Símablaðið - 01.01.1960, Qupperneq 23
Kaffi og vín eru öðlingsdrykkir, hver á sína vísu, enda
mikið notað. Það er því ekki úr vegi að kynna sér örlítið
áhrif þeirra á heilann.
Rannsóknir hafa leitt í ljós, að ef mikið blóðmagn berst
til heilans, þá er hann síður á verði, hann verður sljórri
og ekki eins framtakssamur. Vitað er að vínandi eykur
blóðmagnið til heilans. Aftur á móti hefur kaffið þau
áhrif, að blóðmagnið minnkar og við það skerpist heila-
starfsemin.
Þetta kemur alveg heim við rannsóknir, sem hafa verið
gerðar á vinnustöðum í sambandi við kaffihlé og áhrif
þeirra. Þær leiddu í ljós, að á þeim vinnustöðum, þar sem
kaffihlé voru gefin, jukust vinnuafköstin, mórallinn var
yfirleitt betri og þar var hlutfallslega minna um slys.
Það er mikilsverður eiginleiki að vera góður áheyrandi
og þann eiginleika er hægt að þjálfa.
Að jafnaði talar maðurinn með 125 orða hraða á mínútu.
Aftur á móti hugsa flest okkar með fjórum sinnum meiri
hraða, og þann hraða er ómögulegt að minnka. Við höfum
því tíma sem svarar um 400 orðum á mínútu til að lála
hugann reika, þegar við hlustum á mælt mál. Galdurinn
er sá að nota þennan tíma rétt.
í fáum orðum sagt
Vitsmunir eiga ekkert skilt við
raunverulega stærð heilans, heldur
við hlutfallið milli hans og líkams-
þyngdarinnar
Til dæmis hefur fíllinn fjórum
sinnum stærri heila en maðurinn, en
líkams^iyngd hans er aftur á móti 46
sinnum meiri en mannsins.
Það getur vel verið að okk-
ur takist að komast til tungls-
ins því það er ekki svo ýkja
mikil fjarlægð. Mestu og erf-
iðustu fjarlægðirnar, sem við
þurfum að yfirvinna, liggja
meðal okkar sjálfra.
Charles de Gaulle.
Við munum það öll, þegar við vorum að læra tungumál, að
ef okkur vantaði þýðingu á orði, þá leituðum við í orðasafninu
aftast í bókinni. — Nú er öldin önnur. í nýjustu tungumála-
kennslubókinni fyrir hinn enskumælandi heim, er enska þýð-
ingin prentuð með örsmáu letri yfir hvert hinna erlendu
orða. Það er ekki hægt að lesa örsmáa letrið með berum aug-
um, en auðveldlega með stækkunarglerinu, sem fylgir hverri
bók.
SÍMABLAÐIÐ