Símablaðið - 01.01.1960, Page 24
+Xf/r
svipur
Miklar breytingar hafa orð-
ið undan farið á skipan hús-
næðis og útliti þess í höfuð-
stöðvum stofnunarinnar,
Thorvaldsensstræti 4.
Útvarpið er farið, og að vissu
leyti saknar maður þess, þó
vera þess í húsinu hafi þrengt
að símanum.
Útvarpið hefur á að skipa
starfsfólki, sem gott er að
kynnast, fjölhæfu og mennt-
uðu fólki, sem söknuður er að
úr nágrenninu — og sambúð-
in við það hefur alltaf verið
hin bezta.
Simablaðið óskar þessu
starfsfólki til hamingju með
betri og vistlegri húsakynni.
En þegar útvarpið flutti var
eins og skriða losnaði í hinu
Jín Démauon : S J Á LF V I R K
SÍMSTÖÐ I KEFLAVÍK
Eins og öllu símafólki — raunar alþjóð — er í fersku
minni, var opnuð sjálfvirk símastöð í Keflavík 2. janúar
s.l. AU margt forustumanna í símamálum undir forustu
Gunnlaugs Briem, póst- og símamálstjóra, voru komnir
úr Reykjavík, til að framkvæma opnun hinnar nýju
sjálfvirku afgreiðslu. Bæjarstjórn Keflavíkur, fulltrúum
blaða og útvarps Var boðið að vera viðstaddir þessa at-
höfn.
Klukkan nákvæmlega 22 klippti póst- og símamála-
stjóri á „lífstrenginn“ að hinni nýju stöð. Ekki verður
ofsögum sagt af því lífi er færðist í alla þá dauðu
hluti, er komið hafði verið fyrir í vélasal stöðvarinnar af
íslenzkum og sænskum símvirkjum, undir stjórn Þor-
varðar Jónssonar, verkfræðings og B. Hernike, verkfræð-
ings, sem unnu að sjálfsögðu undir yfirstjórn verkfræð-
ingadeildar landssímans.
Þrátt fyrir tilmæli til Keflvískra símanotenda um að
fara gætilega í sakirnar og hringja lítið fyrstu klukku-
stundina virtust nú allir þurfa að hringja, og kliðurinn í
starfandi vélum jókst stöðugt og varð að hávaða svo
varla varð samtals fært þar inni. Þó lét þessi einkenni-
lega músík vel í eyrum. Hún var vottur um fögnuð Kefl-
víkinga yfir þessum stórmerka áfanga, sem náðst hafði í
þróun símamála hér syðra. Þegar nánar er að gáð verður
manni líka ljóst, að þessi stund var önnur stærsta stund-
in í sögu Keflavíkurbæjar — næst á eftir þeim tímamót-
um fyr.ir 12 árum, er Keflavík var breytt úr þorpi í bæ.
Og í raun og veru er þó símakerfið miklu mikilvægara,
því að það virkar bæði sem æða- og taugakerfi í líkama
okkar litla byggðarlags. Þar sem síminn er jafn almennt
tæki og hér, verður hann atriði og hjálparmeðal í svo til
hverri einustu hræringu í bænum — hvort heldur hún
er andlegs eða veraldlegs eðlis. Síminn eykur hraðann
og lífið í viðskipta- og atvinnulífi bæjarins, á gleði- og
sorgarstundum færir hann borgarana nær hvor öðrum,
— síminn leggur til þjónustu, skapar öryggi og kjark
með nálægð sinni.
Áður en póst- og símamálastjóri opnaði stöðina flutti
hann ræðu. Hann sagði frá tildrögum og undirbúningi að
byggingu stöðvarinnar, frá framkvæmdum öllum við