Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005
Ást og samlíf 0V
Það er gaman að eyða notalegum
stundum í ást og rómantík með
makanum. Gallinn er þó sá að stund-
um fær maður engar góðar hugdettur
sem maður getur framkvæmt með mak-
anum. DV fór á stúfana og fékk fjölda
góðra hugmynda að rómantískum ferð-
um hjá ástföngnum álitsgjöfum.
Kæra Raggal
Ég er í vandræðum með karlinn
minn. Hann vill stöðugt vera að og
ég hef ekki alveg orku í svona lag-
að. Forsaga málsins er að hann
hefur verið frekar þunglyndur und-
anfarin ár og satt að segja ekki mik-
ið fyrir læti í rúminu. Við gerðum
það kannski tvisvar í mánuði og ég
var svosem alveg sátt. Svo loksins
dreif hann sig til læknis og kom út
úr skápnum með þunglyndið og
byrjaði að taka lyf. Og viti menn, á
þriðja mánuði var hann búinn að
hressast allsvakalega og orðinn
ffam úr hófi graður. Núna hefur
hann meira að segja vakið mig um
nætur með munnmökum sem hafa
svo leitt til samfara. Kannski ætti
ég bara að gleðjast, og auðvitað
geri ég það að vissu marki, en samt
er ég dálítið þreytt á þessu. Ég er í
fullri vinnu og sé að mestu leyti um
börnin,
bæði eru
grunnskóla-
aldri, og
heimilið (ei
reyndar betri í því), hann tekur
dugnaðarsyrpur í garðinum og
þrífur bílinn en dags dag-
lega er það ég sem læt
hlutina rúlla. Ég hef
ekki orku í allt
kynlífið l£ka. Svo
hélt ég að þessi
nýju þunglynd-
islyf hefðu frek-
ar áhrif í hina átt-
ina. Hvað á ég að
gera, kæra Ragga?
Kveöja,
Orkulausa
konan
og þú horfir á LOST á meðan. Svo
kelið þið fyrir svefninn og hver
veit nema hann vekji þig aftur
með munngælum. Dásamlegt!
Með því að hann taki meiri
þátt í heimilisstörfúnum nálg-
ist þið líka frekar einhvers kon-
ar orkujafnvægi, þú hvílist og
færð meiri orku til að njóta kyn-
lífsins, hann þrælar og losar sig við
eitthvað af allri sinni umframorku
sem hann hefur verið að fá útrás fyr-
ir í kynlífinu upp á síðkastið.
Mín kæra, þú átt dásamlega tíma
framundan. Gættu þín bara á gryfj-
unni sem margar kynsystur okkar
falla í þegar reynt er að koma jafn-
vægi á heimilisstörfin - að þurfa að
stjórna öllu. Leyfðu honum að gera
hlutina á sinn hátt og gerðu hlutina
á þinn hátt þegar þú átt leik. Ég er
viss um að þetta á eftir að ganga
glimrandi vel.
Góöar stundir,
Kærakona!
Nú er kjörið tækifæri til að end-
ursemja um verkaskiptingu á heim-
ilinu. Þú hefur í höndunum biss-
nesskeis sem getur ekki klikkað. Ef
launin fyrir uppvask, eldamennsku
og annað heimilisstúss er meira og
betra kynlíf held ég að hann muni
spila með án nokkurra vandkvæða.
Spáðu í hvað þú færð út úr þessu -
afslöppun með tærnar upp í loft og
góða bók í höndunum á meðan
hann skellir kartöflum í pott og kjöt-
bollum á pönnuna og virkjar krakk-
ana í að leggja á borð. Svo háttar
hann og burstar og les fyrir börnin
P.s. það er rétt hjá þér að nýrri
tegundir þunglyndislyfja valda
gjarnan kyndeyfð og fullnægingar-
truflunum bæði hjá konum ogkörl-
um. Þetta er reyndar mjög einstak-
lingsbundið og karlinn þinn er
greinilega einn afþeim heppnu!
