Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER2005
Helgarblað DV
Flest söfnum við einhverju sem börn. Margir safna spilum og frímerkjum og aðrir hlutum sem erf-
iðara er að ná höndum yfir. Flestir vaxa upp úr söfnunaráráttunni en aðrir halda henni áfram eða
taka hana aftur upp eftir nokkurra ára hlé. Margt sem hinn almenni borgari sér sem ónýtt drasl
getur verið dýrmætt í augum safnarans. DV heyrði í nokkrum forföllnum söfnurum og fékk að for-
vitnast um söfnin sem eru hvert öðru glæsilegra.
eða ómetanleg varðveisla
menningapvepðmasta
Sævar Þ. Jóhannes-
,Ég nálgast þessa
Baldvin Hall-
dórsson „Þetta er
bara flkn. Efég veit
afgóöum hlut sem
ég kemst ekki I eöa
efég hefekkert
fengið I langan
tímaþáliður mér
ekki vei," segir
Baldvin.
son„/_
klúta á netinu því þótt
I þeir hafi veriö fram-
leiddir hér á landi
sendu hermennirnir
'þá út úr landi til fjöl-
skyldunnar sinnar,"
segirSævar.
Karólína
Snorradóttir
Karóllna hefur
safnað salt- og
piparstaukum i
umtíuárogá
nú 60 pör.
Guðrún Þ. Guðmunds-
dóttir „Ég á nokkrar sér-
stakar kaffikvarnir sem
mér þykir afar vænt um
aukþesssemégheld
meira upp á sum kort en
önnur," segir Guðrún.
Dúkkulfsurnar
Guðrún og systur
hennar léku sér að
dúkkulisunum þeg-
ar þær voru litlar.
Ákveðin klikkun
„Ég hef alltaf verið að safna ein-
hverju," segir Karólína Snorradóttir
sem safnar meðal annars salt- og
piparstaukum, pennum, fingur-
björgum, postulínsdúkkum og
drykkjarkönnum.
Karólína hefur safnað að sér salt-
og piparstaukum í um tfu ár og á nú
um 60 pör.
„Þetta er alls ekkert svo dýrt því
bæði fæ ég þetta gefins og svo kaupi
ég þetta þegar ég er á ferðalögum
eða í Góða hirðinum," segir Karólína
en bætir við að þetta áhugamál sé
frekar plássfrekt.
Karólína segist ekki geta útskýrt
þessa söfnunaráráttu en öll fjöi-
skylda hennar tekur þátt í henni
með henni. „Ég veit ekki hvað á að
kalla þetta. Ætli þetta sé bara ekki
ákveðin tegund af klikkun," segir
hún brosandi. „Fingurbjargimar em
ákaflega hentugar og ég varð vör við
að þær fengust í öllum ríkjum
Bandaríkjanna. Þær taka lítið pláss
enda litlar þótt það breytist fljótt
þegar þær em komnar margar sam-
an."
Karólína heldur mest upp á salt-
og piparstauka með áletruninni
Home Sweet Home. „Sonur minn
hafði nefnilega keypt þá í Bandaríkj-
unum en annar staukurinn brotnaði
á leiðinni heim. Þremur ámm síðar
fór ég til Bandaríkjanna og sá alveg
eins stauk og sá sem brotnaði. Þetta
sett á sér því skemmtilega sögu og ég
held mest upp á það. “
'A !•- á í,jl car.
j$mí lilifiiMti
KlSMMÆiÉJm
HAlTExfRÁKTl I
Safna gömlu dóti fjölskyld-
unnar
„Ég hef gaman af öllu gömlu dóti
en vil helst vita hver átti hlutina áður
en ég sanka þeim að mér," segir
Guðrún Ásgerður Steingrímsdóttir
sem á myndarlegt safn af dúkkulís-
um. Guðrún Ásgerður og systur
hennar léku sér með dúkkulísurnar
þegar þær vom litlar stúlkur. Margar
þeirra vom klipptar út úr bakhlið á
haframjölspökkum og úr tfmaritum
en þær elstu em líklega frá árinu
1957. „Aðrar vom svo keyptar í búð
og em voðalega fi'nar með hár og
svona," segir Guðrún og bætir við að
hún haldi mest upp á þær.
Guðrún hefur sankað öllu mögu-
legu að sér í gegnum tíðina og hefur
mjög gaman af gömlu dóti. Hún seg-
ist þó ekki kaupa sér dót á skransöl-
um því hún vilji vita hvaðan dótið
komi. „Mér finnst skemmtilegt að
safna dóti fjölskyldunnar því oft er
þetta msl í annarra manna augum. í
staðinn fyrir að henda þessu koma
þau þessu til mín því ég held utan
um þetta," segir hún og bætir við að
hún hafi snemma verið farin að
safna að sér dóti. „Ég man eftir mér
ungri í sveit að tína fjaðrir og annað
dót auk þess sem ég var alltaf sólgin
í klaufir, hom og bein en eftir að ég
fullorðnaðist lærði ég að vinna úr
hornum og beinum. Svo snemma
beygist krókurinn."
Hægt er að skoða fleiri myndir af
hlutunum hennar Guðrúnar á heim-
síðunni listalind.is
Söfnun er fíkn
„Ég safna nánast flestu sem hönd
á festir en er aðallega í seðlum og
mynt og öðmm sniðugum íslensk-
um hlutum," segir Baldvin Halldórs-
son sem hefur safnað af ástríðu síð-
ustu 20 til 30 árin. „Ég byijaði sem
krakki að hirða allt og henda engu
og svo safnaðist þetta upp,“ segir
Baldvin og bætir við að safnið sé afar
plássfrekt þó því sé skipulega komið
fyrir. „í dag er ég aðallega í að safna
smáhlutunum og til dæmis þá á ég
miða af öllum íslenskum gos- og
bjórflöskum síðan framleiðsla hér
byrjaði."
