Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Blaðsíða 17
X3V Helgarblað LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 17 „Þau voru mjög ástfangin og ég held að Jónína hafi fyllt upp í ákveðið tómarúm sem var í lífi Jóhannesar á þessum tíma, Hreinskilin og full af réttlætiskennd Jóhanna Klara, dóttir hennar, hefur þau orð um móður sína sem hún segir bestu mömmu í heimi. ■zA «• ■ * búsettir í Svíþjóð veittu Jónínu fljótt athygli í fjölmiölum þar í landi og furðuðu sig á hve stuttan tíma það tók hana að fá þá til liðs við sig. Þeir sem þekkja Jónínu segjast ekki vera hissa á því; hún viti nákvæmlega hvemig hún á að nota sér fjölmiðla í eigin þágu. Stöðvarnar í Svíþjóð gengu vel og Jónína var meðal annars kjörin atvinnurekandi ársins í Helsingja- borg eitt árið. Það var því erfið ákvörðun hana að snúa aftur til íslands frá vel gengninni þar. Ingibjörg systir hennar segir að í huga þeirra hjóna hafi það vegið þyngra að börnin Jóhannes í Bónus Hann kom á stöðina tilJónlnu og þar með hófst samband sem margir halda fram að hafí orðið til að hrinda afstað atburðarás sem ekki sér enn fyrir endann á. þeirra fengju að alast upp í ís- lensku samfélagi. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er og ekki er víst að Jóm'na hefði hreyft sig langt hefði hún vitað hvað beið hennar hér á landi. Samfélagið sem hún kaus að lifa í hefur hún haft sitt- hvað við að athuga og ekki dregið af sér í gagnrýni sinni á það. Jónína ogJóhannesvoru glæsilegt par Eftir heimkomuna hófst Jónína strax handa við undirbúning að opnun nýrrar stöðvar; stöðvar sem skyldi vera öðmvísi enn menn hér áður þekktu. Hún opnaði því Planet Pulse á Hótel Esju 1997. Stöðin var glæsileg og þar var lúxusinn meiri en menn áttu að venjast, enda kostaði sitt að stunda líkamsrækt þar. Þeir sem höfðu búið erlendis skildu vel hvað Jón- ína var að gera og hvaðan hug- myndin var komin. Og hún virkaði líka hér. í Planet Pulse var Jóhannes einn viðskiptavina og Jónína tók vel á móti sínum kúnnum. Hjóna- band þeirra beggja vom að enda- mörkum komin. Haft er eftir vini þeirra á þeim tíma að líklega hafi samband þeirra orðið að veruleika einmitt þess vegna. Jónfna hafi verið rétt manneskja, á réttum stað, á réttum tíma. Ingibjörg, systir Jónínu, segir á hinn bóginn að það hafi ekki leynst neinum hve ánægð þau Jóhannes og Jónína hafi verið. „Þau vom mjög ástfangin og ég held að Jón- ína hafi fyllt upp í ákveðið tóma- rúm sem var í lífi Jóhannesar á þessum tíma,“ segir Ingibjörg og bætir við að þau Jóhannes hafi verið glæsilegt par. Sambandið ekki byggt á ást Þeir sem umgengust þau Jó- hcinnes og Jónínu á þessum tíma em ekki allir sammála um að svo hafi verið. Náinn vinur þeirra sem DV ræddi við telur að samband þeirra hafi ekki endilega verið byggt á ást, heldur hafi kynni m fyrir þeirra fremur gefið þeim færi á að losna úr eigin hjónaböndum. Þau hafi leyst það með þessum hætti. Auk þess hafi Jóhannes drukkið talsvert um þetta leyti og Jónína hafi aðeins verið góður drykkju- félagi. Það kemur heim og saman við að þau Jónfna vom talsvert út á við, létu sig ekki vanta í samkvæmi sem þau vom boðin í og vom ósjaldan í útlöndum. Meðal „Þeirsem umgengust þau Jóhannes og Jón- ínu á þessum tíma eru ekki allir sammála um að svo hafi verið. Ná- inn vinur þeirra sem DV ræddi við telur að samband þeirra hafi ekki endilega verið byggt á ást, heldur hafi kynni þeirra fremur gefið þeim færi á að losna úr eigin hjónaböndum." annars kynntist Jónína Jóni Gerald vel á þessum tíma vegna tíðra ferða þeirra í snekkjuna á Flórída. Um svipað leyti keypti Jónína glæsilega íbúð með útsýni til allra átta í Bryggjuhverfinu. Hún inn- réttaði hana fallega og þar hófu þau búskap. Nokkru seinna keypti Jóhannes hús á Akureyri og var ekkert til sparað til að búa það sem best úr garði. Jónína segir í viðtali við Mannlíf skömmu eftir sam- bandsslitin að hún hafi keypt hús- ið með Jóhannesi og innréttað að sínum smekk. Þar hafi þau átt ynd- islegar stundir sem hún tregi mjög. Heimildarmaður okkar segir hins vegar að Jóhannes hafi frá fyrstu stundu átt húsið einn. Það hafi aldrei komið til greina að Jónína kæmi þar að. Jónína er myndarleg húsmóðir og Ingibjörg systir hennar segir að hún sé mjög góður kokkur, eldi frá- bæran mat og heimili hennar sé alltaf glæsilegt, hvar sem hún búi. Ætlaði að giftast