Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 44
44 LAUCARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 Sport DV Keane er eins og Maradona og Pele Roy Keane, fyrirliði Manchest- er United, segist ekki eiga von á öðru en að hann muni yfirgefa fé- lagið næsta sumar þegar samn- ingur hans rennur út. „Ég yrði hissa ef Man. Utd. íflSj :*Í myndi bjóða mér nýjan , 5* samning. Það er V" , ’ ^ mín tilfinning. Ef 1 Man. Utd. myndi O bjóða mér samn- 1 ing yrði það í ' kringum aprfl og yröi þaö of seint. í' ■ jE Ég vil hafa hlutina v á hreinu í janúar," IlÁ sagðiKeaneíviðtali ! i 'flg við sjónvarpsstöð ^ É Man. Utd. V Carlos Queiroz, '• aðstoðarstjóri Man. Utd., segir að félagið muni ekki leita að nýjum Keane þegar hann hættir. Keane sé einstakur leikmaður lfkt og Pele og Maradona! Burst hjá KR liðinu KR-ingar urðu Reykjavíkur- meistarar í körfubolta í sjötta sinn á sjö árum þegar þeir unnu ÍR- inga með 28 stiga mun, 87-59, í lokaleik sínum á fimmtudaginn, Fjölnismenn urðu í 2. sæti að þessu sinni og ÍR-ingar komu síð- an í 3. sætinu en þeir náðu sér engan veginn á strik í þessum lokaleik. KR-ingar urðu einnig Reykjavíkurmeist- arar á árunum ár ÍJf jí)99 til 2003 en ÍR-ingar tóku af / þeim titilinn í ! > T fyrra. KR vann oruggasigraá £ jc Fjölni (+27), ÍS (+37) og Val á \ (+80)íhinum i % þremur leikjum J sínum. Pálmi Freyr Sigur- E geirsson f skoraði á' 21 stig á 26 mínútum gégn ÍR, Ashley Champion var með 16 stig og 10 fráköst og Skarphéðinn Ingason var nálægt þrefaldri tvennu með 9 stig, 8 frá- köst og 9 stoðsendingar. 170 NBA-lelk ir sýndir Það verður nægt ffamboð á leikjum í NBA-deildinni í körfú- bolta í vetur þvf útsendingar NBA TV heijast á Digital fslandi laugar- daginn 15. október. Þetta eru mikil tímamót í sýningu frá bestu körfuboltadeild í heima því NBA TV sýnir hundruð leikja í beinni útsendingu auk ótal þátta um körfubolta. Sem dæmi er á dagskrá að sýna ffá 170 leikjum á komandi keppnistímabili en f. jildin hefst í byrjun nóvember. Til viðbótar verða sýndir tæplega 100 leikir frá úrslitakeppninni auk leikja í kvennadeildinni, WNBA, sem er nýlokið. NBA TV verður í Sportpakkanum á Digital íslandi. jjfr-K. Umljöllun SjJt SýnarffáNBA (f* ’úfflk verður með % samasniði <0)1,. oghefur jLjm 'r-r -'Ái. W veriðen :W WSSB á NBA TV g, 1 Haukar mæta í dag liði Árhus GF frá Danmörku en það er þekkt fyrir að spila ein- staklega hraðan handbolta þar sem mikið er skorað af mörkum. Ljóst er að Haukar geta ekki leyft sér að missa einbeitingu eitt andartak ef ekki á illa að fara. Haukar mæta Árhus GF í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í íþróttahúsinu að Ásvöllum í Hafnarfirði, og er ljóst að við ramm- an reip verður að draga fyrir Hauka þar sem danska liðið er eitt af bestu liðunum í heimalandi sínu. Þorvarður Tjörvi Ólafsson lék á sínum tíma bæði með Haukum og Árhus GF og þekkir því til félaganna beggja. „Haukar verða að eiga toppleik til þess að leggja Árhus GF af velli. Varnarleikurinn og markvarslan verða að vera í góðu lagi til þess að eiga möguleika. En ég hef fulla trú á Haukum og á von á hörkuleik." Arhus GF spilar virkilega hraðan handbolta og því verða Haukar að vera tilbúnir til þess að stjóma leikn- um að mati Þorvarðs Tjörva. „Það er mikilvægt fyrir Hauka að reyna að stjórna hraðanum í leiknum frá fyrstu mínútu. Formúlan að sigri á dönskum liðum er að lemja á þeim og spila fastan vamarleik. Haukar geta þakkað fyrir það að þurfa ekki að glíma við Henrik Hansen, sem er meiddur. Hann er lykilmaður í bæði vöm og sókn. Hann hefur unnið sig inn í danska landsliðið að undan- förnu þannig að það mun muna mik- ið um hann. Árhus GF er veikara lið án hans.