar af á-
kveðnu magni af grasi, en hlutfallstölurn-
ar voru þessar:
Þurrefni Prótein Karótín
grasi við slátt il fóðurs: 100 100 100
Vothey 83 85 34
Súgþurrkað hey .... 81 75 12
Vallþurrkað hey .... 75 69 3
Við tilraunir á Norðurlöndum hafa menn
fengið niðurstöður sem segja, að fóðurgild-
isrýrnun grassins sé 35—40%, þegar verk-
að er sem þurrhey, 22—27%, þegar verkað
er sem vothey í gryfjum, en 15—18% verk-
að sem vothey í turnum,
Samkvæmt því ættu 24.000 fóðureiningar
grængresis að verða 8,5 kýrfóður út úr
þurrheyshlöðu, 10 kýrfóður úr votheys-
gryfjum, en 10,9 kýrfóður úr turni, Er þá
gildistapið í turni reiknað 18%.
Þetta getur hver sem vill umreiknað í
krónur þegar gangverð fóðursins er þekkt
og 1.800 fóðureiningar eru ætlaðar í hverju
kýrfóðri. G.