Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 Helgarblað DV ■ ónína býr í 300 fermetra I glæsivillu í Stigahlíðinni, I einni af fínni götum borgar- I innar. Villan er metin á 100 m milljónir, í garðinum er •^sundlaug og heimili hennar er ríkmannlegt. Hún ekur um á Lexus-jeppa og stundar dýrt nám í viðskiptafræðum á Bifröst. Matar- boðin hennar eru glæsileg og ekki er til neins sparað. Gestir hennar eru þekktir en þeirra á meðal eru vel metnir stjómmálamenn, við- skiptajöfrar, leikarar og fjölmiðla- stjörnur. Hún ferðast reglulega til útlanda, oftar en ætla mætti fyrir konu í hennar stöðu og þeir sem umgangast hana em sammála um að ekki hafi þeir orðið þess varir að hana skorti fé handa á milli. Jónína Benediktsdóttir er hins vegar gjaldþrota og hefur ekki verið í launaðri vinnu í þrjú ár. Enginn getur svarað hvaðan henni kemur fé til að lifa dag frá degi og halda uppi þeim standard sem hún lifir við. Hana virðist ekki skorta neitt. Jónína Benediktsdóttir er fædd á Akureyri í mars 1957, dóttir hjón- anna Ástu Þorkelsdóttur Ottesen sjúkraliða og Benedilcts Ingvars Helgasonar tónmenntakennara. Fjölskyldan bjó á Húsavík en faðir hennar var útibússtjóri Kaupfélags Þingeyinga en móðir hennar starf- aði á sjúkrahúsinu. Þeir sem þekkja til segja foreldra hennar hafa verið sómafólk en Ásta móðir hennar lést þegar Jóm'na var lið- lega tvítug. Ágústu. Við áttum engan pening, enda var ég ekki nema rúmlega tví- tug. Við fómm af stað og fundum húsnæði en vantaði pening til að innrétta og gera klárt fyrir líkams- rækt. Bankarnir vom ekki eins opnir á þessum tíma og nú er og ég held að við höfum ekki einu sinni reynt að fá lán hjá þeim. Þess í stað leituðum við til Húsasmiðjunnar og þar treystu menn okkur og lán- uðu allt efrii sem við þurftum," segir Ágústa og rifjar áffarn upp þessi fyrstu ár: „Þetta var í kringum 1986 og áhugi manna á líkamsrækt var fyrir alvöru farinn af stað," bendir hún á. Ágústa ber Jónfnu í alla staði vel söguna. „Hún er hörkudugleg, skemmtileg og áræðin. Hún fær hugmyndir sem öðmm þykja frá- leitar og hrindir þeim í fram- kvæmd. Hún reyndist mér vel í okk- ar samstarfi en við vomm fyrst og fremst viðskiptafélagar," segir hún og bætir við að ekki sé neitt nema gott um Jónínu að segja og gaman hafi verið að starfa með henni. Stúdíó Jónínu og Ágústu gekk vel, þær unnu báðar af krafti í fyr- irtækinu og ekki leið á löngu þar til fyrirtækið fór að bera arð. Nokkm áður hafði Jónína kynnst manni sínum Stefáni Matthíassyni sem þá var í námi í læknisfræði. Þau giftu sig og eignuðust fljótlega sitt fýrsta barn. Stefán átti eftir að full- nema sig og það lá fyrir að þau fæm utan. Hún seldi því Ágústu sinn hlut, árið 1989, og hélt til Sví- þjóðar með manni sínum sem þangað fór í framhaldsnám. í við- tali við Mannlíf snemma árs 1989, þegar Jóm'na er á leið utan, segist hún ætla í nám í fjölmiðlun þar í landi. Af því varð hins vegar ekki og líkamsræktarbransinn beið hennar. Flutti til Svíþjóðar í Sviþjóð tók Jónína fljótt til óspilltra málanna við undirbúning að heilsuræktarstöð. Þau Stefán bjuggu í Helsingjaborg og þar opn- aði hún sína fyrstu stöð. Þær urðu þrjár áður en yfir lauk. íslendingar Um fáar konur er meira rætt þessa dagana en einmitt Jónínu Benediktsdóttur. Flestir vita allt um andúð hennar á Baugi, líkamsræktaráhugann og skoðanir hennar á samskiptum kynjanna. En færri vita að Jónína á tvö hjónabönd að baki, hvernig sambandi hennar við Jóhannes í Bónus var raunverulega háttað og hver vinur hennar síðustu mánuði hefur verið. Það er líka mönnum ráðgáta hvernig Jónína framfleytir sjálfri sér og kostar dýrt nám þar sem hún þiggur hvergi laun. Sitt sýnist hverjum en hún ekur um á dýrum Lexus og býr í lúxusvillu á besta stað 1 borg- inni. DV talaði við fjöldann allan af fólki sem þekkir Jónínu vel. Hér á eftir fer sú mynd sem menn drógu upp af henni, allt frá æsku til dagsins í dag. Giftist fyrst átján ára Ingibjörg Benediktsdóttir tann- læknir, systir Jónínu, man helst at- orkusemi og lífsgleði systur sinnar. Hún hafi alltaf verið á fullu í hverju því sem hún tók sér fyrir hendur. „Jónína er átta árum eldri en ég þannig að þegar ég fór að muna eftir mér var hún komin á ung- lingsár. Það var mikil] kraftur í henni, hún spilaði handbolta með Völsungum, lék á píanó og var alltaf kát og flörug." Eftir hefðbundið nám á Húsa- vík fór Jónína til náms við Mennta- skólann á ísafirði. Þar kynntist hún Sveini Magnússyni kennara, syni Magnúsar Torfa Ólafssonar fýrr- verandi ráðherra. Þau giftust þegar Jónína var aðeins átján ára gömul en hann var fimm árum eldri. Saman héldu þau til náms til Vancouver í Kanada én færðu sig síðan til Montreal þar sem Jónína nam íþróttafræði við McGill- háskóla og útskrifaðist 1981. Eftir heimkomuna réðu þau sig •?- ••. norður í Reykjaskóla í Hrútafirði og kenndu þar í tvo vetur. Hjóna- bandið hélt hins vegar ekki og þau skildu eftir árin tvö á Reykjum. Jónína var veturinn eftir í Reykja- vík og kenndi þar, meðal annars við æfingadeild Kennaraskólans og fór af stað með Æfingastöðina Engihjalla sama vetur. Þar lágu leiðir þeirrar Ágústu Johnson sam- an en hún var einnig nýlega komin „Hún ætlaði sér að giftast Jóhannesi, það fór aldrei á milli mála, en ég held að hann hafi ekki verið á þeim buxunum. Hann sá ekki sam- band þeirra þannig og hélt sér utan við öll hennar viðskipti." frá námi að utan í heilsu- og íþróttafræðum. Þær sameinuðust um að stofna fyrirtæki og haustið 1985 var fyrirtæki þeirra, Stúdíó Jónínu ogÁgústu, farið að rúUa. Hörkudugleg framkvæmda- kona Ágústa segir frá því í viðtali við DV snemma á þessu ári hvernig þær stöllur unnu að því: „Jónína Benediktsdóttir var með líkams- rækt í Engihjallanum og það varð úr að við sameinuðum krafta okk- ar og stofnuðum Stúdíó Jónínu og Ungog hress Jónina varð snemma áberandi talsmaöur hollrar hreyfíngar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.