Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 30

Símablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 30
launastéttir í landinu hafa fengið á meðan við höfum staðið í stað og tæplega það. Hinar almennu launastéttir hafa nú lausa samninga, þess vegna þurfum við einnig að vera vel á verði og viðbúnir ef á þarf að halda. — Starfs- reglunefnd F.f.S. þarf að vinna skjótt að endurbótum á starfsmannareglum, til sam- ræmis við það, sem nú gildir í þjóðfélaginu. — Þ. Ó. □ REINARGERÐ FRÁ Pöntunarfélagi símamanna Aðalfundur Pöntunarfélags- ins samþykkti eftirfarandi til- lögu frá stjórn félagsins: „Aðalfundur Pöntunarfélags símamanna, haldinn 28. marz í fundarsalnum í Landssíma- húsinu, leggur til, að starf- semi félagsins verði hætt og stjórn þess falið að selja vörulager félagsins og að höf- uðstóllinn verði geymdur í Lánasjóði símamanna þar til starfssemin kann að verða hafin að nýju.“ Rök stjórnarinnar fyrir þessari ráðstöfun voru þessi: 1) Undanfarin ár hefur um- setning félagsins farið sí minnkandi ár frá ári. Það sýn- ir að áhugi fyrir því að verzla við félagið fer minnkandi. Minnkandi umsetning leiðir aí sér hærri álagningu, því fasti kostnaðurinn, svo sem laun og húsaleiga, helzt óbreyttur, og dreifist á færri vörueining- ar við minnkandi sölu. 2) Með breyttu fyrirkomu- lagi á útborgun mánaðar- launa lengdist gjaldfrestur sá, um tilfellum virðist svo sem símastjórnina skorti ekki fé til að greiða mönnum í vinnulaun — þó reyndar allt önnur hlið sé upp á teningnum þegar F.Í.S. fer fram á eitthvað fyrir meðlimi sína. En því ber ekki að neita, að stjórn símans hitti nagl- ann á höfuðið, þegar hún taldi, að 53% til 71% hærri laun en við félagsmenn í F.Í.S. höfum séu sem næst mannsæmandi kjör. ★ ★ ★ Útlendingar, sem vinna hér á landi eiga ekki að hafa hærri laun en Islendingar við sömu störf. Á síðastliðnu ári voru fengnir hingað til lands nokkrir Svíar, vegna uppsetningar sjálfvirku stöðvarinnar í Keflavík. Það voru einn símfræðingur og þrír tenginga- menn Það var vakið máls á þessari ráðstöfun hér í Síma- blaðinu og þar m. a. bent á, að ráðlegra hefði verið að senda íslenzka símvirkja utan til þess að kynna sér um- rædda stöð. Greinarhöfundur vonaðist hálfpartinn eftdr að okkur símamönnum væri gefin skýring á þessari ráð- stöfun hér í Símablaðinu, þar sem okkur væri ef til vill sýnt fram á, að ódýrara væri að hafa umrædda útlend- inga hér á landi, heldur en t. d. að gefa íslenzkum sím- virkjum kost á að mennta sig, til þess að annast uppsetn- ingu slíkra stöðva. Einnig hefði verið gaman að heyra það sett saman, að hagkvæmast væri að fá útlendinga til þess að setja upp símastöðvar á íslandi — og svo væri ágætt að fá íslenzkum símvirkjum þær til vörzlu. Fyrir gengisfellingu nam kostnaður við dvöl hvers Svía hér á landi, eftir því sem bezt verður vitað, krónur 18,000,00 á mánuði á meðan laun ísl. símvirkja var nál. 5000 krónur á mán. Nú hefur þessi munur aukizt enn meir. — Það má kannske geta þess svona þessu til árétt- ingar, að íslenzk stjórnarvöld hafa lýst því nýverið yfir, að útlendingar ættu ekki að hafa hærri laun en íslend- ingar, er þeir vinna sömu vinnu hér á landi. En þetta var gert, þegar færeyskir sjómenn voru að reyna að rétta hlut sinn hér heima. ★ ★ ★ Þú yetur Iwrt eS /ih riti beryu Á síðastliðnum vetri var sett á stofn námskeið hjá Símanum fyrir þá símvirkja, sem vildu kynna sér hina nýju gerð af sænskum stöðvum. Á námskeiðinu mættu upphaflega margir símvirkjar, og virtist almennur áhugi hjá stéttinni. En Adam var ekki lengi í Paradís. Það kom SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.