Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Side 17
W Sport
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 17
mÓ"Ökur Michael 0wen fékk höfðinglegar
mottokur hja stuðnmgsmönnum Newcastle ígeer.
n ________________ Nordic photos/Getty
Lee samdi við
Tottenham
Lee Young-Pyo hefur samið við
Tottenham en hann var áður á
mála hjá PSV Eindhoven. Lee er
suður-kóreskur landsliðsmaður
sem leikur í stöðu vinstri bakvarð-
ar en hann er mikil sljama í sínu
heimalandi eftir að Suður-Kórea
komst í undanúrslit heimsmeist-
arakeppninnar árið 2002. Lee mun
koma til með að leysa Erik Edman
af hólmi sem var ( gær seldur til
Rennes fyrir 2,4 miiljónir punda,
en talið er að Lee hafi kostað
Tottenham 1,35 milljónir punda.
Martin Jol, stjóri Tottenham, var
mjög ánægður með komu Lee til
félagsins. „Hann er besti vinstri
bakvörður í hollensku deildinni og
mörg ítölsk félög höfðu áhuga á
honum.“
Vander
Meyde til
Everton
Hollenski vængmaðurinn Andy
van der Meyde hefur gengið frá
samningi um að ganga til liðs við
Everton frá Inter Milan en
hann gekkst undir læknis-
skoðun í gær. Ham^á^^^
aö stríða cn fxfc
lcikið með liðinu ■
síðar í mánuðinmn. jp
hollenskur lands-f
liðsmaður en hann Æi
hóf ferill sinn hjá JR
Ajax /Ymster- JSK? /
dam. Hann var
ánægður með . _ ]
félagaskiptin. **
„Ég hef trú á liðinu og knatt-
spyrnustjóranum og tel að árið
verði gott hjá okkur," sagði van der
Meyde.
Lokað var fyrir félagaskipti á þessu ári á miðnætti í nótt og var því mikill handa-
gangur í öskjunni í gær. Stærsta fréttin er þó enn koma Michaels Owen til
Newcastle, en þá kom einnig í ljós að Jermaine Jenas var seldur frá Newcastle til
Tottenham fyrir sjö milljónir punda.
„Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt, “ sagði Michael Owen eftir að
hafa verið hylltur af 20 þúsund áhangendum Newcastle á St.
James’ Park, heimavelli liðsins. Owen skrifaði undir fjögurra ára
samning við Newcastle í gær og greindi frá því að Alan Shearer
“ i átt stærstan hluta í ákvörðun hans um að ganga til liðs við
„Hann hefur verið góður vinur í
langan tíma,“ sagði Owen um
Shearer. „Þetta er síðasta tímabil
hans sem leikmaður og verður það
mikill heiður að fá að spila með hon-
um.“ Shearer mun meira að segja
hafa boðið Owen skyrtunúmerið
sitt, númer níu, en Owen hafi hafn-
að því, enda mun hann bera númer-
ið tíu, rétt eins og hann gerði hjá
Liverpool.
Forráðamenn Newcastle, þjálfari
og fyrirliðinn Shearer hittu Owen á
risastóru sveitasetri og mun þessi
glæsilega móttaka ásamt sannfær-
ingarkrafti Shearers hafa orðið til
þess að Owen gat tekið þessa
ákvörðun. „Ég vildi spila hjá félagi
sem hafði mikinn áhuga á að fá mig.
Og eftir þennan frábæra fund var ég
búinn að gera upp hug minn."
Jenas til Tottenham
Hinn 22ja ára miðvallarleikmað-
ur var í gær seldur til Tottenham frá
Newcastle fyrir átta milljónir punda,
en leikmaðurinn lýsti yfir óánægju
sinni hjá Newcastle í haust og vildi
fara frá félaginu. Graeme Souness,
stjóri liðsins, var ekki sáttur við að
Jenas skyldi fara en virti ákvörðun
hans. „Við vildum ekki sleppa hon-
um en hann er stór strákur og þetta
var hans ákvörðun," sagði Souness.
Jenas var um tíma orðaður við
Arsenal en Arsene Wenger, stjóri
liðsins, hafði ekki áhuga á kappan-
um.
Það voru fleiri félagaskipti á dag-
skrá Tottenham í gær, en félagið
seldi norska bakvörðinn Erik Edman
til franska félagsins Rennes. Þá var
Robbie Keane einnig sterklega orð-
aður við Everton en staðfesting á því
hafði ekki birst áður en blaðið fór í
prentun.
