Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2005, Side 31
DV Lífiö
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 3 7
Síðastliðinn mánudag lauk „extreme makeoveri“ hjá Villa WRX og hefur hann
breyst til hins betra kappinn. Orðinn sjóðandi heitur og sætur og kominn á fast
með Hér & nú-stúlku. Nú er Gillzenegger farinn að leita að nýju viðfangsefni
sem á að vera stúlka að þessu sinni.
fyrib
vilt þú breytast?
Þetta gerði Gillzenegger fyrir
Villa WRX og nú ihugar hann að
finna sér konu.
Gillzenegger
Hann er flottur kallinn
og kann sitt fag.
„Þetta verður mjög líkt því sem
Villi fékk," segir Egill Gillzenegger
sem leitar nú að stúlku sem hann
ætlar að umbreyta. í síðustu viku
lauk hann við listaverkið Villa WRX
sem byrjaði í vor sem rauðhærður
hreinn sveinn og „white trash"-
hnakki. í sumarlok var hann orðimi
einn heitasti gaur bæjarins og byij-
aður með Hér & nú-stúlku, en þess
má tii gamans geta að Hér & nú-
stúlkur eru oftar en ekki sagðar sæt-
ari en Séð & heyrt-stúlkur.
Allur pakkinn
Gillzeneggerinn segist hvergi
banginn við að taka að sér kven-
kynsverkefni. „Þó að sérgrein mín
sé að taka að mér litla, rauðhærða
hnakka þá get ég alveg tekið stelpur
líka," segir Gillzenegger, sem jafiian
er kallaður Neggerinn. GiUzenegger
ætlar að bjóða þessari heppnu
dömu upp á allt sem Villi WRX fékk
og jafnvel rúmlega það. Ef Villi væri
á lausu væri hægt að bjóða upp á
nótt með honum en svo er víst ekki.
Hins vegar er líklegt að kona sem
hefur gengið í gegnum prógramm
hjá Gillzenegger þurfi ekki að hafa
áhyggjur af karlamálum og komist
færri að en vilja.
Tískan og tanið og
allt saman
Stúlkan sem verður fyrir valinu
verður tekin í gegn í ræktinni en það
er ekki það eina sem verður tekið í
gegn. Enda vita þeir sem íylgdust
með Villa WRX í sumar að hann
lærði mun meira en að borða hollt.
og lyfta lóðum. „Hárgreiðslan
verður tekin hjá Robba Carter. Svo
er það auðvitað gymmið, klipping
og ljós," segir Gillzenegger og bætir
við. „Svo er það ímyndin. Það þarf
að taka hana í gegn og ég mun Iáta
Geir Ólafs kenna stelpunni róman-
tíska framkomu og PartíHanz mun
kenna partíframkomu. Þessir menn
geta kennt konum rétt eins og körl-
um," segir Gillzenegger. Líklegast
verður farið eitthvað inn á kvenlegri
þætti í makeoverinu eins og förðun
og aðrar Iíkamssnyrtingar.
Sendið inn umsókn
Nú þurfa konur að spyija sig að
því hvort þær vilji sitja heima og
safna spiki og sökkva sér í svart-
nætti óheilbrigðs lífsmáta eða rísa
upp úr sófanum og umbreyta sér.
Þetta makeover snýst ekki einungis
um að eltast við staðalímyndir
heldur fyrst og fremst að stúlkan
sem verður í makeoverinu verði
ánægð með sjálfa sig, og verði heit
pfa. Allt í senn. Ertu ekki í formi?
Ertu á lausu? Ertu kríthvít? Ertu
með asnalegt hár? Ertu óróman-
tísk? Ertu rangstæð? Ertu að vinna í
innréttingadeildinni í IKEA (ekki
nauðsynlegt þött Villi WRX hafi
unnið þar í byijun makeovers)?
Ertu tilbúin til þess að verða gella
„Þó að sérgrein mín sé
að taka að mér litíaf
rauðhærða hnakka
þá get ég alveg tekið
stelpur lika."
og komast VIP inn á alla skemmti-
staði?
