Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Síða 27
DV Ástog samlíf
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 27
Unnur María Berg-
sveinsdóttir Segir að
tilvalið sé að leigja bfl,
rúnta um eyjuna og
snseða á góðum útiveit-
ingastað að kvöldi.
Mælir með ferð til Sikileyjar
„Ég og kærastinn minn fórum einu
sinni til Sikileyjar og það var rosalega
rómantísk og skemmtilega ferð," segir
Unnur María Bergsveinsdóttir tónlist-
arkona og meðlimur í Brúðarbandinu.
Hún segir eyjuna afar fallega og veit-
ingastaðina góða. „Ég held að það sé
tilvalið fyrir fólk að leigja bilaleigubíl
og rúnta um eyjuna. Náttúran er ótrú-
lega falleg og svo er tilvalið að koma
við á notalegum útiveitingastað að
kvöldi og fá sér eitthvað gott að
borða," segir hún dreyminni röddu.
Hún segir veðrið ekki skipta miklu
máli í svona ferðum, vitanlega sé
ánægjulegt að geta verið léttklæddur
úti í sólinni með góðan drykk við
höndina en svo sé líka notalegt að
kúra saman inni á hótelherbergi. „Ég
veit að það er alls ekki alltaf afslapp-
andi að fara til útlanda en það er frá-
bært að vera á Sikiley," segir Unnur
María sem treystir sér til að mæla með
slfkri ferið við alla áhugasama. Hún
bætir því svo við að tónlist Lee Hazel-
wood og fyrsti diskur Mugisonar séu
likleg til að fullkomna rómantfkina.
mmmsammmzSi
Ferð til Lundúna í
rökkri og rómantík
„Ég er með eina pottþétta hugmynd
sem ég hef sjálfur framkvæmt," segir söng-
arinn rómantíski Geir Ólafsson án þess að
hugsa sig um eitt augnablik. „Uppskrift af
fullkominni rómanstískri ferð væri til
London. Maður ætti að gista á Hótel
Commodore en það er það allra flottasta
sem völ er á í Englandi í dag. Því næst fer
maður svo með elskunni sinni út að borða
á fínum frönskum veitingastað og að máls-
verði loknum væri ekki verra að fara á am-
eríska leiksýningu, svona til að hafa
stemninguna aiþjóðlega," segir Geir á
sannfærandi hátt.
Hann segir andrúmsloftið auðvitað
eiga að vera afar fágað og rómantískt, best
sé að loftið sé fremur rakt, mistur liggi yfir
þorginni og tekið sé að rökkva. Farskjótinn
eigi að vera gamaldags, svartur og velbón-
aður leigubíll með alvöru Breta með við-
mót einkaþjóns af hæsta gæðaflokki. Geir
á ekki í erfiðleikum með að velja tónlistina
sem myndi óma þýðlega í bakgrunninum.
„Það er Sinatra, ekki spurning."
Geir Ólafsson Avallt
með rómantlskar hug-
myndirá takteinum.
fris Björk
Dreymirum
rólega og ein-
falda sumar-
bústaðarferö.
Róleg sumarbústaðarferð út á land
„Ég myndi nú bara segja að róleg sumarbú-
staðarferð út á land væri mjög rómantísk," seg-
ir íris Björk Ámadóttir iyrirsæta og fýrrverandi
handhafi titilsins fegurðardrottning íslands.
Hún leggur áherslu á að ferðin eigi að vera
róleg og afslappandi en hún og maðurirm
hennar hafa varla sofið heila nótt síðustu
tvö ár enda með tvær litlar prinsessur á
heimilinu. „Þær hafa aldrei verið ann-
ars staðar en hjá okkur yfir nótt. Þannig
að það væru talsverð viðbrigði að vera
án þeirra. Þó gaman væri að taka þær
með væri ferðin samt ekki rómantísk
nema við myndum vera tvö ein,“ segir
íris og hlær en glöggt má heyra að hún er
að sinna börnum sfnum um leið og hún útlist-
ar ferðina.
