Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 1. OKJÓBER 2005
Fréttir DV
Vilhjálmur
opnar
Á morgun klukkan 14
opna stuðningsmenn Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar,
oddvita sjálfstæðismanna í
Reykjavík, kosningaskrif-
stofu að Suðurlandsbraut
14. Vilhjálmur býður sig
fram á móti Gísla Marteini
Baldurssyni í fyrsta sæti í
prófkjöri sjálfstæðismanna,
sem fer fram 4. og 5. nóv-
ember. Kjörorð Vilhjálms er
Reynsla til forystu en hann
flytur ávarp við opnunina.
Skattalækkun
fyrir skólamat
Vegna lítillar þátttöku í
matarkaupum í grunnskól-
anum í Grindavíkur ætlar
bæjarráðið að sleppa nið-
urgreiðslum matarins en
lækka þess í stað fasteigna-
gjöld. Það muni auka ráð-
stöfunarfé fólks meira og
hjá mun fleirum en niður-
greiðsla matarkostnaðar.
Minnihluti framsóknar-
manna segir hátt verð á
matarskömmtunum leiða
til lítillar þátttöku í kaupum
á máltíðum. „Með því að
lækka fasteignagjaldapró-
sentuna á næsta ári náum
við ekki til þeirra foreldra
sem búa í leiguhúsnæði og
hafa það einna verst fjár-
hagslega," sögðu þeir.
Strandir
fá ekkert
Ef sveitarfélögin í
Strandasýslu sameinast í
eitt sveitarfélag fá þau ekki
eina krónu af 2,3 milljarða
framfagi sem Jöfnunarsjóð-
ur hefur eyrnamerkt til að
veita skuldajöfnunarfram-
lag til þeirra sveitarfélaga
sem sameinast. Strandir.is
hefur eftir Ásdísi Leifsdótt-
ur, sveitarstjóra Hólmavík-
urhrepps, að samkvæmt
útreikningum Jöfnunar-
sjóðs fengju hreppirnir í
Strandasýslu ekkert: „Svar-
ið var 0 kónur. Þessi sveit-
arfélög standa bara ekki
nógu illa.“
Tilkynnt var um árekstur bifhjóls og tveggja fólksbifreiða í Ártúnsbrekku seinni-
partinn í gær. Fjöldi björgunarmanna var sendur á vettvang og voru umferðartafir
miklar. Tveir piltar á tvítugsaldri gengust undir aðgerð á slysadeild Landspítala -
háskólasjúkrahúss í Fossvogi í gær.
Miklar tafir urðu á umferð í kjölfar slyss sem varð í Ártúnsbrekku
í gær. Þar lentu saman bifhjól og tvær fólksbifreiðar. Unnið var
að því að koma bifhjólinu af veginum og hlúa að þeim slösuðu.
Fernt var flutt með sjúkrabifreiðum á slysadeild.
Þegar björgunarmenn komu á
vettvang voru vegfarendur stumr-
andi yfir farþegunum og veittu
þeim aðstoð. Tilkynnt var um slysið
klukkan 15.43 í gærdag. Slysið varð
á háannatíma á Vesturlandsvegi.
Margir voru á leið úr vinnu og
þurftu að bíða í bifreiðum sínum í
töluverða stund áður en umferð var
aftur hleypt á.
Mikið björgunarlið
Fjöldi lögreglubíla var sendur á
vettvang ásamt fimm sjúkrabílum
og tveimur dælubflum frá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins. Sam-
kvæmt upplýsingum frá stöðvar-
stjóra Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins var ástæðan fyrir fjölda
björgunarmanna sú að slökkviliðs-
menn voru á leið af æfingu þegar
útkallið barst og var því tiltækt lið
sent á vettvang. í ljós kom að ekki
var þörf á þeim öllum og voru ein-
hverjir þeirra sendir niður á stöð, á
meðan aðrir lögðu leið sína á slysa-
deildina í Fossvogi.
Fjöldi lögreglubíla var
sendur á vettvang
ásamt fimm sjúkrabíl-
um og tveimur dælu-
bílum frá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðis-
ins.
Með próf í einn dag
Samkvæmt heimildum DV hafði
ökumaður bifhjólsins, nítján ára
piltur, verið með mótorhjólapróf í
einn dag þegar slysið átti sér stað.
