Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Page 53
W Helgarblað
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER2005 53
míku spenna hefur ríkt i kvikmyndaa
varðandi val á framlagi islands til Ósk
TO- íU,®r Það að Stuðmam
n/íuXlð tlmann mun verða okkar
Jakob Frímann Magnússon er strax
með hugmyndir um klæðaburð á hé
I takt við tímann
Framlag Islands til
| óskarsverðlaunanna.
Jakob Frímann Magnússon
Vanur að standa ípontu og færi létt
með þakkarræðuna á Óskarnum.
f
f'H \ m m > v i)
„Við höfum litið á okkarmyndsem öðruvísi
mynd, sem var að keppa við Strákana okkar
sem er hinsegin mynd. Við höfum heilmikinn
smekk fyrir Strákunum okkar en það hefur
kannski þótt vafasamt að senda mynd á al-
þjóðavettvang þar sem tveir karlmenn njóta
ásta fyrir framan tíu ára dreng."
„Þetta var bara kunngjört í gær.
Þetta var mikill gleðidagur," segir
Jakob Frímann Magnússon en
mynd Stuðmanna, í takt við tímann,
er framlag íslands í forvali til Ósk-
arsverðlaunanna. Hvert land utan
Bandaríkjunum sendir eina mynd
inn í þetta val og svo eru fimm
myndir af þeim tilnefndar til Ósk-
arsverðlauna. Aðeins ein íslensk
mynd hefur verið tOnefnd til Ósk-
arsverðlauna en það er mynd Frið-
riks Þórs Friðrikssonar, Böm náttúr-
unnar.
Búnir að taka mál af smóking
Jakob segir að Stuðmenn taki
þessu tækifæri með stóískri ró. „Við
gerum okkur engar óraunhæfar
grillur. Við erum ekki búnir að
kaupa miða eða smókinga. En það
er farið að huga að því, það er búið
að taka mál," segir Jakob. Hann seg-
ir að þessi tilnefning auki möguleik-
ann á sjónvarpssölu erlendis en
DVD-diskur með myndinni kom út í
gær. „Það er búið að senda nokkra
diska á dreifmgarfyrtæki erlendis og
þessi stimpill er fínn bónuspakki til
að hafa með í umslaginu."
Öðruvísi gegn hinsegin
Stuðmenn áttu ekki von á þessu
þegar myndin var gerð upphaflega.
„Við áttum alls ekki von á þessu.
Þetta er allt eins lókalt og það getur
orðið. Við höfum litið á okkar mynd
sem öðruvísi mynd, sem var að
keppa við Strákana okkar sem er
hinsegin mynd. Við höfum heilmik-
inn smekk fyrir Strákunum okkar en
það hefur kannski þótt vafasamt að
senda mynd á alþjóðavettvang þar
sem tveir karlmenn njóta ásta fýrir
framan tíu ára dreng,“ segir Jakob og
hlær.
Myndu þakka Knúti Hallssyni
Ef ske kynni að / takt við tímann
færi á Óskarsverðlaunin og myndi
sigra, hverjum ætli Stuðmenn
myndu þakka? „Þá myndi ég nú
þakka Knúti Hallssyni, guðföður ís-
lenskrar kvikmyndagerðar og Kvik-
myndasjóðs. Hann kom okkur í
Stuðmönnum og Ágústi Guð-
mundssyni saman til að gera Með
allt á hreinu á sínum tíma. Þá vorum
við búnir að fara hringinn á alla leik-
stjóra landsins sem höfðu hafnað
okkur. Sigurféð myndum við nota til
þess að láta reisa styttu af honum í
Hljómskálagarðinum,“ segir Jakob.
Knútur, this one is foryou!
„Akkúrat."
Önnur mynd í bígerð
Jakob Frímann segir að hug-
myndir um aðra bíómynd hafi verið
ræddar.
Á hvaða stigi eru þær viðræður?
„Þær eru á handritsstigi, sem var
búið að samþykkja í Kvikmynda-
sjóði áður en við ákváðum að gera /
takt við tímann. Sú mynd er murt
dýrari í framleiðslu og við vildum
ekki fara út í þannig framkvæmd eft-
ir svona langt hlé frá kvikmynda-
gerð,“ segir Jakob og má því segja að
ítakt við tímann hafi verið upphafið
að einhverju stærra. Handritið að
væntanlegri mynd er eftir þá Andra
Snæ Magnússon og Jakob sjálfan.
Framhald afítakt við tímann?
„Nei, þetta er nú ekki eiginlegt
framhald en þarna eru sömu karakt-
erar."