„Á hverju kvöldi myndum við elda lúxus-
kvöldverð, fara í heita pottinn og ef til vill horfa
á spólu á eftir. Yfir daginn væri svo gaman að
fara í golf, hestaferð eða göngu ef veður leyfir.
Ég geri samt engar sérstakar kröfur til veðurs,
það má alveg vera rigning eða snjór en það
væri samt betra ef veðrið væri milt og fallegt,"
segh íris hugsandi enda ljúft að láta hugann
reika til rómantískra ferða út á land. Hún segh
sig og mann sinn eiga safn laga úr ýmsum átt-
um sem hafi sérstaka þýðingu fyrir þau tvö. Því
yrði notalegt að taka hluta tónlistarsafnsins
með í ferðina.
Sækir þu
í vondu
strákana?
i. ,
1. Myndarlegur karlmaður gortar sig
af vafasamri fortið, sem hann segist
auðvitað hafa snúið við bakinu. Þú:
1. Hlærð og vonar að enn eimi svolítið
eftir afvonda stráknum.
2. Brosir með sjálfri þér og hugsar með
þér að þú getir tamið hann.
3. Snýrö upp á þig og þykist vita að
hann hafí slður en svo batnað með ár-
unum.
2. Karlmaður afsakar hegðun sína
með þvi að vitna til erfiðra æskuára
sinna. Þú:
1. Tárast og hugsar með þér að þú mun-
ir græða sárin á sál hans.
2. Finnur til með honum en segirað
hann verðiað vinna úrþessum vanda-
málum.
3. Veltir fyrir þér hvers vegna I ósköpun-
um hann sé ekki búinn að vinna úr
vandamáium bernskunnar á þessum
aldri.
3. Klukkan er
átta að laug-
ardags-
morgni og
hann sagðist
ekkiætlaað
djamma
lengi. Þegar
hann loks-
ins kemur:
1. Gleðstu við að sjá hann því hann er
svo sætur svona þreyttur og sjúskaöur.
2. Spyrð hvað hann hafi eiginlega verið
að gera. Svona til að vera viss.
3. Segir honum að hundskast út aftur.
4. Þú kynnist sætum og voða góðum
strák sem virðist aldrei geta sagt nei.
Þú:
1. Lætur hann fara I taugarnar á þér,
finnst hann væminn.
2. Finnst hann fínn þó hann mætti bæta
sjálfstraustið.
3. Finnst æðisiegt aðfínna mann sem
þú getur látið vera sammála þér alla
daga.
5. Hann heldur framhjá þér en fer að
gráta þegar þú ætlar að losa þig við
hann. Þú:
1. Fellur I stafí þegar þú sérð hvað hann
elskar þig heitt, öllum getur orðiö á.
2. Fellst á að gefa honum annað tæki-
færi með vissum skilmálum.
3. Tryllist og fyrirgefur honum aldrei.
5-7 stig: Þu filar þessa villtu karl-
menn sem engu hlýða og gefst
aldrei upp við að reyna að temja
þá og getur undirbúið þig fyrir
endalaus vonbrigði sem þú vildir
þó aldrei vera án.
8-11 stig: Þú vilt ekki hafa karl-
menn of rólega en reynir að gæta
þess að þeir komi vel fram við þig.
12-15 stig. Þú þolir ekki óþægð og
gerir engar undantekningar á
þeim reglum sem þú setur.
■
Tvö lögfara
alltaf áfóninn
„Þaö eru tvö lög sem ég get
ekki gert upp á milli," segir
tónlistarmaðurinn Jón Sig-
urðsson sem er orðinn
landskunnur fyrir
þýðan söng sinn.
„Annað er How
deep is your love
en hitterThe air
that I breath. Þessi
lög fara undan-
tekningarlaust
á fóninn þeg-
ar ég vil
skapa
róman-
tfska
stemn-
ingu."
Icelandic for foreigners
Registration is at Mímir-símenntun, I ^ i I I L’i J J
Grensásvegi 16a, tel 5801
or website mimir.is
Innritun fer fram á Grensásveqi 16A, í síma 580 1800 eða á heimasíðunni www.mimir.is