Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 45
W Sport LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER2005 45 Hver er besta staða Becks? David Beckham hefur verið besti leikmaður Real Madrid í upphafi leiktíðarinnar og leyst hlutverk sitt prýðilega sem djúpur miðju- f maður. Þetta segir i gjS Wanderley Lux- emburgo, þjálf- Tfe, ari Real Ma- drid. „Beck- /®|HhHHI ham hefur spilaö frábær- ISL %2fjɧÉ| lega í lengri tima. Ég er mjög ánægður Ijfe aSlBfr með \innu- framlag hans." :|f\ I yS&gk A sama tíma og Wfs-1 ® f|9 Beckhamferá kostumámiðj- i %sa unni með Real jgPj Madrid ætlar Sven r*’l 6n Göran Eriksson, landsliðsþjálfari flpiR Englands, hins J*! vegar að færa Beck- '•* ham aftur út á hægri vænginn í landsliðinu í leikjunum mikil- vægu gegn Austíirríki og Póllandi. Kristján valin sá besti Markvarðafélag KR hefur út- nefnt Kristján Finnbogason mark- vörð ársins hjá félaginu. Þetta var í annað sinn sem markvarðafélag- ið útnefnir markvörð KR. í fyrra útnefhdi það Atla «Jónasson markvörð * ársins en hann lék þá með hinu ósigr- andi liði 3. \ flokks. Mark- ^ varðafélagið hefur starfað umárabil midir stjóm Heimis Guðjóns- sonar, markvarðar gullaldarliðs KR á sjötta og sjöunda áratugn- um. í félaginu em jafiit ungir sem eldri markverðir félagsins en við- staddir afhendinguna vom auk Kristjáns og Heimis þeir Guð- mundur Pétursson, Magnús Guð- mundsson, Halldór Pálsson, Atli Jónasson, Runólfur Þórhallsson, Einar Andri Einarsson, Magnús Andri Pétursson og Hugi Jóhann- esson. Útnefningunni fylgir mjög veglegur farandgripur sem verður afhentur í 20 skipti en síðan skal hann geymdur í KR-heimilinu. Ulfar hættir á toppnum Úlfar Hinriksson, þjálfari ís- lands- og bikarmeistara Breiða- bliks, verður ekki áfram þjálfari liðsins. Málið er allt hið furðuleg- asta enda náði Úlfar frábæmm árangri í sumar og svo virðist sem Blikar hafi gjörsamlega klúðrað málum. Úlfar segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér að í ljósi þess að engar viðræður hafa átt sér stað við hann undanfamar tvær vikur af hálfu kvennaráðs Breiðabliks um áframhaldandi þjálfun, lítur Úlfar svo á að ekki sé óskað eftir starfskröftum hans á næsta keppnistímabili. Þá lýsir Úlfar yfir fiirðu siimi á þessum vinnubrögðum. „Ég hef þjálfað hjá knattspymudeild Breiðabliks ffá árinu 1995 við / |; góðan orðstír, L ; nú síðast ís- lands- og bikar- meistara í meist- Jfé arciflokki kvenna. V Aðlokumvilég M óska félaginu og Zj \ leikmönnum alls m , hins besta á komandi árum,“ segir Úlfar í yfir- 'viÍÉ' lýsingunni. Helgi Valur Daníelsson og Haukur Ingi Guðnason hafa verið með eftirsóttustu knattspyrnumönnum landsins en samningar þeirra við Fylki í Árbæ renna út í haust. Þeir héldu hins vegar tryggð við sitt lið líkt og tveir aðrir lykilmenn sem allir skrifuðu undir þriggja ára samninga. Fjópin fræknir framlengja við tl,l.AG' BOWUS , BO1Í0S BÓHUS bónus Áfram f Árbænum ÞeirEyjólfur Héðinsson, Haukur Ingi Guðnason, Hrafnkell Helgi Helgason og Helgi Valur Daníelsson skrifuðu i gær undir nýjan samning við Fylki. DV-mynd Villi vinnumennskunni æda Fylkismenn ekki að vera með nein leiðindi heldur skoða það þegar þar að kemur með opnum huga. Skuldbinding til þriggja ára er ekkert svakalegt í mínum augum. Fylkir er einfaldlega minn klúbbur,“ segir Helgi Valur sem hefur leikið 68 leiki í Landsbankadeildinni fyrir Fylki og skorað 5 mörk. Með samningnum við ijórmenn- ingana hafa Fylkismenn samið við allar helsm kanónur liðsins, nema Val Fannar Gíslason. „Ég vildi einfaldlega ekki skrifa strax undir en ég er að velta nokkum hlutum fyrir mér. Mér finnst hins vegar ólíklegt að ég spili fyrir annað lið á íslandi en Fylki,“ sagði Valur Fannar við DV Sport. Tveir af eftirsóttustu knatt- spyrnumönnum landsins, Helgi Valur Daníelsson og Haukur Ingi Guðnason, skrif- uðu í gær undir nýja samninga við Fylki til þriggja ára. Auk þeirra skrifuðu Hrafnkell Helgason og Eyjólfur Héðins- son undir þriggja ára samninga ásamt Jóni Sveinssyni, aðstoð- arþjálfara. Haukur Ingi segist hafa skuldað Fylki að skrifa undir nýjan samning eftir að félagið sýndi honum mikinn stuðning í erfiðum meiðslum í tæp