Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 36
36 LAUGARDACUR 1. OKTÓBER 2005
Helgarblað DV
Yngstu
foreldrar
Evrópu
Louis prins í Lúxemborg hefur
staðfest þær sögusagnir að hann sé
að verða faðir.
Kærasta prinsins,
Tessy Anthony, er
ófrísk af þeirra
fyrsta barni en
parið eraðeins 19
ára og því yngstu
foreldrar evrópsku konungsfjöl-
skyldnanna. Barnið er væntanlegt I
heiminn í mars á næsta ári og mun
gera Henri hertoga og eiginkonu
hans, Maríu Teresu, að afa og ömmu í
fyrsta skipti. Fjölskyldur unga parsins
styðja þau í ákvörðuninni um að
eiga barnið en að ganga ekki strax í
hjónaband.
Harry fékk
smáaura
Harry prins fékk afar lága upp-
hæð af arfi drottingarmóðurinnar í
tilefni 21. árs afmælis síns.
Talið var að prinsinn fengi
stóran skerfaf arfinum,allt
upp í milljónir punda.
Hann og Vilhjálmur
hafa hins vegar aðeins
fengið brot af upphæð-*'5
inni. Bræðurnir verða því
að bfða dauðdaga föður
síns til að geta komið
höndum yfir fjármuni fjölskyldunn-
ar. „Faðir þeirra vill ekki breyta þeim
í ofdekraða glaumgosa og þar sem
Harry er þekktur djammari taldi Karl
að það væri best að hann fengi að-
eins smáaura."
Mætir í sjón-
varpsviðtal
Karl Bretaprins hefur samþykkt
viðtal við fréttaskýringaþáttinn 60
mínútur. Breski ríkisarfinn hefur ekki
birst í sjónvarpsviðtali síðan árið
1994 þegar hann viðurkenndi að
hafa haldið fram hjá Díönu
prinsessu með Camillu Parker-Bow-
les, sem nú er konan hans. Málið
vakti upp miklar deilur í Bretlandi og
prinsinn sagðist aldrei myndu koma
aftur í sjónvarpsviðtal en telur vfst
að nú sé rétti tíminn
kominn til að end-
urtaka leikinn.
Karl taldi örugg-
ara að taia við
Bandaríkjamenn
þar sem þeir
hefðu minni áhuga
á að spjalla um
Dfönu.
Valdi sér 14.
konuna
Mswati konungur Swazilands
hefur valið sér 17 ára stúlku sem
sína 14,eiginkonu nokkrum vik-
um eftir að hafa stjórnað her-
ferð sem hvatti stúlkur til að
bíða til 18 ára aldurs með að
stunda kynlíf. Stúlkan hefur
þegar hætt í skóla til að hefja
undirbúning sinn sem eigin-
kona kóngsins.Mswati hafði
nýlega sett ný
lög sem hindr-
aði karlmenn í
að stunda kyn-
líf með ungum
stúlkum og
sektaði sjálfan sig
um eina kú eft-
ir að hafa
brotið lög-
in.Hann
hefur nú lagt
þau lög niður.
Unglingará
móti kon-
ungstigninni
í nýrri víðfangsmikilli könnun sem
gerð var í Noregi kom fram að aðeins
13% unglinga þar f landi telja konungs-
fjölskylduna mikilvæga.Könnunin náði
til 41 þúsund nemenda og gaf til kynna
að 16,3% vilja leggja konungstignina
niður. „Konungsfjölskyldan skiptir mig
nákvæmlega engu máli," sagði hinn 18
ára Thomas Hoy við fjölmiðla en svar
hans er talið endurspegla skoðanir jafn-
aldra hans. „Þau voru mikilvægari fyrr á
tímum en í dag er þetta hugtak úrelt."
Hjónaband
á döfinni?
Sænska pressan hefurfarið offari
í fréttum varðandi væntanlegt brúð-
kaup Viktoríu krónprinsessu og
Daniels Westlings. Samkvæmt
ónefndum heimildamanni innan
sænsku hallarinnar verður brúð-
kaupið haldið næsta sumar. „Að öllu
óbreyttu aanga þau upp að altarinu
f sumar."Talsmaður konungsfjöl-
skyldunnar blæs hins vegar á sögu-
sagnirnar. „Ég hef ekkert heyrt um
neitt brúðkaup.
EfViktoría hef-
ur ákveðið
að ganga í
það heilaga
þá mun
hún láta
fjölmiðla
vita eins
og hefðin
gerir ráð
fyrir."
Fyrrverandi sambýlismaður Mette-Marit gefur út bók um ástarsamband þeirra.
