Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER2005 Fréttir DV Kostir & Gallar Hannes er skarpgáfaöur maður og uppfullur afatorku. Hannes er ofkappsamur í rökræðum og þykir skorta félagslega næmni. „Hannes hefur haft meiri áhrifá þær já- kvæðu breytingar sem orðið hafa á ísiensku samféiagi á undan- förnum árum en margan grun- ar. Hugmyndabarátta hans á ní- unda áratugnum færðiSjálf- stæðisflokknum þann grunn sem hann hefur staðið á siðan. Þar fyrir utan er Hannes einstak- iega traustur vinur og með allra skemmtilegustu mönnum. Dugnaðurinn erstundum svo mikill að hann gleymir stund og stað og getur þá jafnvel virst hranalegur við þá sem ekki þekkja hann." Gísli Martelnn Baldursson, gamall nemandi Hannesar. „Hannes er þrældug- legur kappi og lætur þannig aila aðra líta iila útísamanburði, sem er ókostur frá mín- um bæjardyrum séð. Hann er snöggur að hugsa og það er ein- stakiega gaman að sitja yfir góðri máltíð með honum. Hann sér líka hlutina ískemmtilegu ijósi. En hann er dáldið fljótur upp og verður mjög pirraður á mettíma, efþannig liggur á honum. Hann er ekki mikill „handyman"." Rúnar Freyr Gíslason lelkari. „Það er lifsreynsla út affyrir sig að kynnast honum. Það auðgar líf manns að þekkja menn eins og hann, gerir það fjölbreyttara og skemmtilegra. Hann er klár drengur og stórskemmtiiegur þegar sá gállinn er á honum. Hann er náttúruiega dáldið yfir- gengitegur og það fer feikiiega mikið fyrir honum. En þetta er svo sem ekkertsem hann veit ekkifyrir." Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor viö Háskóla Islands. Hannes Hólmsteinn er fæddur og uppalinn í Reykjavlk. Hann hefur verið meðal áhrifa- manna í Sjálfstæðisflokknum og farið mik- inn í fjölmiðlum. Hann hefur BA-próffrá HÍ/ heimspeki og sögu. Hann hefur líka doktorspróf frá Oxford-háskóla í stjórn- málafræði. Nú er hann prófessor viö Hí. Stjórnarandstöðuþingmennirnir Magnús Þór Hafsteinsson og Lúðvík Bergvinsson telja að efnahagsmálin muni einkenna fyrstu daga þingsins sem sett verður í dag. Að auki munu Baugsmál og embætti Ríkislögreglustjóra verða í brennidepli. Magnús Þór Hafsteinsson Segirmikinn þrýsting kominn á kútinn. Hann telur vistað Baugsmál verði ræddstrax á fyrstu dögum þingsins. Lúðvik Bergvinsson Telur trúlegt að menn munispyrja Björn Bjarnason út í gagnrýni sem Rikislögreglustjóri hefur sætt að undanförnu. „Það verða örugglega helvítis læti. Það er kominn svo mikill þrýstingur á kútinn," segir Magnús Þór Hafsteinsson, þingmað- ur frjálslyndra, í samtali við DV. í dag hefjast störf Alþingisþennan veturinn með þingsetningu. A mánu- dagsmorgun verður svo framhalds- þingsetning og gengið frá kosningum í nefndir. Það er ekki fyrr en um há- degisbil að skýrist hvaða pantanir þingmenn hafa lagt fram varðandi utandagskrárumræðu. Víst er að margir bíða þess spenntir hvort þing- ið muni ekki taka á hitamáli undan- farinna daga: Baugsmálinu. Mogginn sýnir sitt rétta andlit „Það verður tekið inn með einum eða öðrum hætti. Það er augljóst. Við í stjómarandstöðunni höfum reynd- ar ekkert krúnkað okkur saman um það í sjálfu sér. Við hjá Fijálslynda flokknum höfum verið að gera okkur klára í báta og undirbúið okkar þing- mál.