Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005
Fréttir 0V
Úr bloggheimum
Konurog kökur
„Já ok já, ég fékk mér
hálfa sneið afsúkkulaði-
köku áðan. skjótiði mig
bara efég kem heim
500 kg útafþessari
sneið. en allavega viö
berglind fórum I kjólum og
hælum á írskan stað og fengum okkur
að borða og köku. án þess að þurfa að
úegja ykkur það þá vorum við aðal
beiburnar á staðnum. Ijóshærðar, há-
vaxnar, bláeygar og töluðum rússnesku
fyrir þessu liði. við fengum okkur þessa
saklausu súkkulaðikökusneið! og já
þjónninn mætti bara með þriðju skeið-
ina og þóttist vera að fara að fá sér. ég
bara fór að hlæja rosalega og þá sagði
barþjónninn... oh i see never come
between a woman and her cake!"
Ragnheiður Ragnarsdóttir -
ragga. bioggari.com
Um öryggisráðið
„...rétt upp höndsem finnst eðlilegt að
við eyðum milljörðum i að
komast kannski í að-
stæður þar sem þjóðir
heimsins gætu hugs-
anlega hlustað á það
sem okkur finnst um
öryggi og lýðræði I
heiminum - þegarþeir
sem þangað ætla hafa ekki
einu sinni ákveðna stefnu iþeim mál-
um né vitneskju til að móta hana á
réttum forsendum - pfff!"
Anna Rúna - biog.centrai.is/oend-
anlegt.
Grimm örlög fiðrildis
„Ég sá nefnilega fiðrildi á gólfinu hérí
gær og ætlaði að fara að taka það upp
og henda út um gluggann
þegar ég mætti sam-
keppni sem spratt fram
•Grndan ofninum. Hlussu-
könguló sem á greini-
lega heima þar, ásjón
hennar fékk mig til þess
að hika, en að hika er það
sama og tapa, og þegar ég áttaði mig
aftur þá var köngsi byrjaður að pakka
fiðrildinu inn Isinn sellófón og það á
miðju eldhúsgólfinu hjá mér. Mig lang-
aði til að garga afgrémju yfir örlögun-
um og því að einhver köngulóar-api
skuli i alvörunni búa hérna með með í
húsinu og ég get ekkert gert því að ég á
ekki ryksugu né þor iað halda á henni
og henda henni út.En nú er stefnan
sett á ryksugu og sjónvarp. Pottþétt
«005."
Bryndís Björgvinsdóttir - erlendar-
frjettir.blogspot.com.
Franco verður foringi fasista á Spáni
Á þessum degi árið 1936 var
Francisco Franco hershöfðingi út-
nefndur foringi fasista í uppreisn
þeirra gegn ríkisstjóm aiþýðufylking-
arinnar á Spáni. Það var þó ekki fyrr en
28. mars árið 1939 sem Franco náði
loks að vinna sigur í uppreisninni en
hann naut til þess aðstoðar ffá bæði
Hitler í Þýskalandi og Mussolini á ítal-
íu. Franco tók sér þá einræðisvald yfir
Spáni og var nefndur E1 Claudillo, eða
Foringinn. Árið 1947 lýsti hann svo
Spán einræðisríki og sjálfan sig ríkis-
stjóra. Hann ríkti sem einræðisherra
allt til dauðadags árið 1975.
Þrátt fyrir fasistastjómimar í bæði
Þýskalandi og á Ítalíu á tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar ákvað Franco að
Spánn skyldi viðhalda hlutleysi í stríð-
inu. Eftir stríðið var hann úthrópaður
sem síðasti fasistastjómandinn. Hann
var illa þokkaður eftir að síðari heims-
styrjöldinni lauk en í Kalda stríðinu
tókst honum að rjúfa einangrun lands-
ins og gerði vamarsamning við Banda-
ríkin árið 1953. í staðinn fyrir að veita
Bandarikjamönnum leyfi fyrir herstöð
í landinu fékk hann gríðarlega fjár-
hagsaðstoð.
Á sjötta og sjöunda áratugnum var
Francisco
Franco Myndin
erfrá 1937,en
árinu áður höfðu
fasistar gert upp-
reisn gegn
spænsku ríkis-
stjórninni. Tveim-
ur árum siðarvar
hann orðinn ein-
ræðisherra.
