Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2005, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
ÞonstBinn steöhensBn
Þorsteinn er vel lesinn,
skemmtilegur, hugmyndaríkur
og hugrakkur. Hann er fjöl-
hæfur og góður vinur og frá-
bær kokkur.
Hann er óskipulagður,
lélegur i uppvaskinu og að
taka til. Vinirhans segja
það ókost hvað hann er lltið
á Islandi.
„Hann Steini hefurmarga kosti.
Hann er lífskúnstner, vel gefinn
og skemmtilegur, vel
lesinn og víðförull. Slíkt
fólk er alltaf skemmti-
legt. Hann er ekki sú
týpa sem getur unnið á
skrifstofu frá níu til fimm, aðra
galla get ég bara ekki fundið á
honum!"
Andri Már Ingólfsson forstjóri Heims-
ferða.
„Hann er æðislegur maki,
greindur og með góða kímni-
gáfu. Hann er mátulega óþekk-
ur, kemur stöðugt á óvart, hug-
myndarikur og hugrakk-
ur. Frábær kokkur en von-
laus í uppvaskinu og að
taka til. Hann fær stund-
um ofmikið afhugmynd-
um, er líka svolítið gleym-
inn, man það sem hann vill
muna. Hann er ekkert áberandí
rómantlskur en er það samtá
sinn máta. Svo á hann það til
að vera óskipulagður".
Brynja X. Vífilsdóttir sambýliskona Þor-
steins.
„Nafni minn Stephensen er
mjög heilsteyptur og góður
maöur. Hann fer
ótroðnar slóðir, er úr-
ræðagóöur og bráð-
skemmtilegur. Steini er
vel lesinn og víðförull og
einstaklega góður fé-
lagi. Hann er ótrúlega fjölhæfur.
Það er sama hvað Steini tekur
sér fyrir hendur, hann gerir allt
vel. Eini ókosturinn er að hann
er of Iftiö á Islandi."
Þorstelnn M.Jónsson vinur Þorsteins og
stjórnarformaöur Vífilfelis hf.
Þorsteinn Stephensen er fæddur 21. maí
1967. Hann er í sambúö meö Brynju X.
Vífilsdóttur, rekstarstjóra Karen Millen í
Madrid. Þau eru búsett á Spáni. Þorsteinn
er meö BA-gráÖu í heimspeki frá Háskóla
íslands. Hann hefur búiö í Mexíkó og í Bras-
iliu, starfaÖ í mörg ár sem fararstjóri á er-
lendri grund og síöan 1999 rekur hann fyr-
irtækiö Herra örlygur meö öörum. Fyrir-
tækiö hefur um árabil staöiö fyrir tónlistar-
viðburöinum lceland Airwaves sem stendur
yfír frá 19. október til 23. október.
Neyðarkalli
svarað
Um fimmtán hundruð
íslendingar höfðu í gær-
kvöldi lagt fram 1000 krón-
ur hver til hjálparstarfsins í
Pakistan með því að
hringja í 907 2020, söfnun-
arsíma Rauða krossins. Alls
hafði því safnast um ein og
hálf milljón króna á fyrsta
sólarhring söfnunarinnar.
Alþjóða Rauði krossinn
hefíir einsett sér að aðstoða
50 þúsund fjölskyldur, um
250 þúsund manns, á
næstu fjórum mánuðum.
Mikil neyð ríkir á hamfara-
svæðinu í kjölfar hins gríð-
arlega jarðskjálfta, sem
varð þar um helgina.
Geirlaug Þorvaldsdóttir, dóttir Þorvaldar Guðmundssonar sem kenndur var viö
Síld og fisk, hefur stefnt systkinum sínum og krefst skaðabóta vegna sölu á eignum
föður þeirra. Málið er komið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur en nýverið lauk deilu
systkinanna um föðurarfinn með sátt.
Berjast um pen-
inga
Nú berjast A
systkini hans um fjk
peninga föðurs- ‘f
ins. Halldór Þ. j§
Birgisson, lög- ||
maöur Skúla og ||
Katrínar, segir f'
fyrri hluta deil- |
unnar, um arfinn,
hafa lokið með sátt. m
„Skiptingu dánar-
búsins var lokið
með samkomu-
lagi,“ segir Hall-
dór. Mál Geir-
laugar átti að taka \
fyrir í gærmorgun en
fýrirtökunni var
firestað.
Geirlaug vildi sjálf
ekkert tjá sig um Á
málsóknina. „Ég Æ
hef ekkert að Æm
Geirlaug Þorvalds
dóttir Leikkonan og
menntaskólakennar-
inn sem hefurstefnt
systkinum sinum.
Fjölskyldudeilur halda áfram fyrir héraðsdómi. Geirlaug Þor-
valdsdóttir hefur stefut systMnum sínum, Skúla og Katrínu,
vegna sölu þeirra á fasteignum fyrirtækisins Síldar og fisks sem
var í eigu Þorvaldar Guðmundssonar, föður þeirra og á sínum
tíma eins ríkasta manns íslands. Deilum systkinanna um arf
föður síns lauk fyrir skömmu með sátt.
Þetta er uppgjör á milli þeirra.