“ Magnús segist hafa horft á í for- undran hvemig Morgunblaðið hefur afhjúpað sjálft sig og tjónkun þess við Sjálfstæðisflokkinn. „Mogginn hefur viljað kalla sig málgagn allra lands- manna. Maður var löngu búinn að sjá í gegnum það, reyndar. En við emm guðs lifandi fegin því að koma hvergi nærri þessu rugli. Enginn hef- ur sýnt okkur neina tölvupósta. Eða boðið okkur í mat. Ljóst er að það þarf að fara að taka til í þessu þjóð- félagi." Ógeðslegur og fúll forar- pyttur Annar stjómarandstöðuþing- maður er Lúðvík Bergvinsson hjá Samfylkingu. Hann telur að efna- hagsmál muni vitaskuld einkenna fyrstu daga þingsins; fjárlagaum- ræða, staða krónunnar og staða . samkeppnis- og útflutningsgrein- : anna. „Þessi máf munu verða dómínerandi og svo held ég að menn hljóti að spyija dómsmála- ráðherra um þá gagnrýni sem komið hefur fram á embætti Ríkislögreglu- stjóra undanfama daga og vikur. Ég trúi að það sé mál sem menn hljóti að taka upp Þau em vissu- lega margvísleg málin sem nú brenna á samfélaginu." Og Magnús tekur í sama streng og skefur ekki utan af því fremur en fyrri daginn: „Það er eitt- hvað mikið að í þessu þjóðfélagi. Og við emm sennilega að- eins að sjá í toppinn á ísjakanum. Sjáum glitta í ógeðslegan og fúlan forarpytt," segir Magnús og telur að ýmislegt meira eigi eftir að koma á daginn hvað varðar spillingu á stjómarheimilinu. jakob@dv.is Auglýsingasímar DV eru 550 5833 550 5811 8217514 Netfang okkar er aualvsinaar@dv.is Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar Vill einkavæða heilbrigðiskerfið Varaformaður Samfylkingarinnar vill auka einkarekstur í heilbrigðiskerf- inu og skipta upp heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu. Agúst Ólafur Ágústsson segir markmiðið skipta máli en ekki leiðina. Guðlaugur Þór Þórð- arson fagnar því að vinstrimenn séu að sjá ljósið. „Markmiðið með auknum einkarekstri Guðlaugur Þór eða rekstri sjálfseign- Þórðarson arstofnana í heil- alþingismaður brigðisþjónustu er að betri þjónusta fáist fyrir sömu eða minni fjármuni," segir Ágúst Ólafur í pistli á heimasíðu sinni. Hann bætir við að hann vilji skipta upp heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. „Fjár- mögnun þjónustunnar á að vera á hendi hins opinbera en rekstur getur Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar Vill færa heilbrigðis- kerfiö nær lögmálum markaðarins. verið á vegum einkaaðila." Skrif Agústs koma í kjölfar niður- stöðu stefnumörkunarhóps Samfylk- ingarinnar í heilbrigðismálum. Össur Skarphéðinsson hóf umræðu um málið fyrir um tveimur ámm og í kjölfarið fór stefnumörkunarvinna í gang innan flokksins. Ljóst er að Samfylkingin vill ganga lengra í einkarekstri en vinstri- menn hafa veigrað sér við og er stefna flokksins orðin áþekk stefnu Sjálfstæð- isflokksins í þessum efnum. „Ég fagna því að menn séu að sjá ljósið í þessum efrium," segir Guðlaug- ur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæð- isflokksins. Hann segir oft hafa verið uppi hugmyndir um að skipta ráðu- neytinu upp en menn séu sammála um að greiða eigi fyrir þjónustu úr opin- bemm sjóðum. „Það er samt sjálfsagt að nýta kosti einkareksturs þama eins og annars staðar. Aðalatriðið er að fólk fái góða þjónustu óháð efnhag." f lok greinar sinnar segir Ágúst að ef farið verði að hugmyndum Samfylk- inginnar sé hvatt tif spamaðar og hag- kvæmni. „Rekstrarumhverfi heilbrigð- isþjónustu [er] fært nær lögmáfum markaðarins," segir Ágúst Ólafur sem mun trúlega vinna sér hylli hægrisinn- aðra afla innan Samfylkingarinnar með hugmyndum sínum. simon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.