Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 34
34 LAUCARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 Helgarblað DV „Ég er mjög mikil matarkona og held því mikið upp á ísskápmn," segir Aðaiheiður Ólafsdóttir söng- kona. Heiða, eins og hún er kölluð, segist hugsa mikð um mat og mat- argerð. Hún vilji góðan „gourmet" mat um helgar en sætti sig með glöðu geði við fisk á virkum dögum. „Ég hef mjög gaman af að borða og borða nánast ailan mat. Um helgar vil ég eitthvað rosalega gott og finnst þá gaman að elda steikur með ægi- legri ijómasósu en svo er ég líka ofealega dugleg að elda kjúkling og pasta. Ég er líka mikið fyrir fisk enda kem ég úr sjávarþorpi þar sem fisk- tu var reglulega á borðum," segir Heiða og bætir við að fiskur sé enn ofarlega á vinsældalistanum henn- ar. „Soðni fiskurinn stendur alltaf fyrir sínu en þar sem ég vinn á leik- skóla fæ ég nóg af honum þar og er ég þvf duglegri að brasa eitthvað við fiskinn þegar ég er að elda hann heima." Heiða er ákveðin í að fylgjast með Idolinu á Stöð 2 og segir til- hugsunina um að geta setið afelöppuð heima í stofu og fylgst með afar góða. „Þetta var samt svo gaman að ég væri alveg til í að gera þetta aftur," segir hún brosandi. Hún og kærastinn hennar eru tvö á heimilinu. Hún segir að hann sjái mikið um eldamennskuna og standi sig afar vel í því. „Það er ekki það að ég kunni það ekki eða hafi ekki gam- an af því heldur hefur hann einnig svogamanafþví," segirhúnogbæt- ir við að kærastinn sé afar góður kokkur. Heiða segist lítil tækjakona þegar kemur að eldhúsinu. Henni þykir vænst um mynd af sér og bróður sínum sem hangir á veggnum og var tekin þegar þau systkinin vom lítil og litlar krukkur sem amma hennar málaði og gaf henni í jólagjöf. „Ég er ekki tæknivædd og fylgist lítið með nýjungunum sem em að gerast I eldhúsinu enda er ég enn þá með upprunalega ofiiinn sem var í hús- inu þegar það var byggt. Hins vegar langar mig í Kitchen Aid-vélina, hún er efet á óskalistanum." Þrátt fyrir að vilja góðan mat í qómasósu segist Heiða hugsa um hollustuna. „Eg reyni að hugsa um það sem ég set ofan í mig. Það er samt mjög erfitt þar sem mér finnst matur svo ógeðslega góður. Ég borða til dæmis mikið af grænmeti en hins vegar minna af ávöxtum en reyni að hafa salat með öllum mat." Þegar hún er spurð hver uppá- haldsmaturinn hennar sé hugsar hún sig um og nefnir sfðan jólamatinn. „Ég er svo mikið fyrir mat að ég á erfitt með að velja á milli," segir hún hlæjandi en bætir við að hamborgarhryggurinn á jól- unum sé alla vega ofarlega á listan- um. „Ég er náttúrlega utan að landi og finnst allur svona skrítinn matur góður, eins og sigin grásleppa og hákarl." Heiða segist þó láta duga að borða þennan mat þegar hún heimsækir fjölskylduna á Hólma- vík. „Þetta er svona sparimatur," segir hún og bætir aðspurð við að kærastinn hennar smakki líka. „Hann er ótrúlegur og smakkar allt enda þýðir ekkert að vera einhver gikkur." Indiana@dv.is TBfBifíSfí i.: ' liiv Mikil kaffi- kona Heiða segist vera mikið fyrir kaffí en tel- ur sig pó geta lif- að án þess. Kíkt í ísskáp- inn „Égermjög mikil matarkona og hugsa mikið Fra ómmu Krukkurnar tvær eru i miklu uppáhaldi hjá Heiðu en amma hennar málaði þær og gaf henni íjóiagjöf. Einfalt Heiða segist ekki vilja skreyta heimili sitt ofmikið. Systkin „Þessi myndafmérog bróður minum er i miklu uppá- haldi hjá mér," segir Heiða og bætir við að þau séu líklega 4 og 7 ára á mynd- H mni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.