Maðurinn, sem vill ekki gefa upp nafn sitt, segist hafa verið trúlofaður prinsess-
unni. Hann segir enn fremur að samband hennar við krónprins Noregs hafi ekki
komið honum á óvart þar sem Mette-Marit fái allt sem hún ætli sér.
Jun aldrei
gleyma heml"
Fyrrverandi sambýlismaður
Mette-Marit, krónprinsessu Noregs,
hefur talað opinberlega um ástarsam-
band þeirra sem átti sér stað í kring-
um 1990. Maðurinn, sem vill ekki gefa
upp nafn sitt, mun gefa út bók um
prinsessuna sem kemur út í næsta
mánuði. Þar stendur meðal annars að
hann muni aldrei gleyma Mette-
Marit.
Hinn 46 ára maður sem býr í Lil-
leström skrifaði bókina í samráði við
blaðamenn. Hann og Mette-Marit
bjuggu saman í íbúð í bænum á með-
an á sambandi þeirra stóð.
„Ef ég fer út í búð þá starir hún á
mig,“ sagði fyrrverandi kærasti
prinsessunnar og vísaði þar í forsíður
dagblaðanna sem krónprinsessan
prýðir afar oft. „Ég get ekki annað en
hugsað um hana því hún er allstaðar í
kringum mig. Samt verð ég að halda
áíf am með lífið og gera mér grein fýr-
ir að okkur var ekki ætlað að vera
saman."
Maðurinn hitti Mette-Marit á vin-
sælum skemmtistað í Osló. Hann og
prinsessan, sem er 15 árum yngri en
hann, fóru strax að vera saman og
hófu fljótlega sambúð. Samkvæmt
manninum voru þau trúlofúð og ætl-
uðu sér alltaf að fara til Las Vegas til að
láta pússa sig saman. „Við giftumst
samt aldrei og ég ætla ekki að segja af
hverju samband okkar slimaði enda
hef ég aðeins frá góðu að segja varð-
andi Mette-Marit. Hún er frábær."
Maðurinn vildi ekki segja til um
hvort hann hefði verið í einhverju
sambandi við prinsessuna síðustu
árin en vitað er að umræddur maður
er ekki bamsfaðir hennar. Sonur
hennar, Marius, er sonur annars
manns sem krónprinsessan átti í
stuttu ástarsambandi við. Hún var
einstæð móðir þegar Hákon krón-
prins féll fyrir henni. Þau eiga eina
dóttur og eiga von á öðru bami í des-
ember.
Maðurinn frá Lilleström sagði
samband Mette-Marit við krónprins
Noregs ekki hafa komið sér á óvart.
„Ég sá fýrst í blöðunum að hún hefði
nælt í prinsinn. Ég þekki Mette-
Marit og veit að hún fær það sem
hún vill."
[ Fjölskyldan Fyrrum sambýlis-
maður Mette-Marit mun gefa
út bók um samband þeirra.
Hann segist aðeins hafa frá
góðu um prinsessuna að segja.
Haraldur konungur
Menn kóngsins skrif-
uðu Ginu til baka.
Hin sjö ára Gina Holmen Berre kvartaði við
Noregskonung yfir framferði afa sms.
Fékk bréffrá kónginum
Hin sjö ára Gina Holmen Berre varð
svo reið yfir að afi hennar gæti ekki kom-
ið í heimsókn að hún skrifaði Haraldi
Noregskonungi bréf í von um hjálp.
Stelpan og fjölskylda hennar vom himin-
lifandi þegar svar barst til baka frá kon-
unginum. „Konungurinn hlýtur að fá
mörg bréf og það er virðingarvert að
hann skuli taka sér tíma til að lesa þau,“
sagði faðir Ginu. „Það að hann tekur böm
alvarlega sýnir einnig að hann er mikill
mannvinur."
Gina, sem býr í norður-Noregi, varð
afar vonsvikin þegar afi hennar sveik
hana um heimsókn. „Til kóngsins. Afi
minn vill ekki gista hjá okkur. Getur þú
hjálpað mér. Kveðja frá Ginu," stóð í bréf-
inu. í svarinu sem hún fékk tii baka, sem
var að vísu skrifað af skrifstofustjóra kon-
ungsins sagði: „Hans hátign vill þakka
þér íyrir bréfið en hann getur því miður
ekki hjálpað þér í málinu."
Afi Ginu hefur nú lofað henni að koma
í heimsókn á næstu dögum.
Gina Holmen Berre
Hin sjö ára Gina varð
svo reið við afa sinn að
hún skrifaði konungin-
um bréfí von um hjálp.