I dag
áriö 1981 var ökumönnum
og farþegum í framsætum
bifreiöa gert skylt aö nota
bílbelti. Níu árum síðar
náöi bílbeltaskyldan einnig
til farþega í aftursæti.
stjóm Francos mun frjálsari og lítil sem
engin skipulögð andstaða var við stjóm
hans utan baskahéraðanna. Árið 1969
útnefndi Franco Jóhann Karl fyrsta sem
ríkiserfingja Spánar, en hann var sonur
síðasta Spánarkonungs. Þrátt fyrir að
hafa heitið því að halda áfram stjóm-
unarháttum Francos hóf Jóhann Karl
breytingar í lýðræðisátt strax eftir
dauða Francos árið 1975.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum andi stundar.
Það er bara allt svo auðvelt í dag
tíma hrylla mig mildð. Bankamir og
önnur stórfyrirtæki hafa greinilega
hreiðrað um sig í nánast hverjum
framhaldsskóla hér á landi í þeim
tilgangi að lokka unga nemendur,
nýkomna með hvolpavit, í viðskipti
til sín.
íslandsbanki var, mér vitandi, sá
sem fyrstur byrjaði að reyna að
lokka framhaldsskólanemendur í
viðskipti til sín. Með slagorðinu sem
Bankarnir úti um
allt Stefán Örn er
ósáttur við innrás
stórfyrirtækja I
framhaldsskóla
landsins.
tröllreið eymm okkar og augum hér
fyrir nokkrum árum; „Við gemm
næstum allt fyrir námsmenn!"
Landsbankinn hefur einnig gert
Skiptibókamarkaður
Stefán Örn segirað ein
af ástæðum þess að fólk
hættir i skóla sé skulda-
súpan sem það hefur
safnað upp.
Framhaldsskólaneminn Steíán
ömskrifar.
Ég er nemandi í framhaldsskóla í
Reykjavík og hef eins og margir velt
fyrir mér innrás stórfyrirtækja í skól-
ana. Þær auglýsingar sem á vegi
mínum verða þegar ég er á leið í
samning við nemendafélög flestra
framhaidsskóla og hinir bankarnir
eflaust líka, þó þeir séu ekki eins
áberandi.
Við vitum að það eina sem þarf
fyrir góðan yfirdrátt er sjálfskuldar-
ábyrgð. Enginn þarf að ábyrgjast
okkur þar sem við emm sjálfráða.
Hvað felst í því? Er í lagi að bankam-
ir leyfi ungu fólki að sölckva sér í yfir-
drátt til þess að það eigi fyrir lífs-
nauðsynjum unga fólksins; pening
fyrir hádegismat, sígarettum og
áfengi. Án þess að ég ætli mér að taka
íslandsbanka fyrir þá er hann eins og
áður segir sá banki sem byrjaði lokk-
unarherferðina að mínu mati.
En mér er spurn: Hvað gerir ís-
landsbanld þegar við emm sokldn í
hyldýpi yfirdráttarlána bankans,
bara vegna þess að allt var svo auð-
velt í upphafi?
Jú, hann sendir okkur inn-
heimtukröfur. ICröfur sem verða til
þess að við þurfum að hætta í skóla
og hella olckur út á vinnumarkaðinn.
Finnst fólki skrýtið að mikið er um
svokölluð „droppát“ í framhalds-
skólum hér á landi. Það er einfald-
lega vegna þess að allt er svo auðvelt
í dag. Auðvelt að fá sér yfirdráttarlán
og auðvelt að hætta í skóla. Væri
ekld nær að auglýsa sálfræðimeð-
ferðir eða fjármálaráðgjöf óháðra
fyrirtækja?
Ég skora á skólameistara fram-
haldsskóla hér á landi að líta í kring-
um sig og gera sér grein fyrir vand-
anum. Þetta er á þeirra ábyrgð.
Lesendur
Steingrímur
þarf hjálp
Bamanlölngurinn S
n eina ferðina flutt sig
DV greindi frá þvi á dögunum aö Steingrímur byggi viö Skcljagranda i \
bænum en nú hefur hann hreiöraö um sig á Seltjamamesi, nokkrum hú
Mýrarhúsaskóla, grunnskóla bæjarfélagsins.
