Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Qupperneq 14
74 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
66 karöt
Demantaverslunarfélag-
ið DTC og suðurafríska
sendiráðið í Japan standa
nú fyrir demantasýningu í
Tókýó. Þar er þessi Loose-
demantur til sýnis en hann
þykir fullkominn að innri
gerð og er 66,595 karöt.
Kostar enda um milljarð
króna. Demantasýningin er
til styrktar góðgerðarstofn-
un fyrir suðurafrísk börn.
Árfrá Beslan
Stærðfræðikennarinn
Nina Isenova grét við gröf
gamals nemanda síns í
Beslan-kirkjugarðinum í
Rússlandi í gær. í dag er
eitt ár frá því hryðjuverka-
menn frömdu fjöldamorð í
grunnskóla í Beslan. Sorg
ríkti úti um allan heim í
kjölfarið og vekur atvikið
enn spurningar um stefnu
Rússlands í málefnum
Tjetjéníu.
Djöflar í hættu
Hinir frægu Tasmaníu-
djöflar, dýrategundin sem
lifir aðeins á eyjunni
Tasmaníu undan Ástralíu,
eru í hættu. Sjúkdómur
sem veldur æxli á höfði
heijar á djöflana og falla
þeir í hrönnum. Dýralækn-
ar reyna því að bjarga sem
flestum djöflum með því
halda þeim í sundur.
Alltaf reynir
Ken Clarke
íhaldsmaðurinn Ken
Clarke hitti stuðningsmenn
sína í Westminster í
London í gær. Hann til-
kynnti formlega framboð
sitt til formanns breska
íhaldsflokksins. Clarke, sem
var fjármálaráðherra í ríkis-
stjóm Margétar Thatcher,
hefur tvisvar sinnum áður
sóst eftir embættinu en
ekki náð kjöri.
Tæplega fjögur þúsund hermenn úr þjóðvarðliði Bandaríkj-
anna komu til New Orleans í gær. Alger upplausn ríkir í
borginni. Þjófar ræna úr verslunum og samviskusamir
borgarar skjóta á þá úr byssum. Yfirvöld geta lítið annað
gert en að bjarga fleirum og telja hina látnu.
Á meðan björgunarsveitir em
uppteknar við að bjarga fólki af
húsþökum með bátum og þyrlum
fljóta lík annarra framhjá. Állt að
sex metra djúpt vatn er nú í New
Orleans en um 80 prósent borgar-
innar em á kafi.
rokið upp og varð mikið uppnám
vegna þess í kauphöllinni í New
York í gær og fyrradag.
Eins og kjarnorku-
sprenging
Katrina skall á Louisiana-fylki
á mánudag með gríðarlegum
krafti. Mississippi, Alabama og
vesturhluti Flórída urðu einnig
harkalega fyrir barðinu á felli-
bylnum.
Fellibylnum fylgdi um tíu
metra hár stormveggur, sem
hreinsaði allt meðfrem strönd-
inni. Þar stendur varla stakt hús
eftir. „Þetta er eins og eftir kjarn-
orkusprengingu," sagði Haley
Barbour, fylkisstjóri Mississippi.
Varaolíubirgðir notaðar
Verið er að reyna að byggja
varnir borgarinnar að nýju þannig
að vatnið hætti að flæða inn. Talið
er að í kvöld, fimmtudagskvöld,
verði ástandið mun skárra.
Fellibylurinn stöðvaði alla
olíuframleiðslu í kringum Mexí-
kóflóa. Bandaríkjastjórn er nú
þegar byrjuð að nota varaolíu-
birgðir sínar. Oh'uverð hefur því
Kallað á hjálp Fjölmargir eru
ennþá strandaglópar á húsþök-
um heimila sinna. Sumirþurfa á
læknishjálp að halda en komast
hvergi. Vatnið er vlða orðið olíu-
mengað.
New Orleans undir vatni
Svona var ástandið austan
við miðborg New Orteans í
gær. Allt að 80 prósent af
New Orleans lenti undir um
sex metra djúpu vatni úr
Ponchartrain-stöðuvatninu.
Lík á veginum Vegfarandi
skoðar lik i bænum Biloxi I
Mississippi. Ekki er vitað
hversu margir létu lífið en
þeirskipta hundruðum.
VELASALAN
SPORTVEIÐIBÁTAR £|í
með Volkswagen Marine pj
dísilvél og hefðbundnum
skrúfubúnaði
Ánanaustum 1, Reykjavík. Sími 580-5300.
www.velasalan.is velasalan@velasalan.is