Hann, ásamt farþega á hjólinu,
slasaðist töluvert og var fluttur á
slysadeild. Hjólið rann tugi metra
frá þeim stað sem áreksturinn varð
og þá mátti sjá skó og hjálma þeirra
sem á hjólinu voru, töluvert frá
slysstað.
Beinbrot, taugaáfall og
eymsli í hálsi
Femt var flutt á slysadeild eftir
áreksturinn. Ökumaður og farþegi
bifhjólsins em báðir á tvítugsaldri og
vom fluttir með opin beinbrot á
slysadeild. f ljós kom að annar þeirra
var lærleggsbrotinn og hinn með
sköflungsbrot. Þeir fóm í aðgerð í
gær en ekki lá ljóst fýrir hvort þeir
yrðu lagðir inn eftir hana. Farþegi
annarrar bifreiðarinnar kenndi sér
eymsla í hálsi og kona á vettvangi
fékk taugaáfall. Þau vom einnig flutt
á slysadeild. Ekki var búið að bóka
slysið nákvæmlega hjá Lögreglunni í
Reykjavík en samkvæmt upplýsing-
um frá henni virðist hjóhð hafa kast-
ast utan í báðar bifreiðarnar.
gudmundur@dv.is
Magnús Ólafsson vill fyrsta sætið
Vill gera Fjörðinn
skemmtilegan
„Ég vil gera Hafnarfjörð að
skemmtilegum bæ, eins og hann
var,“ segir Magnús Ólafsson, leikari
og prentari. Hann hefur boðið sig
fram til fyrsta sætis sjálfstæðis-
manna í bæjarstjóm Hafnarfjarðar.
Magnúsi þykir Harfnarfjörður
hafa glatað gleðinni. „Ég vil koma
bænum aftur á kortið eins og ég
gerði með Hafnarfjarðarbröndurun-
um hérna áður fyrr. Þá fékk bærinn
sko athygli. Ég er nú lflca búinn að
vera bæjarstjóri í Latabæ svo lengi,
Hvað liggur á?
þannig að
ég er ekk-
ert blaut-
ur bak við
eyrun
bæjar-
pólitík,"
segir
Magnús
sem er
þekktur
Qölda hlutverka sem hann hefur
leikið á sviði og í sjónvarpi um ára-
tugaskeið.
I Magnús Ólafsson
I Ætlar aö koma bæn-
um aftur á kortið.
„Nú er ég á leiðinni út á flugvöli að sækja Kiri Te Kanava söngkonu, "segir Einar Bárðarson,
umboösmaður íslands.J kvöld eru svo tónleikar með Sissel Kyrkjeba og tvennir á morgun.
Þannig aðþað er nóg aðgera og ætliég verðiekki að teipa Idolið og horfa áþaðseinna."
Framleiðendur myndarinnar Næslands
Borgi hóteli reikninginn
Enn er tekist á um 100 þúsund
króna greiðslu fyrir gistingu sem
aðstandendur kvikmyndarinnar
Næslands pöntuðu fyrir hóp á Hótel
Keflavík.
Vill Steinþór Jónsson hótel-
stjóri að kvikmyndagerðar-
mennirnir greiði eina af
þremur gistinóttum sem
þeir pöntuðu sumarið
2004 en afbókuðu á síð-
ustu stundu.
„Við emm bara að
fara fram á að þeir borgi
fýrstu nóttina. Við teljum
það vera eðlilega kröfu,
enda lentum við í vandræð-
um því við höfðum vísað
fólki frá," sagði Steinþór
við DV í október í
fyrra.
Steinþór bætti því við að aðstand-
endur Næslands hefðu pantað gist-
inguna með fimm daga fýrirvara fýr-
ir starfsfólk við tökur á myndinni.
Listi með nöfnum gestanna hefði
verið sendur hótelinu.
Leikstjóri Næslands var
Friðrik Þór Friðriksson og
framleiðandi var fyrir-
tækið Næsland ehf.
sem meðal annars var í
eigu Þóris Snæs Sigur-
jónssonar.
Aðalmeðferð í mál-
inu var í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Bú-
ast má við dómi innan
fjögurra vikna.
ÞórirSnær Sigurjónsson
Þórir er einn framleiðenda
Næslands sem telja ósann-
gjarnt að borga fyrir hótel-
gistingu sem ekki var notuð.