Sabrosa á leið til Anfield
Portúgalski vængmaðurinn
Simao Sabrosa fékk í gær leyfi til að
fljúga til Englands svo hann gæti
gengist undir læknisskoðun hjá
Liverpool. Það leit því út fyrir að
þessi 25 ára ára gamli leilönaður
Benfica yrði senn kominn í rauðu
skyrtuna á Anfield. Talið er að hann
kosti tíu milljónir punda en félagið
seldi á dögunum Milan Baros til
Aston Villa fyrir 6,5 milljónir punda.
eirikurst@dv.is
Wigan fær
Connolly
Nýiiðar Wigan keyptu í gær
írska landsliðsmanninn David
Connolly fyrir tvær milljónir
punda ffá Leicester City, sem leik-
ur í ensku 1. deildinni. Verðmið-
inn hækkar reyndar um eina millj-
ón punda ef félaginu tekst að
halda sér uppi í úrvalsdeildinnL
Connelly er 28 ára sóknarmaður
sem hefur nú þegar skorað fimm
mörk fyrir Leicester á tímabilinu.
Þá klófesti Portsmouth portú-
galska unglingalandsliðsmanninn
Frank Songo’o frá Barcelona fyrir
rúm 200 þúsund pund. Verðið
hækkar þó ef Songo’o spilar nógu
mikið og þá mim Barcelona fá 20%
af söluvirði hans verði hann seldur
á samningstímanum.
Poom lánað-
ur til Arsenal
Eistneski markvörðurinn Mart
Poom hefur verið lánaður ffá
Sunderland til Arsenal. Láns-
samningur hans nær til loka ársins
en sá möguleiki er fyrir hendi að
hann verði hjá Arsenal út tímabil-
ið. Þessi 33 ára landsliðsmaður
Eistlands hefur ekki spilað síðan í
október á síðasta ári er haim varð
fyrir meiðslum á hné og hann hef-
ur þurft að dúsa á bekknum hjá
' . Sunderland í haust en
i -.‘.'jS Kelvis Dav- —^|jj|
is hef*
IHhk. JrSSI ur verið á
j milli stanganna hjá
ÍSunderland. Poom
f var áður á mála hjá
Ðerby County.
Grétar Rafn Steinsson klæðist rauðu:
Þriggja ára samningur
hjá Grétari
Klæðist rauðu f ár Grétar
Rafn Steinsson í búningiAZ
Alkmaar i gær.
DV-mynd Erik van Leeuwen
iÉ
í gær var gengið frá þriggja ára
samningi Grétars Rafns Steinsson-
ar við hollenska toppliðið AZ Alk-
maar. Samningurinn býður einnig
upp á möguleika um tveggja ára
framlengingu samningsins, en
kaupverðið var ekki gefið upp.
Hann lék áður með Young Boys
svissnesku úrvalsdefidinni en
fréttir af brottför Grétars frá félag-
inu komu mörgum stuðningsmönn-
um félagsins í opna skjöldu, en hann
þykir mjög vinsæll meðal þeirra.
Forseti félagsins furðaði sig einnig á
ákvörðun Grétars en hann sagði að
þeir hefðu aUt vUjað gera fyrir Grétar
sem vildi þó ekki láta segjast.
Sjálfur er Grétar hæstánægður
með nýja félagið sitt en hann
segir að þetta sé stórt
skref fyrir hann
og einstakt
tækifæri.
GRUNNNÁM í
M YNDBA NDAVINNSL il
- stafræn hlippning og cftirvinnsla
Ert þú eínn afþeínt sem áttstaffæna upptökuvéí og
langar tit a ð tæra að vinna e fntð og gera það sem
sölumaðurínn sagðí að hægt værí að geraf
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á
undirstöðuatriðum myndbandsgerðar allt frá því að breyta
hugmynd í handrit og fínpússa myndbönd með ýmsum effektum.
Nemendur verða að hafa góða almenna tölvukunnáttu og æskilegt
er að nemendur eigi eða hafi aðgang að stafrænni tökuvél.
Kennt er á Premiere klippiforritið
frá Adobe sem er eitt visælasta
forritið á markaðnum í dag.
■ Kvöldnámskeið
Mán. & mið. 18-22
og laugard. frá 13 - 17
Byrjar 3. og lýkur 14. sept. _
------------------------------------ntv.is =
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS