Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Þráðlaust í
Kringlunni
Kringlan býður gestum
sínum ekki aðeins að vafra
milli verslana og veitinga-
staða því í gær var opnuð
þráðlaus nettenging í versl-
unarmiðstöðinni. Þar með
getur almenningur með
fartölvur vafrað um á net-
inu, sýslað með tölvupóst
og miðlað gögnum sín á
milli án endurgjalds. Fjöl-
margar verslanir og kaffi-
hús víða um land bjóða
upp á slíka þjónustu en
Kringlan er nú orðin
stærsta þráðlausa netsvæði
landsins ætiað almenningi.
Friður í sókn
Eins og fram hefur kom-
ið í fréttum síðustu misseri
er Garðasókn
í Garðabæ
tviklofin í af-
stöðu til séra
Hans Mark-
úsar Haf-
steinssonar
fyrrverandi
sóknarprests
og hafa raddir verið uppi
um að Hans Markús hafi
lent á milli tveggja
pólistískra afla í bæjarfélag-
inu. Á fjöimennum aðal-
safnaðarfundi á þriðjudag-
inn lutu stuðningsmenn
Hans Markúsar í lægra
haldi í kosningum til sókn-
amefndar og telja margir
að langvinnri deilu sé nú
lokið.
Astralíu
Björgólfur Thor Björgólfs-
son, sem er einn af fimm
hundmð rikustu mönnum
heims að mati bandaríska
tímaritsins Forbes, er ekki
staddur í Sydney í ÁstraKu
þessa dagana þar sem Steve
Forbes, ritstjóri Forbes,
heldur ráðstefnu fyrir 350
valdamestu mennina í við-
skiptalífinu. Ásgeir Friðgeirs-
son, almannatengill Björg-
ólfs Thors, sagði í samtali við
DV í gær að Björgólfur Thor
væri ekki á ráðstefnunni í
Sydney. Ásgeir sagði að
hann fengi aragrúa af boð-
um á hinar og þessar ráð-
stefnur en hann vissi ekki
hvort skjólstæðingi sínum
hefði verið boðið á þessa.
Knattspyrnumaðurinn Arnar Gunnlaugsson slær í gegn í skemmtanalífi borgarinn-
ar. Eftir að ljóst varð að knattspyrnuferill hans væri á enda hefur Arnar sést æ
oftar úti á lífinu. Þar skín stjarna hans skært, eins og um síðustu helgi þegar hann
skemmti sér með Fazmoklíkunni alræmdu.
larinn á
„Jú, maður er hættur
í boltanum. Það er
samt nóg að gera.
Lífíð og heilsan."
„Ég var bara úti að skemmta mér. Er það nokkuð bannað?" spyr
knattspyrnuhetjan Arnar Gunnlaugsson sem hefur undanfarið
vakið mikla athygli í skemmtanalífi borgarinnar. Fyrir viku til-
kynnti Arnar að hann væri hættur í fótboltanum. Hann viU ekki
svara hvort hið ljúfa líf hafi átt sinn þátt í því.
„Nei, ég vil ekkert kommentera á
það. Nema að það sé algjört bull,"
segir Amar sem fékk fá tækifæri með
liði KR í sumar. Meiðsli og erfiðleik-
ar áttu sinn þátt í því að Arnar fékk
að verma bekkinn. Þessi fyrrverandi
markaskorari sýndi því ekki sitt rétta
andlit. Vonbrigðin voru mikil.
„Jú, maður er hættur í boltan-
um," segir Amar. „Það er samt nóg
að gera. Lífið og heilsan."
Athafnamaður
Það em orð að sönnu. Amar,
ásamt Bjarka bróður hans og Guðna
Bergssyni, er umfangsmikill á sviði
fasteignaviðskipta. Nýverið festu
þeir kaup á gamla DV-húsinu í Þver-
holti og er ætlunin að breyta því í
stórt hótel. Einnig hefur Arnar verið
atkvæðamikill í Hafnarfirði þar sem
hann hefur fest kaup á fasteignum í
hjarta bæjarins. Þeir sem þekkja vel
til Arnars segja hann vart hafa tíma
til að telja peningana sem streymi
inn. Svo vel gangi.
Flottur í tauinu
En þó nóg sé af peningum em
þeir ekki allt. Eftir því sem leið á
sumarið og tækifæmm Arnars til að
setja mark sitt á leik KR fækkaði sást
hann æ meir á skemmtistöðum
borgarinnar. Þar er Arnar sönn
stjarna eins og myndin af honum,
sem tekin var síðastliðinn laugar-
dag, sýnir glögglega. Jakkann segist
Arnar kannast við; eins konar loð-
feld sem myndi sæma sér vel á
Hollywood-stjörnu. Og sæmir sjálf-
um Arnari Gunnlaugssyni afar vel.
Þrálát meiðsl
Eins og áður hefur komið fram
vildi Amar lítið tjá sig um skemmt-
analífið fýrir utan að spyrja hvort
ekki væri í lagi að „skemmta sér".
Lfldegra er þó að ástæðan fyrir brott-
hvarfi Amars sé hin þrálátu meiðsl
sem hafa fylgt honum síðustu ár.
„Þetta er núna í þriðja sinn á tæpu
ári sem ég fer í aðgerð vegna ökkl-
ans," sagði Bjarki í viðtali við DV í
síðustu viku. „Ég var nú að taka
þetta saman um daginn og ætli ég
Þegar allt lék f lyndi Arnar hefur á glæst-
an feril I knattspyrnunhi.
hafi ekki lagst sjö eða átta sinnum
undir hnífinn á mínum knatt-
spymuferli."
simon@dv.is
Arnar Gunnlaugsson
á Kaffi Oliver Myndin
er tekin af vefFazmo-
klíkunnar alræmdu.
Setjum dómarana í fangelsi
Dómskerfið á íslandi er nánast
einn stór brandari. Svarthöfði veit
fátt skemmtilegra en að lesa um nýj-
ustu dómana frá héraðsdómurum
landsins sem virðast keppast um að
toppa hvern annan í vitleysunni.
Einn sá versti er Guðjón Marteins-
son sem dæmdi andlega vanheilan
mann í 45 daga fangelsi fyrir að stela
7.000 krónum. Kannski sá dómur
lýsi betur þeim sem kvað hann upp
en þeim sem framdi brotið.
Þetta er þó ekki einsdæmi. Svart-
höfði man vel eftir dómaranum í
Hafnarfirði, Guðmundi L. Jóhannes-
sem lenti í því að dæma mál
u
Svarthöfdi
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bara flnt/'segir Hannes Óli Ágústsson leiklistarnemi.„Ég var að
byrja íspennandi námi og ég hlakka til vetrarins enda eru skemmtilegir krakkar
með mér f skólanum sem ég hefverið að kynnastundanfarið. Það er enginn bú-
inn að stinga upp á að við förum allsber ísturtu ennþá en ég mun ekki skorast
undan þegar aö því kemur. “
manns sem viðurkenndi að hafa
barið konuna sína. Guðmundur
kvað upp mjög sanngjarnan dóm.
Sagði konuna sjálfa hafa átt sök á of-
beldinu þar sem maðurinn hefði
haldið að konan væri að halda fram-
hjá. Því hefði konan sjálf átt að hluta
tÚ sök á ofbeldinu.
Svona vitleysisrökfærslur eru al-
gengar í dómskerfinu. Magnús Ein-
arsson, sem varð konu sinni að bana
í Kópavoginum, var líka þjakaður af
afbrýðisemi. Því var refsingin
minnkuð. Grétar líkmaður í Nes-
kaupstaðarmálinu komst að því að
best er aö ljúga. Hann fékk sama
dóm og félagar hans tveir sem neit-
uðu þó alltaf sök og reyndu að villa
um íýrir lögreglu.
Mesta vitleysan að mati Svart-
höfða er þó harkan í að negla smá-
krimmana. Því stærri glæpi sem þú
fremur því vægar er tekið á þér.
Hvað sýnir það betur en maðurinn
sem stal 7.000 kalli og þarf að eyða
næstu vikum á Litía-Hrauni meðan
siðleysingjar eins og Árni Johnsen
skemmta sér við höggmyndagerð á
Kvíabryggju.
Svarthöföi