Skúli Þorvaldsson og Katrín systir
hans seldu eignir Síldar og fisks á
sínum tíma. Nú vill Geirlaug, elsta
systirin og leikkona, fá skaðabætur
frá systkinum sínum vegna söl-
unnar. Það sér því ekki fyrir endann
á fjölskyldudeilum aflcomenda Þor-
valds í S£ld og fiski.
Deilt um arf
DV greindi frá því í janúar að
systkinin hafi deilt hart um arf Þor-
valdar. Farið var fram á opinbera
skiptingu dánarbúsins. Lögfræðing-
ur Geirlaugar, Jóhannes K. Sveins-
son, segir þeim málum hafa lokið
með sátt. „Þetta er annað mál og í
augnablikinu bíðum við eftir mats-
gerð um verðmæti eignanna sem
seldar voru,“ segir Jóhannes. Reikna
þarf verðmæti eignanna upp til
dagsins í dag. Endanleg fjárhæð á
skaðabótakröfuna er því ekki komin.
Athafnamaður
Þorvaldur Guðmundsson,
kenndur við Síld og fisk, var braut-
ryðjandi í íslensku atvinnulífi og
hæsti skattgreiðandi landsins um
áratuga skeið. Þrátt fyrir að alast upp
við fátækt hjá einstæðri móður sinni
í Reykjavík tókst honum snemma að
koma fótunum undir sig; stofnaði
fyrstu rækjuverksmiðju landsins og
fyrstu humarverksmiðjuna. Þor-
valdur efnaðist þó ekki verulega fyrr
en hann stofnaði fyrirtækið Síld og
fisk árið 1944 og stærsta svínabú
landsins nokkrum árum síðar.
Flestir landsmenn þekkja einnig
söguna af listunnandanum og lista-
verkasafnaranum Þorvaldi. Málverk
eftir Kjarval prýddu veggi hótels
Holts sem Þorvaldur reisti ofan á
kjörbúð á Bergstaðastræti. Þor-
valdur rak einnig Hótel Sögu og
Þjóðleikhúskjallarann - var í stuttu
máli athafnamaður íslands.
segja, var
eina sem
hún vildi
láta hafa
eftir sér.
simon@dv.is
Feðgarnir Þor-
valdurog Skúli taka
við viðurkenningu
sem viðskiptamenn
ársins 1991.
Halldór Blöndal leitaði til sagnfræðinga um að skrifa um sögu þingræðis
Þorsteinn Pálsson hefur aldrei skrifað bók
Enginn þingmaður í forsætis-
nefnd segist hafa lesið bók eftir Þor-
stein Pálsson. Ástæðan er sú að Þor-
steinn hefur aldrei skrifað bók á löng-
um ferli sínum sem pólitíkus. For-
sætisnefnd ákvað að láta Þorstein
skrifa sögu þingræðis á íslandi. Áður
hafði Halldór Blöndal talað við hóp
menntaðra sagnfræðinga um að taka
að sér verkið.
„Það var búið að leita til annarra
en ég vil ekki nefna nöfn þeirra
núna," segir Þuríður Backman, þing-
maður Vinstri-grænna. „Þetta voru
menn sem hefðu verið vel til þess
fallnir að skrifa svona bók. Afar vel
hæfir. Það var Halldór Blöndal sem
hafði frumkvæði að þessum viðræð-
um en á endanum treystu menn sér
ekki til að taka að sér verkið. Því var
Þorsteinn Pálsson ráðinn."
Þegar starfsferiil Þorsteins er
skoðaður á heimasíðu Alþingis kem-
ur í ljós að Þorsteinn hefur aldrei
skrifað bók á löngum ferli sínum sem
pólitíkus. Hann vann hins vegar sem
blaðamaður á Morgunblaðinu á ár-
unum 1970-1975 og var ritstjóri Vísis
til ársins 1979. Þar áður hafði Þor-
Steinn skrifað greinar í Orator, tímarit
laganema, en frekari bókaútgáfu hef-
ur hann ekki staðið í.
„Nei, ég hef ekki lesið bók eftir
Þorstein, held hann hafi aldrei gefið
út bók," segir Birgir Ármannsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem
situr í forsætisnefnd. Hann vildi ekki
tjá sig um þá aðila sem Halldór Blön-
dal leitaði til vegna verksins. „Þú
verður að spyrja Halldór út í það."
Ekki náðist í Halldór Blöndal sem
lét af þingstörfum eftir síðasta vetur.
Þorsteinn Pálsson svaraði hins vegar í
síma á heimili sínu í Danmörku. Þegar
hann var spurður hvernig gengi við
bókaskrifin sleit hann sambandinu.
alldór Blön-
al, fyrrver-
ndi þingmað-
r Þuríður Back-
i an segir Þor-
tein hafa verið
i ans síðasta val.
V * ‘“v ■ T
\
\
Enn á eftir að ganga ffá kostnað
aráætlun við gerð bókarinnar.
Það verður einnig sett saman
ritnefhd sem mun hjálpa
Þorsteini við ritun verksins.
í ritnefndinni munu sitja
Helgi Skúli Kjartansson
sagnfræðingur og Ragnliildur
Helgadóttir doktor.
simon@dv.is * ■£;
%
\
f
Þorsteinn Pálsson,
sendiherra í Dan-
mörku Mun skrifa
um sögu þingræðis á
íslandi.