Jóhannesi Fljótlega eftir kynnin við Jóhannes fór Jónína að huga að því að færa út kvíarnar. Hún keypti nokkrar stöðvar og breytti þeim í Planet. Stöðvarnar vom Planet City, Planet Esja, Planet Gym 80, Planet Pump, Planet Sport og Planet Pulse Heilsuskólinn. Allt gekk eins og best verður á kosið hjá henni og glæsileg stöð í Austurstræti var í undirbúningi. En stöðin varð um leið hennar banabiti. Kostnaður fór upp úr öllu valdi en heimildar- menn DV telja að það hafi haft áhrif að menn töldu að Jóhannes stæði að baki henni og nægir pen- ingar væm fyrir hendi. Því væri í lagi að smyrja á alla vinnu. Aðrir telja það alís ekki skýringuna, Jón- ína hafi einfaldlega ekki reiknað dæmið rétt eða talið að í lagi væri að skuldsetja sig upp úr öllu valdi, Jóhannes kæmi að því að borga brúsann fýrir hana. Sjálf kenndi Jónína Ingibjörgu Sólrúnu um vegna þess að Austurstrætið var sundurgrafið um það leyti sem hún ætlaði að opna og það hafi dregið úr gestakomum. „Hún ætlaði sér að giftast Jó- hannesi, það fór aldrei á milli mála, en ég held að hann hafi ekki verið á þeim buxunum. Hann sá ekki samband þeirra þannig og hélt sér utan við öll hennar við- skipti," segir heimildarmaður okk- ar og bætir við að þau Jóhannes og Jónína hafi haft algjörlega aðskil- inn fjárhag. Jóhannes hafi ekki skipt sér af þvf sem hún var að gera að öðm leyti en því að gefa henni góð ráð. Tók höfnuninni ekki þegjandi Annar heimildamaður okkar sem hefur stundað viðskipti lengi og þekkir vel til í viðskiptaheimin- um segir að ef eitthvað hafi verið, þá hafi Jónína grætt á að vera í sambandi við Jóhannes. „Hún fékk fyrirgreiðslu sem hún hefði aldrei fengið nema vegna þess að bank- inn taldi Jóhannes vera fjárhags- lega að baki henni. Hún notfærði sér líka óspart vini hans og þeir vom tilbúnir að greiða götu henn- ar þess vegna. Jónína Benedikts- dóttir getur engum um kennt hvemig fór, nema sjálfri sér,“ segir þessi maður. Samband þeirra Jóhannesar varði aðeins um tvö ár. Jóhannes virðist ekki hafa blandað henni mikið inn í fjölskyldumál sín eða kynnt hana fyrir sínu fólki nema að takmörkuðu leyti. Enda hefur Jónína sjálf sagt að hún þekki Jón Ásgeir, son Jóhannesar, ekki neitt. Seint á árinu 2001. fór að fjara undan sambandi Jónínu og Jó- hannesar en heimildarmaður okk- ar segir að það hafi tekið nokkurn tíma að renna sitt skeið á enda. Jónína tók því illa; var ekki tilbúin að taka þeirri höfhun þegjandi eins og komið hefur á daginn. Gjaldþrot blasti við Jónína lenti í miklum fjárhags- legum erfiðleikum vegna líkams- rætarstöðva sinna og réri lífróður til að bjarga þeim, en án árangurs. Svo fór að ekki blasti annað við en gjaldþrot, sem Jónínu tókst ekki að afstýra og varð hún síðar lýst gjald- þrota. Eftir sambandsslitin við Jó- hannes og gjaldþrotið virðast hafa orðið miklar breytingar á h'fi Jón- ínu. Það er í raun ekki skrýtið því í fyrsta sinn frá átján ára aldri var Jóm'na ein og ekki í sambandi. Hún var iðin við að halda boð heima hjá sér og ófeimin við að bjóða þekkt- um einstaklingum sem hún þekkti lítið sem ekki neitt. Meðal þeirra voru Ingibjörg Sólrún og Stefán Jón Hafstein með mökum, eins og greint hefur verið frá. Þá fór Jóm'na að umgangast talsvert gamla vini og kunningja frá æskuárunum á Húsavík en í þeim hópi voru Arn- þrúður Karlsdóttir, Sólveig Hákon- ardóttir, móttökustjóri á 101 hóteli, og Bryndís Torfadóttir, um- boðsmaður SAS á íslandi. Bryndís segist ekki geta sagt neitt nema gott eitt um Jónínu. „Við þekktumst ekki nema af af- spurn heima á Húsavík enda er ég mörgum árum eldri en Jónína. Hún bauð okkur hins vegar öhum saman í mat á heimUi sitt og eftir það hittumst við oft, skemmtum okkur og spjöUuðum. Það leyndi sér ekki að Jónína var sár og bitur eftir sambúðarslitin við Jóhannes og þau voru henni erfið. En Jóm'na er mikið hörkutól, afskaplega dríf- andi og skemmtUeg ef sá gáUinn er á henni," segir Bryndís og neitar ekki að líklega eigi Jónína tíl að vera dálítið fljótfær. Framhaldá næstusíðu Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi ástmaður Jónfnu Jónina hefur ekki aðeins átt ísambandi við Styrmi eftir að slitnaði upp úr hjá þeim Jóhannesi, heldur koma fleiri nafntogaðir menn þar við sögu. Það staðfestu fleiri en einn viðmælenda sem leitað var til við vinnslu þessarar Nærmyndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.