tvö ár. Tveir leikmenn eru enn samningslausir, Valur Fannar Gíslason og Kristján Valdimarsson. Helgi Valur segir að Fylkir hafi alla burði til þess að berjast um ís- landsmeistaratitilinn næsta sum- ar. „Þegar allir eru heilir erum við með góðan mannskap. Síðasta sumar voru margir meiddir og ver- ið að rótera mikið með menn í stöðum. Við náðum aldrei stöðugleika. Þetta fer eftir því hvort allir halda áffam sem voru í fyrra og em samn- ingslausir og einnig hvort takist að bæta við tveimur til þremur leik- mönnum í viðbót til að styrkja hóp- inn enn betur. Markmiðið næsta sumar er að beijast um íslandsmeistaratitilinn. Við viljum ekki vera í 5. sæti aftur.“ thorsteinngunn@dv.is Alla burði til að vera á toppnum Leifur Garðarsson, nýráðinn þjálf- ari Fylkis, fagnaði því að fjórmenn- ingarnir hefðu gert nýja samninga við félagið. Það hefði verið formsat- riði en í framhaldinu yrði skoðað með frekari liðsstyrk. Helgi Valur var sterklega orðaður við FH auk þess sem hann hefur ver- ið að þreifa fyrir sér með lið í Noregi og Svíþjóð en hann lék á sfnum tíma með Peterborough. Helgi Valur er hins vegar í háskólanámi og ákvað að gera nýja samning við Fylki. „Ég hef verið að þreifa fyrir mér í útíöndum en ekkert komið út úr því núna. Mér leist vel á það sem Fylkis- menn buðu mér og var glaður að geta leyst þetta svona fljótt. Ef það skyldi eitthvað koma upp á borðið í at- „Efþað skyldi eitthvað koma upp á borðið í at- vinnumennskunni ætla Fylkismenn ekki að vera með nein leiðindi heldur skoða það þegar þar að kemur með opnum huga." Breytingar hjá ungmennalandsliði íslands í fótbolta Eyjólfur Gjafar kallar á unglinga Þeir Bjami Þór Viðarsson, Theó- dór Elmar Bjarnason og Rúrik Gfsla- son hafa allir verið kallaðir í lands- liðshóp Eyjólfs Gjafars Sverrissonar, þjálfara U-21 árs liðs íslands í fyrsta sinn. Mikil pressa hefur verið á Eyjólfi Gjafar að velja þessa ungu og bráðefnilegu drengi og loks lét hann undan og ætíar að gefa þeim tæki- færi gegn Svíum ytra þann 11. októ- ber. Hins vegar á eftir að tilkynna um endanlegan hóp. Bjami Þór er 17 ára miðvallar- leikmaður úr Hafnarfirði sem leikur með Everton í Englandi. Bjarni þór er duglegur miðvallarleikmaður með næmt auga fyrir samleik og mikinn leikskilning þrátt fyrir ungan aldur. Rúrik er sömuleiðis 17 ára. Hann leikur með Charlton á Englandi. Rúrik er eldfljótur, kraft- mikill, góður skotmaður og getur leyst flestar stöður á miðjunni og í framlínu. Sama má segja um Theó- dór Elmar, leikmann Celtic í Skotíandi sem er 18 ára en hann er afskaplega fjölhæfur leikmaður með mikla boltatækni. Haft hefur verið á orði að boltatækni Theódórs Elmars minni helst á Cristiano Ronaldo, leikmann Manchester United. Rúrik Gíslason er hæstánægður með valið í landsliðið: „Ég hef stefnt að þessu í þó nokkum tíma og því afar ánægjulegt þegar kaUið kom,“ sagði Rúrik sem gekk til liðs við Charton frá HK sem er uppeldisfélag hans. „Mér líður bara mjög vel, mikið betur en til dæmis hjá Anderlect þar sem ég var í fyrra. Ég kann mjög vel við mig á Englandi, hér snýst hrein- lega allt um fótbolta." Aðspurður hver sé besti sam- herjinn hjá Charlton sagði Rú- rik: „Þetta er mjög erfið spurn- ing, eigum við ekki að segja Hemmi (Hermann Hreiðars- son). En annars er mjög erfitt að segja til um það. Darren Bent er mikill markaskorari :n þeir Danny Murphy og Alexei Smertin eru kannski með bestu tæknina og svona,“ sagði Rúrik. í U-21 árs landsliðinu Theódór Elmar Bjarnason. DV-mynd Pjetur Marel á leið til Blika? Marel Baldvinsson, leikmai ^ere"f ® er á leið heim ætíar sér að spila á íslandi. Ma: ff^^^^-heftu-Jeildð 141an< leiki fynr íslands hönd “ m uja otanæk gekk Mar< Islendingaliðið Lokeren Marel þjáist af bijós hnéogþolirillaþaðálai atvinnumennskunni. Ha vegar allur að ná sér. .. Rp hpf .k . betra Iíkamlegu standL Það verfe Hlakann en ég er ekki á leiðiS boltann á íslandi til að að se temar upp í loft eins og einhvei hafe gert þegar þeir hafe kon umhu&“sagðiMareL ., -’^sulega hefúr Breiðablik iö nefiit en það er ekkert ákve sagði Marel spurður um hvar i muni spila á næsta sumri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.