“ Páll Ólafsson, þjálfari Hauka, ætl- ar að leggja upp með að spila góða vöm og reyna að stjóma hraðanum í sóknarleiknum. „Liðin í Danmörku L,spila yfirleitt skemmtilegan hand- ^bolta þar sem mikið er skorað af mörkum. Við verðum að vera ein- beittir ffá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og ef menn hafa hugann við leikinn, eitthvað sem hefur vantað hjá okkar það sem af er móti, þá eig- um við að geta staðið í þessu liði og jafnvel unnið.“ Mikið ísiendingalið Nokkuð margir fslendingar hafa leikið með Árhus GF í gegnum tíðina og er skemmst að minnast Róberts Gunnarssonar, línumannsins knáa, en hann lék með liðinu í þrjú ár og var kosinn besti leikmaður dönsku deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann er nú genginn til liðs við þýska liðið Gummersbach og hefur byrjað tfma- bilið vel í Þýskalandi. Sturla Ásgeirsson, fyrrverandi leikmaður ÍR, leikur nú með Árhus GF og hefur staðið sig ágætlega með liðinu það sem af er leiktíðinni, en hann lék einnig með liðinu á síðustu leiktíð þegarÁrhus GF komst í úrslit í úrslitakeppninni í danska handbolt- anum. Árhus GF mikið sóknarlið Hinn frægi þjálfari Erik Veje Rasmussen stýrir danska liðinu en hann er þekktur fyrir að láta lið sín einbeita sér að hröðum og skemmti- legum handbolta þar sem mörg mörk eru skoruð. „í öllum leikjum Árhus GF er yftrleitt mikið skorað. Erik Veje leggur áherslu á að skora mikið en á móú kemur að Árhus GF fær yfirleitt mörg mörk á sig þannig að það er um að gera fyrir Hauka að reyna að spila góða vöm og spila skipulagðan sóknarleik. Ég tel mögu- leikana alveg ágæta fyrir Hauka ef þeir eiga toppleik." magnush@dv.is „Það er mikilvægt fyr- ir Hauka að reyna að stjórna hraðanum í leiknum frá fyrstu mínútu." Árni Sigtryggsson Mikið mun mæða á Áma Sigtryggs- syni íleiknum idag. Hann hef- ur farið frekar róiega afstað það sem afer fslandsmóti en verður vonandi í stuði i dag. DV-mynd Heiða Þjálfaraskipti hjá ÍBV í handboltanum. Kristinn Guðmundsson tekur við af Erlingi Erlingur einbeitir sér að spilamennskunni í vetur Erlingur Richardsson sem hefur þjálfað karlalið ÍBV í handboltan- um undanfarin ár hefur ákveðið að hætta sem þjálfari og snúa sér al- farið að því að spila með liðinu. Aðstoðarmaður hans, Krisdnn Guðmundsson, tekur við sem aðal- þjálfari. ÍBV tapaði tveimur fyrstu leikjum íslandsmótsins stórt, gegn ÍR og HK, en vann Víking/Fjölni. Erlingur segist hafa tekið þessa ákvörðun einfaldlega vegna þess að starfskraftar hans nýtist betur inni á vellinum en utan hans. „Svavar Vignisson, línumaðurinn hrikalegi, er meiddur og hefur ekkert leikið í haust en hann var eini leik- maðurinn sem eftir var af byrjunar- liðinu frá síðustu leiktíð. Það vantaði einnig kjölfestu í vömina og því ákvað ég að einbeita mér að því að „Við ætluðum að gera þetta fyrir mánuði síð- an en ákváðum að bíða aðeins." spila með liðinu en láta Kristin um að stjóma liðinu. Við ætíuðum að gera þetta fyrir mánuði síðan en ákváðum að bíða aðeins með þetta en þar sem Svavar er enn meiddur var ákveðið að kýla á þetta," sagði Erlingur við DV Sport. ÍBV fékk fjóra nýja úúenda leik- menn fyrir leikúðina en þeir hafa ekki staðið undir vænúngum. Er- lingur sagði að þeir væm að koma til og ekki stæði til að skipta þeim út og fá nýja. Hættur að þjálfa Erlingur Richardsson heldur áfram að spila með IBVen hættir að þjáifa liðið. Kristinn Guðmundsson, sem sést á myndinni með Erlingi, mun taka við þjálfun liðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.