Freyr - 01.03.1950, Side 27
FRE YR
77
um langt skeið. Og það er auðsætt að þar er
eitthvað um að vera þann dag í dag. Þar sjást
þó fáar kýr á beit og annar búsmali ekki nema
hross úti á Eylendi.
Víst er jörðin nytjuð að nokkru en sú starf-
semi, sem þar er sérstaklega áberandi þessi ár-
in, eru byggingaframkvæmdir og svo skólahald.
Já, þarna er skóli — húsmæðraskóli.
Frá veginum yfir Hólminn er verið að leggja
upphleyptan veg heim að Löngumýri. Gömlu
troðningarnir voru orðnir svo grafnir því að
síðustu árin hefir verið fjölförult heim að
Löngumýri, svo að nauðsynlegt þótti að byggja
veg þangað. Á síðasta sumri var flóð einu sinni
það mikið, að sums staðar var vatnsdýpið á
miðjar síður hestum þeim, sem fluttu fólkið
til samkomu, er þar var efnt til. En daginn
sem ég kom þarna komst bíllinn ekki heim að
bænum sökum þess, að jarðýtan hafði rutt til
svo að eigi var ökufært og ég naut aðstoðar
ýtustjóranna, hinna ötulu bræðra á Dýrfinna-
stöðum, til þess að ná á áfangastað.
Ég hitti þarna fyrirmannlegan öldung fyrst-
an manna. Jóhann á Löngumýri hefir búið þar
um áratugi við mikla rausn, en er nú hættur
búsforráðum. Ekki verður það séð af hinu frá-
lega fasi hans, eða andlegu atgjörvi, að hann
sé nú yfir áttrætt kominn. En það er hann
eigi að síður.
Þessi kempulegi öldungur býður mig velkom-
inn að garði og talið berst fljótlega að viðburð-
um dagsins, að ræktun lands og 'iýðs, að bygg-
ingum og búskap og hinu og þessu eins og
gengur.
Það er auðfundið, að hugur hans fylgir fram-
taki þar á staðnum þó að hjarta hans hafi eigi
lengur þrótt til að knýja blóðið um æðar líkam-
ans við erfiðisverk. Þess vegna hlýtur hann að
lúta veldi elli kerlingar og sinna færri líkam-
legum störfum en hann gjarnan vildi. En and-
inn er á ferð og flugi, hugurinn er við það,
sem þarna er verið að framkvæma, og það er
í rauninni ekkert lítilræði. „Það er nú ekki ég
sem stend í stórræðunum hérna, heldur er það
hún Ingibjörg mín,“ segir Jóhann, og það leyn-
ir sér ekki að fremur mun hann hvetja en letja
til athafna þeirra, sem þar eru gerðar á Löngu-
mýri.
★
Ingibjörg — núverandi húsmóðir og skóla-
stýra á Löngumýri — er dóttir þessa kempu-
lega öldungs. Það er ekki búreksturinn, sem
einkennir athafnirnar á þessari miklu jörð í
dag, heldur er það stofnun sú, sem þar er starf-
rækt, húsmæðraskólinn, sem Ingibjörg hefir
sett á fót og rekur nú hinn fimmta vetur.
Þessu merkilega framtaki einstaklings er á-
stæða til að kynnast nánar. Ég hefi ögn um
það frétt en sjón er sögu ríkari. Skólinn starf-
ar að vísu ekki um þetta leyti árs, en unnið er
að endurbótum og fullkomnun þeirra húsa-
kynna, sem byrjað var að reisa hér árið 1944
og haldið hefir verið áfram við síðan.
Ingibjörg Jóhannsdóttir var búin að stunda
kennslu og stjórn skóla áður en hún hóf starf-
ið á föðurleifð sinni. Á Staðarfelli í Dölum tók
hún við stjórn húsmæðraskólans árið 1937 og
var þar þangað til 1944 á hverjum vetri. Sum-
arið 1940 hafði hún þar barnaheimili, en næstu
sumur starfrækti hún það heima á Löngumýri.
Þar var húsakostur rúmbetri en venjulega er
á sveitaheimilum og því var vel tekið að safna
þangað barnahóp um sumarmánuðina.
En haustið 1944 fór Ingibjörg ekki að Stað-
arfelli heldur hóf byggingaframkvæmdir heima
og byrjaði skólahald þar næsta vetur. Kom þá
fljótt í ljós, að þörf var á meiri húsakynnum,
því að fleiri vildu þangað komast en hægt var
að veita rúm.
Það þarf áræði og það hlýtur að vera meira
en meðalkvenmaður, sem á eigin spýtur, á eig-
in ábyrgð, ræðst 1 að byggja stórt skólahús og
hefja skólahald í stærri stíl. En þetta gerði
Ingibjörg. Síðan hefir hún verið að byggja og
haft skólahald á veturna, já, eiginlega bæði
sumar og vetur, því að skólinn á Löngumýri
starfar 9 mánuði á ári. Þar er raflýsing frá
eigin orkuveri — olíumótor. Þar er enn verið
að byggja og móta og lagfæra. Það tekur sinn
tíma að skapa heilan skóla — stóran skóla —
á eigin ábyrgð og eigin reikning, þegar efnin
eru takmörkuð.
Á sjálfu skólahúsinu var byrjað árið 1947. Nú
er það allt tekið í notkun. Það er tvær hæðir
og svo rishæð. Á neðri hæðinni eru kennslu-
stofur og anddyri. Á næstu hæð eru herbergi
nemenda, en þakhæðin er ekki innréttuð enn.
Hugmynd Ingibjargar er að skapa þar húsa-
kynni með einkennum íslenzkrar baðstofu, þar