Við kveðjum Jakob með þá von í
hjarta að við munum sjá hann á
Óskarsverðlaunahátíðinni í mars.
„Við verðum þar í smóking en allt-
ént í sauðskinnsskóm til að undir-
strika upprunann og þjóðernið. Ef
maður verður ekki mættur þarna þá
komum við bara í ísland í bítið og
spjöllum í góðum ffling."
soii@dv.is
Það virðist vera gaman að vera
baksviðs á stórtónleikum. Á Live 8
tónleikunum sem haldnir voru
þann 2. júlí
á þessu ári
hittust
margir
ffægir
popptón-
listarmenn.
Mariah Car-
ey og Geor-
ge Michael
voru saman
baksviðs á
þessum
tónleikum og ræddu greinilega
margt. Það sem kom út úr þeirra
samtali var það að þau ætía að
syngja saman dúett. Það var
Michael sem kom að máli við
Carey og spurði hana bara beint
út hvort hún væri ekki tíl í syngja
með sér dúett. Þetta kom Carey á
óvart en hún samþykkti á stund-
inni að syngja með honum.
■
Leynilegt
brúðkaup
Kærustuparið Cameron Diaz
og Justin Timberlake ætlar að
gifta sig á laun. Parið sem hefur
verið mikið á milli tannanna á
fólki hefur boðið 150 nánustu
vinum sínum til Hawaii um jól-
in. Parið hefur gengið í gegnum
margt og hefúr mikið reynt á
samband þeirra. Á seinasta ári
sagði súpermódelið Lucy
Clarkson að hún hefði verið
með poppsöngvaranum Justin.
Justin neitaði því staðfastíega og
Diaz tók hann í sátt. Lynn
mamma Justins hefur sagt að
hann Justin sinn sé ekki tilbúinn
til að binda sig, hann eigi eftir
að hlaupa af sér hornin. Justin
ætlar greinilega ekki að fara að
ráðum mömmu sinnar.Parið
segir að partíið sem þau ætíi að
halda um jólin sé bara svona
jólapartí en ekki gifting. En vinir
þeirra segjast frekar eiga von á
því að þetta verði brúðkaup
heldurenjólaboð.
Flottur dúett
Miðbærinn verður ofurrokkaður í kvöld
Það verður mikið um dýrðir á
Gauknum í kvöld þegar fyrsta
hluta Norrænnar tónlistarveislu
sem hefur staðið yfir í þrjá daga
lýkur. Það er íslenska Ifljóm-
sveitin Brain Police sem stendur
fyrir þessari tónlistarhátíð
ásamt hljómsveitunum Sub-
sonic Mind frá Sviþjóð og
- norsku hljómsveitinni Zensor.
r Undanfarna þrjá daga hafa
þessar sveitir verið að rokka
j, . landið upp svo um munar. Þess-
ir þrennu tónleikar sem hljóm-
sveitirnar hafa haldið hér á íandi
eru einn partur af þremur sem
skapa heildarmynd hátíðarinn-
ar. Hljómsveitimar munu nefrfl-
lega spila í Svíþjóð og Noregi í
nóvember, þrisvar í hvom landi.
Það kostar þúsund krónur
inn á Gaukinn í kvöld og er 20
ára aldurstakmark. Það er því
um að gera fyrir rokkþyrsta ís-
lendinga að grípa tældfærið og
bregða sér á Gaukinn.
'imtámimÆm
___ __ Brain Police JenniI
\n X/IQIP®0"1 Police veröurf
l V I ufb rokkglrnum íkvöld.
VE6NA AUKINNA UMSVIFA SAM*MYNDA
GETUM VIÐ BÆTT VIÐ OKKUR SÖLUMÖNNUM OG LAGERSTARFSMANNI.
SAM’MYNDIR eru stærsti dreifingaraðili DVD og VHS ó íslandi og
eru m.a. með umboð fyrir Disney, Warner, Paramount, Universai og
Dreamworks. Við erum að leita að öflugum sölumanni sem hefur
góð mannleg samskipti og jdkvæða útgeislun. Reynsla af
sölumennsku er æskileg en ekki skilyrði. Einnig leitum við að
dugmiklum lagerstarfsmanni.
Tekið verður ó móti umsóknum ó lagersvæðir SAM'MYNDA
í Álfabakka 8 mónudaginn 3. október fró kl. 14:00 -16:00
og þriðjudaginn 4. október fró kl. 9:00 - 12:00.
ATHl Upplýsingar ekki veittar í síma.
SAMoMYNDIR