Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Page 16
76 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER2005
Sport DV
LANDSBANKADEILDIN
HMi
i -í
m
m-i'
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
hefur ekki fengið mörg tæki-
færi í framlínu Skagamanna í
sumar, en í síðustu viku minnti
hann rækilega á sig þegar hann
skoraði bæði mörk ÍA í sigri á
íslandsmeisturum FH. Sigurð-
ur upplifði þá eina eftirminni-
legustu viku ævi sinnar, því
nokkrum dögum áður hafði
hann eignast sitt fyrsta barn.
Eftir erfitt sumar þar sem hann
hefur fengið fá tækifæri í leikjum
Skagamanna minnti Sigurður
Ragnar heldur betur á sig í síðustu
tveimur sigurleikjum ÍA sem voru
mikilvægir í baráttunni fyrir að
komast inn í Evrópukeppnina næsta
sumar.
Beint á fæðingardeildina
„Það er ekki hægt að segja annað
en að þetta hafi verið eftirminnileg
vika fyrir mig," sagði Sigurður.
„Ég kom inn á sem varamaður
gegn Keflavík í leiknum á undan
viðureigninni við FH og náði að
skora sigurmarkið okkar í þeim leik.
Eftir það brunaði ég svo beint á fæð-
ingardeildina þar sem konan mín
eignaðist litla stúlku, þannig að þetta
var ótrúleg upplifun," sagði Sigurður
Ragnar.
„Ég hef nú ekki fengið mikið að
spila í sumar, því Ólafur þjálfari hef-
ur verið að keyra mikið á sömu
mönnum í þessar stöður fremst á
vellinum og þótti ekki ástæða til að
breyta því mikið. Hann hefur stund-
um geflð mönnum séns ef þeir hafa
skorað og svona, en þó ég hafi skor-
að á móti Keflavík þýddi það ekkert
endilega að ég kæmist í byrjunarlið-
ið á móti FH. Mér finnst persónulega
betra að byrja inn á en að vera á
bekknum," sagði Sigurður, en hann
fór í fæðingarorlof úr vinnunni um
leið og stúlkan fæddist. Þá tóku við
nokkrar vökunætur og hann sagðist
hafa verið ansi þreyttur á síðustu æf-
ingunrú fyrir FH-leikinn.
Erfiðir dagar
„Mér leið eins og ég hefði verið
nýbúinn að keppa í maraþonhiaupi
eftir síðustu æfinguna, en svo leyfði
konan mér að sofa út á leikdag,
þannig að ég var orðinn frískur þeg-
ar í ljós kom að ég yrði í byrjunarlið-
inu gegn FH. Það var síðan mjög eft-
irminnilegur leikur og ótrúlega gam-
an að skora bæði mörkin gegn fs-
landsmeisturunum, sem margir
voru að spá að ynnu alla leiki sína í
sumar," sagði Sigurður, en fyrra
mark hans í leiknum var eitt það
glæsilegasta sem skorað hefur verið
á íslandsmótinu í sumar og ekki voru
fagnaðarlætin sfðri hjá honum og fé-
lögum hans, þar sem þeir röðuðu sér
upp við hliðarlínuna og mynduðu
handahreyfingar eins og þeir væru
að rugga litlu barni.
Vöggu„fagnið"
„Já, þetta var nokkuð gott mark
og líklega eitt það flottasta sem ég
hef skorað. Ég var nú ekki búinn að
skipuleggja þetta „fagn“ neitt sér-
staídega, en í hita augnabliksins
ákvað ég að gera þetta og félagarnir
tóku undir það með mér. Þetta var
meiriháttar skemmtilegt og þetta var
meira að segja eini leikurinn sem
mamma hefur mætt til að horfa á í
sumar, þannig að það gerði þetta
enn skemmtilegra. Svo hefur fólk
verið að koma til mín úr öllum áttum
og óska mér til hamingju með
stelpuna og með að hafa unnið FH.
Það voru margir sem töldu kominn
tíma á að þeir töpuðu leik og ekki síst
bara við Skagamenn, því við áttum
harma að hefna síðan í bikarnum,"
sagði hinn nýbakaði faðir, Sigurður
Ragnar Eyjólfsson.
baldur@dv.is
I -v • ’
III
P. í l f
s ■ jgs
JSU' KmfMBU
15? v>:' 0$ f,\d f? 151
Bjarki
Guðmundsson
(3)
árí Steinn
Reynisson (2)
Gunnlaugur
Jónsson (3)
Markapabbinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson fórákost-
Fallnir í þriðja sinn á aðeins sjö árum
Óli Stefán
Flóventsson (2)
Bjarni Geir
Viðarsson
Hans Mathiesen (4)
Hólmar Örn
Rúnarsson (3)
/-*»s Þróttarar hafa aðeins fengið eitt stig út úr
(4 4 fimm síðustu leikjum sínum og eru (kjölfar-
^ ið fallnir (1. deild í þriðja sinn á sjö árum.
Þróttur hefur ekki haldið sér í efstu deild sfðan
sumarið 1984 þegar liðið endaði í 8. sæti. Þróttur
fékk fjögur stig út úr fyrstu tveimur leikjunum und-
ir stjórn Atla Eðvaldssonar.
Atli Jóhannsson
Grétar Hjartarson (3)
Fylkismenn hafa náð í 80% stiga sinna í
sumar utan Árbæjarins. Fylkir hefur tap-
að fjórum heimaleikjum í röð og alls sex
af átta heimaleikjum sfnum f Landsbankadeild-
inni á þessu tímabili. Árbæjarliðið hefur því
náð í 16 af 20 stigum sfnum f þeim átta úti-
leikjum sem þeir hafa spilað í sumar.Tapið
gegn Keflavík í 16. umferðinni var jafnframt
fimmta deildartap liðsins f sfðustu sex leikj-
um en markatala Fylkis í þessum sex leikj-
um er 5-12 þeim f óhag.
Garðar Jóhannsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson (2)
FH-ingar voru búnir að leika 31
deildarleik f röð þegar þeirtöp-
uðu 1 -2 fyrir (A á Akranesi. FH-
liðið var einnig búið að vinna 18 deildarleiki í röð
og síðustu 12 deildarleiki sína á útivelli. Skaga-
menn hafa hinsvegar ekki tapað heimaleik fyrir FH
í deildinni sfðan 1990 en síðan hafa FH-ingar farið í
9 ferðir í röð upp á Skaga án þess að koma með
þrjú stig til baka.
s KR hefur unnið þrjá síðustu leiki sína und-
4 ir stjórn Sigursteins Gfslasonar eftir að
^ hafa tapað fyrsta leiknum á útivelli gegn
(slandsmeisturum FH. KR vann aðeins tvo leiki f
sfðustu tíu deildarleikjunum undir stjórn Magnúsar
Gylfasonar. Markatala KR f sfðustu þremur leikjum
er 5-1 og f tveimur þeirra hefur liðið haldið hreinu.
Keflvfkingar hafa unniðfimmafsexsigr-
(4 4 um sínum f Landsbankadeildinni á útivelli.
^ þar hafa þeir unnið f Eyjum, á Akranesi, á
KR-velli og á Fylkisvelli sem hafa að mati flestra
verið erfiðustu útileikir hvers tímabils. Keflavík hef-
ur aðeins tapað einum af átta útileikjum sínum
gegn (slandsmeisturum FH.