Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2005, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005
Menning DV
Opinn fundur um
listdansinn
Bandalag íslenskra listamanna boð-
ar til fundar á mánudagskvöldið i
næstu viku um framtíð Listdans-
kennslu og Listdansskóla Islands.
Fundurinn verður i húsakynnum
Listaháskólans í Laugarnesi og er öll-
um opinn. Hefst hann kl. 20.30.
Að fundinum standa Félag íslenskra
listdansara ásamt Bandalagi ís-
lenskra listamanna og eru allir
hvattir til að sækja fundinn sem láta
sig listdansinn varða og stöðu list-
náms i íslensku menntakerfi.
^ Að loknum inngangserindum á
w fundinum veröa umræður. Frum-
mælendur munu taka til máls en þeir
verða Þorvaldur Þorsteinsson, forseti
BlL, Irma Gunnarsdóttir, formaður
FlLD, Karen Maria Jónsdóttir, um-
sjónarkennari Listdansbrautar LHl
og fulltrúi námsskrárnefndar
menntamálaráðuneytisins, Örn Guð-
mundsson, skólastjóri Listdansskóla
Islands og Katrín Hall, listdansstjóri
Islenska dansflokksins. Siðan verður
opin mælendaskrá og er fólk hvatt til
að taka þátt i umræðunni.
Fundarstjóri er Ólöf Ingólfsdóttir. Þeir
sem vilja komast á mælendaskrá eru
%, beðnir að hafa samband við hana á
netfangið olof.i@bakkar.is eða við
upphaf fundarins.
Síðustu forvöð
Piparinn Joe Cocker stígur á svið Laug-
ardalshallar I kvöld og eru slöustu for-
vöð aðná sér I stæði I kvöld. Cocker á að
baki farsælan feril. Hann kom frá I
Sheffield um miðj-
an sjöunda ára-
tuginn og naut
þess f upphafi að
hannvar íför meö
frábærum útsetjur-
um, Chris Stainton
og Leon Russel.
sem drifu fyrstu
böndin hans áfram.AthygHsvert er að á
lagalista kvöldsins er einn fjórði lag-
anna frá þeim tlma sem hann hljóðrit-
aði með þeim félögum.
Toppurinn á ferli Cockers er llklega
hljómleikaupptökur hans með stór-
bandi Russels frá frægri ferð um Banda-
ríkin 1970 sem var skráð á fllmu: Mad
dogs and Englishmen.
Fyrirmynd Cockers var frá fyrstu tlö Ray
Charles. Þeir Clapton áttu þann draum
stærstan að nálgast breidd hins blinda
raddmeistara og eltu raddbeitingu
hans sem þeir gátu. Cocker hefur sent
frá sér fjölda hljómdiska sem eru afar
misjafnir að gæðum. I bland eru knippi
afhljóðritunum sem hann hefur unnið
með verulega flnum spilurum sem hafa
gætt lagaval hans þeirri spennu sem
lyftir dægurflugum sem hann oftast
syngur upp fyrir meðallagiö. Ein þeirra
er Stingray meö Eric Cale þar sem sam-
an koma kraftarsem skila frábæru
verki.
Aðdáendur karlsins munu fylla höllina í
kvöld og efhann svarar væntingum má
telja fullvlst að hann skili góðu kvöldi.
Danshátíðin í Reykjavík hefst í kvöld og verða sýningar næstu fjóra daga í Regn-
boganum og Borgarleikhúsinu. Þetta er í fjórða sinn sem hún er haldin og þar gef-
ur að lita ný dansverk úr sjálfstæða geiranum. Erlendir gestir og þátttakendur
setja alþjóðlegan svip á hátíðahaldið.
Játningar minnisleysingjans
eftir Jóhann Frey er eitt þeirra
verka sem flutt verður I kvöld á
reykvlsku danshátlðinni. Verkið
var frumflutt I vor og er með at-
hyglisverðari verkum sem hérhafa
komið fram f fjölskrúðugu úrvali
úr grasrótinni.
Hátíðin var sett á laugardag en þá
flutti Sveinbjörg Þórhallsdóttir ásamt
samverkakonum sínum dansinn no,
he was white. í spjalli við áhorfendur
lýstu þær vinnuferli við verkið en auk
Sveinbjargar dönsuðu þær Anne
Tismer, Margrét Sara Guðjónsdóttir
og Rahel Savoldelli í verkinu.
í kvöld verða þijú verk á dag-
skránni. Játningar mirmisleysingjans
eftir Jóhann Frey, sem frumflutt var í
KlinK og BanK í vor. Fjórir dansarar
íslenska dansflokksins fluttu verkið
þá og verða nú í nýju rými, þrengra og
grynnra. Það er sjaldgæft að áhorf-
endum gefist kostur á að sjá verk með
svo stuttu miliibili og verður gaman
að endumýja kynni af verkinu sem
þau Aðalheiður Halldórsdótttir, Guð-
rún Óskarsdóttir, Hjördís Lilja og
Steve Lorenz flytja. Þá verða f kvöld
flutt tvö sólóverk: Postcards from
home eftir Cameron Corbett sem er
íslenskum dansáhugamönnum vel
kunnugur og Fred Gehrig dansar eig-
ið verk: Im Panzer.
Á föstudagskvöld mun Alyx
Eynaudi dansa verk sitt Crystall og
Paulo Castro Wake Me Up Hate.
Hátíðin brýtur upp á tveimur nýj-
ungum í ár; efnt verður tii sýninga í
Regnboganum á dansverkum á
mynd: Jared Gradinger sýnir fjögur
tóniistarmyndbönd, en Peter Ander-
son mun sýna sex dansverk á bandi.
Þá verður sérstök sýning fýrir böm á
öllum afdri í Borgarleikhúsi á sunnu-
dag kl. 14 en þá verður flutt nýtt verk
eftir Ólöfu Ingólfsdóttur: Heima er
best.
Hátíðinni lýkur á sunnudagskvöld
með frumsýningu á verkum Freds
Gehrif og Nadiu Banine: Who is the
Horse. Þá er Steinunn Ketilsdóttir
með nýtt verk þá um kvöldið sem hún
kallar Astarsögu.
Reykvíska danshátíðin er, utan
starfsemi dansflokksins og Dansleik-
húshátíðarinnar á vorin, einn helsti
vettvangur dansiista í landinu. Á
hverjum tíma stunda á þriðja þúsund
dansþjáifun og nýtur hátíðin aðstoð-
ar ríkis og borgar. Verk á henni bregða
ljósi á skýrar línur í sviðslitum okkar
sem verða hverjum yndi sem vill fylgj -
ast með.
Menntasvið Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi I, 101 Reykjavík,
sími: 41 I 7000, menntasvid@reykjavik.is
Hefur þú áhuga á að starfa með börnum
og móta þannig framtíðina?
Má bjóða þér lifandi starf þar sem 91% starfsmanna eru ánægðir í starfi og telja
vinnuandann góðan?
Sérstaklega er óskað eftir fólki sem hefur uppeldis-, myndlistar-, leiklistar- eða
tónlistarmenntun eða reynslu af starfi með börnum.
Kannaðu möguleikana á starfi með börnum í leikskólum þar sem þú hefur tækifæri
til að móta framtíðina. Upplýsingar um störfin er að finna á www.leikskolar.is,
hjá starfsmannaþjónustu Menntasviðs Reykjavíkurborgar í síma 411 7000 og hjá
leikskólastjórum í Reykjavík.