Steingpímup
Njálsson fluttup
á Seltjarnarnes
Steingrímur Njáls-
son DV sagði frd því I
gær að hann er flutt-
ur á Seltjarnarnes.
Guðrún hringdi:
Ég las frétt í DV í gær um að Stein-
grímur Njálsson væri fluttur á Sel-
tjamames. Þar áður hafði ég lesið um
að hann væri að brýna hnífa á leik-
skólum og í ágúst að hann hefði sést á
vappi í Vesturbænum. Mér blöskrar
aðgerðaleysi yfirvalda í málum Stein-
Lesendur
gríms. I hvert sinn sem hann fer á stjá
er uggur í foreldrum, sem er ekki
skrýtið. Það sem ég vil meina er að
maðurinn er sjúkur og það er ástæðan
fyrir því að foreldrar óttast hann.
Hann þarf hjálp og á ekki að vera hér
og þar á vappi í Reykjavík. Af hveiju
hafa yfirvöld ekki gert neitt í hans
málum sem gæti gert hann að betri
manni? Miðað við brotaferil sem
margoft hefur komið fram þá finnst
mér að einhver ætti að taka til hend-
inni og veita honum aðstoð. Bersýni-
lega er þörf á því, en það er eins og
málefni hans séu alltaf þögguð niður.
Við vitum hvemig farið er með
Aron Pálma í Bandaríkjunum. Fyrir
eitthvað sem myndi teljast til kjána-
skaps lítils drengs er hann auglýstur í
hverfinu sínu af yfirvöldum og hefur
sennilega setið af sér helming þess
sem Steingrímur hefur gert um æv-
ina. Aðgerða er þörf!
Semur vinjettur til að róa lýðinn
Bjórmenning
Á skemmtistað erhaldin bjórhátíð þar sem
breiðskjáir á veggjum sýna poppmyndbönd og
tónlistin yfirgnæfir skvaldrið á staðnum. Unga
fólkið er kátt og drekkur að víkinga sið um leið
og það horfir á myndirnar eða dansar úti á
gólfinu með glös I hendi. Nú er stuð og nóg af
bjór og allt þarfað gerast í einu. Einum úr
hópnum leiðist en tekur til sinna ráða sér til
skemmtunar með því að henda á gólfið hverju
bjórglasinu á fætur öðru eftir að hafa drukkið
úrþví. Að endingu eru glerbrotin íþúsundavís
dreifð um dansgólfið þegar gestirniryfirgefa
staðinn seint og síðar meir. Eigandinn nær
sökudólgnum og spyr um ástæðu þessarar
ruddalegu hegðunar. Hann svarar um hæl:
Það er svo gaman að heyra glösin brotna.
Eftír Ármann Reynisson
„Það væri stórsnjöll hugmynd
fyrir fólk að hvíla sig frá Baugsmál-
inu og koma á vinjettulestur," seg-
ir Ármann Reynisson, athafna-
maður og rithöfundur. Hann hefur
fengið fjöldann allan af heldra
fólld, eins og hann orðar það, til að
lesa upp skáldskap hans í bóka-
búðinni Iðu við Lækjargötu milli
13 og 17 í dag. „Sú sagnahefð sem
kallast vinjettur kemur upphaflega
frá Frakklandi og byrjaði á 17. öld.
Ég byijaði að skrifa þetta fyrir um
fimm árum síðan og það braust
eiginlega út úr
mér mjög óvænt. Vinjettur eru nokk-
urs konar skyndimyndir sem opna
augu lesandans stundum að heilli
skáldsögu. Orðið þýðir vínviður og
vafningar vínviðarins, sem er lýsir ljóð-
rænt hvernig skáldskapurinn er.
Á heimasíðunni minni eru brot af
vinjettum sem ég hef skrifað. Núna er
ég kominn með um 3000 áskrifendur
að bókunum mínum og ég fæ fyrir-
spurnir frá öllum hornum heimsins.
Eg vil að fólk kynnist þessari sagnahefð
og vinjettudagurinn er einmitt ætlaður
til þess,“ segirÁrmann.
armannr.com. Hann mun halda vinjettudag hátiðlegan í dag.__________