beislað á veiðum
„Það er fátt rómantískara fyrir pör en að fara saman í laxveiði,"
segir sjónvarpskonan góðkunna Inga Lind og skellir upp úr eins og
henni einni er lagið. „Þetta er satt, hvað er rómantískara en maður og
kona samankomin við á að reyna að beisla saman lífið úr ólgandi
straumnum?" segir Inga og gerist skáldleg í tali. Hún segist afar leið
á öllum klisjum um að fara út að borða en útiveran og veiðin séu
rómantíkin eins og hún gerist best. Hún kýs þó að skjóta þvi að
blaðamanni að þetta gildi aðeins um ferðir með eiginmanninum,
hún hafi engar sérstakar áhyggjur af því að
rómantíkin heltaki hann í veiðiferðum
með félögunum.
Inga segir fátt jafnast á við að
vera úti í náttúrunni, velgirtur í
vöðlum og fá roða í kinnarnar.
Veiðarnar séu í raun einu stund-
irnar þar sem fólk sé úti allan dag-
inn og því hafi fólk mjög gott af.
„Þetta er eitthvað sem ég get
mælt með við alla. Það er ekki'
nauðsynlegt að fara í dýrustu
árnar. Það er bara svo mikil róm-
antík í öOu sem þessu tengist,
bara það að maula saman
kexpakka í bflnum og koma
þreytt heim er
æðislegt," seg-
ir Inga að
vanda kát í
bragði.
Inga Lind Segistþreytt
á klisjum um rómantík,
hina einu sönnu sé að
fínna i veiðiferðum.
I
SiJSI
stórum sumarbústað
með allri fjölskyldunni
„Ferð í sumarbústað finnst mér mjög rómantísk ég er einmitt
staddur í einni slíkri þessa stundina," segir Þröstur Leó Gunnarsson
leikari en í bakgrunni má glöggt heyra glaðlegar raddir annarra ferða-
félaga hans. „Það er svo gaman að fara út í sveit, elda góðan mat og
bara allt þetta sem fylgir góðum ferðum," segir Þröstur sem segist njóta
þess að reyna fyrir sér í eldhúsinu í bústaðnum. Hann taki þá gjaman
með sér uppskriftabækur og reyni að útbúa eitthvað nýtt og spennandi
sem sjaldan er eldað hversdags.
„Við reynum allskyns mat, auðvitað kemur sttmdum fyrir að þetta
tekst ekki alveg eins vel og maður vildi en það
gerir ekkert til," segir Þröstur Leó hlæj-
andi, sannfærður um að það sé við-
leitnin sem gildi í þessum málum.
Þresti þykir haustið afar rómantísk-
ur tími og fátt notalegra en að fara
út í heitan pott í smá regnúða eins og
drýpur nú þýðlega á flesta lands-
menn. Einnig bætir hann við að hon-
um þyki ekki skilyrði fyrir rómantískri
ferð að vera einn með maka heldur segist
hann helst vilja taka öll börnin með.
Þröstur Leó Gunnars-
son Segist njóta þess að
gera tilraunir I eldhúsinu í I
sumarbústaðnum.
Ástarsjóður ungs
fólks í íran
í íran hefur nú verið stofnaður
svokallaður ástarsjóður en hann á að
auðvelda ungu og fáfæku fólk að gifta
sig sómasamlega. Fréttir herma að
írönsk ungmenni telji sig nú síður
reiðubúin að ganga í hjónaband en
áður sökum bágs fjárhags. Unga fólkið
kennir slæmum efnahag landsins um
fátæktina og segjast æ fleiri vera til
neyddir til að búa hjá foreldrum sínum
vegna þess þau hafi ekki efni á að standa á
eigin fótum. Slagorð sjóðsins mun vera „Setj-
ið olíuauðinn á borð unga fólksins" og hefur
hugmyndin mælst afar vel fyrir.
Of dýrt að ganga
í hjónaband Sjóð-
urhefurveriðstofn-
aðurtilaðauð-
velda fólki að
standa undirkostn-
aði af brúðkaupi.