Þá skaltu senda tölvupóst á
makeovei@dv.is sem á að
innihalda:
Nafii umsækjanda
Aldur (Enginn of gamall)
Áhugamál
Markmið
Mynd af umsækjanda
Gillzenegger mun svo skoða
umsóknimar og kamia hvort
honum h'tist eitthvað á blikuna. Þú
gætir orðið heppin. soli@dv.is
Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona er 33
ára í dag. „Þessari konu er eðlis-
lægt að sýna kærleika í
verki. Á þessu stigi hef-
ur hún náð að uppfylla
óskir sínar og kýs um
þessarmundirað
njóta stundarinnar
meðal fólksins sem
hún elskar," seg-
ir í stjörnuspá
hennar.
Vatnsberinn(2o./an.-?8.fefcr.)
Orka þln er kjarni tilveru þinn-
ar og því er mikilvaegt að þú lærir að
veita henni eingöngu jákvæða útrás.
Notaðu innsæi þitt næstu daga og vik-
ur og skynjaðu sjálfið án eigingirnl og
orkuútláta.
Fískmir (19. febr.-20.mars)
Hér birtast órjúfanleg tengsl.
Þú upplifir um þessar mundir tilver-
una með opið hjarta. Gjafir þlnar eru
sannarlega einstakar og nauðsynlegar
fyrir heildina.
Hrúturinn 121. mrs-19. apnij
Það er vissulega I lagi aö
hugsa til þeirra mistaka sem þú hefur
gert en aðeins ef þú reynir að ein-
beita þér að því að læra af þeim. Rétt
greining á hlutum fortíðar er hálf
lækning. Ekki festast I fortíðinni.
Nautið (20.aprll-20.mal)
Þegar þú finnur fyrir öryggi
afhjúpar þú þig en hér kemur fram að
þú þarft að opna þig og rækta sjálfs-
traust þitt mun betur. Áttaðu þig á
dýpstu óskum þínum.
Ivíbwmll Q1.mal-2ljúnl)
Athafnasemi þín er án efa til
staðar og þú bregst skjótt við þegar
hjarta þitt leiðir þig hérna áfram. Þró-
aðu góða færni til árangursríkra sam-
skipta við fólkið þitt, kæri tvíburi.
Krabbinn (22.^1-22.1010
Frelsiskennd einkennir hjarta
þitt og þú ert trú/r tilfinningum þlnum
en mættir ákveða hvað það er sem þú
raunverulega vilt.
LjÓnið (H.jill-22. dgúst)
Hér ert þú spurð/ur hvort þú
sért fús til að breyta. En hér birtist
stökk I rétta átt þegar stjarna þín, Ijón-
ið, er skoðuð. Hér kúvendir þú I raun
hugsun þinni en hvernig eða af hverju
kemur ekki fram. Þú birtist
fullkomlega ánægð/ur.
Meyjan (23. úgúst-22. sept.)
Ekki hika við að stefna að yf-
irburðum á því sviði sem þú hefur nú
þegar valið þér.
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Vikuna framundan ættir þú
ekki að taka þig of alvarlega og minna
sjálfiö á að vald snýst aðeins um
hversu mikið vald öðrum finnst þú
hafa.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.a0v.)
Þú ert minnt/ur á þá staðreynd að þaö
er ekki hægt að ná valdi á
kærleikanum. Hann er einfaldlega
leyfður.
Bogmaðurinn(/znör.-/i.fc/
| |
Þér er ráðlagt að hætta að vera móðg-
unargjarn/-gjörn (á við dagana
framundan). Efldu með þér léttlyndi.
Steingeitin(?zte.-/9.;an.)
Stærsta gjöf sem þú getur
veitt þeim sem þú elskar er að þú
opnir og bjóðir þig fullkomlega,
mundu það vikuna framundan. Vertu
meðvitaður/meðvituð um líðan þína
og gefðu af þér.
SPÁMAÐUR.IS