Baldvin segir að söfiiunaráráttan
sé einhvers konar sjúkdómur. „Þetta
er bara fíkn. Án þess að vita það ná-
kvæmlega þá gæti ég trúað að þetta
væri eins og að vera í eiturlyfjum. Ef
ég veit af góðum hlut sem ég kemst
ekki í eða ef ég hef ekkert fengið í
langan tíma þá líður mér ekki vel."
Baldvin er félagi í Myntsafnarafé-
lagi íslands. Félagið var stofnað árið
1969 af myntsöfnurum en í dag
safnast þar saman alls kyns fólk sem
safnar ails kyns hlutum og skiptir og
heldur uppboð. „Þetta er ekkert
verra áhugamál en hvað annað fyrir
utan að við erum að bjarga
menningar- og sögulegum verð-
mætum því þessir hlutir væru ekki
til ef við værum ekki að hirða þetta."
MALTEXTRAKT
£5)
KJ—'- ‘
Bakhlið jólakortanna áhuga-
verðari
„Ég hef alltaf haft gaman af því að
skipuleggja, raða og flokka," segir
Guðrún Þ. Guðmundsdóttir sem
safnar meðal annars jólakortum,
símskeytum, ávísunum og kaffipok-
um. Guðrún, eins og svo margir aðr-
ir, setti jólakort sín ávallt í konfekt-
kassa eftir jólin. Þegar kassamir voru
orðnir 15 tók hún upp á því einn
daginn að skipuleggja kortin og raða
eftir útgefendum. „Eg var strax kom-
in með mikið safn og komst smám
saman inn í kerfið hjá útgefendun-
um þar sem kortin eru með númer á
bakhliðinni. Kort frá fyrirtækjum eru
oft sérstakari en þau sem eru fjölda-
framleidd og þar að leiðandi oft
skemmtilegri auk þess sem end-
urunnu pappírskortin sem voru afar
vinsæl fyrir nokkrum árum voru ekki
í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér."
Guðrún á einnig myndarlegt safn
af kaffipokum og kaupir oft kaffið
pokanna vegna. Þegar hún er spurð
hvort hún eigi einhvem uppáhalds-
hlut þá svarar hún því játandi, hún
eigi í rauninni nokkra. „Ég á nokkrar
sérstakar kaffikvarnir sem mér þykir
afar vænt um auk þess sem ég held
meira upp á sum kort en önnur,"
segir hún.
Guðrún segir söfnunaráráttuna
eins og hvert annað áhugamál. Á
meðan sumir hafi gaman af því að
horfa á sjónvarpið vilji hún frekar
sitja og skipuleggja safnið sitt. „Þetta
er einfaldlega áhugamálið mitt,"
segir hún og bætir hugsandi við að
það gæti orðið skemmtilegt
rannóknarefni að athuga hvort fólk
úr sumum stjörnumerkjum sé meiri
safnarar en aðrir. „Sjálf er ég í naut-
inu en ég held að þessi áhugi gæti
verið mismunandi eftir því í hvaða
stjörnumerki fólk er. Ég held nefni-
lega að í sumum merkjum sé söfhun
algeng en í öðrum merkjum séu alls
engir safnarar."
•mitJé—HtrmuA ...
Safna dóti frá stríðsárunum
„Ég safna aðallega hlutum frá
stríðsárunum sem tengjast íslandi,"
segir Sævar Þ. Jóhannesson sem á
meðal annars glæsilegt safn af
skrautvasaklútum sem búnir voru til
á stríðsárunum. „Þessir klútar voru
búnir til fyrir hermennina og dúkka
alltaf öðru hvoru upp, til dæmis þeg-
ar fólk er að losa dánarbú og setur
dótið á skransölur. Ég nálgast þessa
klúta á netinu því þótt þeir hafi verið
framleiddir hér á landi sendu her-
mennimir þá út úr landi til fjölskyld-
unnar sinnar," segir Sævar sem þó
safnar alls kyns hlutum sem her-
mennimir vom að gera sér til dund-
urs. „Ég á þó nokkuð af kertastjök-
um og merktum bréfahnífum sem
búnir vom til úr skothylkjum."
Sævar hefur safnað í áratugi og á
því stórt og glæsilegt safn. „Konunni
minni finnst þetta allavega ofsalega
plássfrekt," segir hann og bætir við
að söfhunin sé einfaldlega áhuga-
mál eins og hvert annað. „Þessi
áhugi kviknaði þegar ég var ungur
og hefur fylgt mér alla tíð. Við emm
nokkrir hér á landi sem söfnum
þessum hlutum og áhuginn fer sí-
vaxandi." Sævar segir safnara í raun-
inni varðveita menningarleg verð-
mæti sem annars færu í súginn.
„Fólk gerir sér oft ekki grein fyrir því
hverju við emm að bjarga og verður
því alveg gáttað þegar það sér þessa
hluti á sýningum á meðan það lítur
annars á þetta dót sem rusl."
Þegar Sævar er beðinn að velja
uppáhaldshlutinn sinn hugsar hann
sig vel um. „Mér þykir vænt um
mjög margt af þessu enda em þetta
fallegir hlutir. Ég á voðalega erfitt
með að gera upp á milli þeirra."
....
fc'*
5