Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1960, Qupperneq 34

Símablaðið - 01.01.1960, Qupperneq 34
C/ U7 ? {/777? { jPáttu cjnr UNGA FÚLKIÐ RITSTJDRN: NDKKRIR UNGIR SÍMAMENN Á því 45 ára tímabili, sem Símablaðið liefur komið út, hefur oft verið um það deilt, og- mörgimi sinnum hafa ver- ið uppi raddir um það, að bezt væri að hætta útgáfunni, þar sem svo fáir læsu blaðið, en sem betur fer, hefur það ekki orðið. Það er nú svo, að í Símablaðinu liafa verið rædd flest, ef ekki öll helztu hags- mundamál félagsmanna og fyrsti vísirinn að lánasjöði okkar varð þar til. Eflaust hafa mjög mörg önnur hagsmunamál okkar átt upptök sín þar, ef svo má að orði komast, og er það eðli- legt, og til þess er blaðið. Hitt er svo annað mál, að skemmti- efni sliks blaðs er ekki eins mikið og fjölbreytt og ýms- ir óska, kemur þar margt til. Sennilega hefur kostnað- arhliðin ráðið þar miklu uni, einnig það, að hlutverk blaðs- ins hefur ekki verið að sjá lesendum sínum fyrir skemmtiefni, heldur að vera tengiliður hins dreifða síma- fólks á sviði hagsmunamála og félagsmála. í seinni tíð hef- ur þó verið heldur meira um léttara efni, þó mun fjöldinn vera á þeirri skoðun, að betur megi gera, sem er rétt, og segja má að krafan sé gott og vandað blað, með fjölbreyttu efni, þó skulu félagsmálin skipa sinn sess. Sjóðir félags- ins standa undir umfram- kostnaði eins og verið hefur. Já það er ekki erfitt að gera kröfur, en til þess þurfum við að láta eitthvað í staðinn, og segja má, að það bezta, sem hægt er að láta Símablaðinu í té, sé áhugi fyrir efni blaðsins, áhugi fyrir því, sem þar er skrifað og ef blaðið er f jölbreytt, þá hlýtur eitthvað af því, sem þar er skrifað að vekja áhuga, það mikinn á- huga, að menn eyði kvöld- stund i það að teikna og skrifa um eitthvað, sem þar er rætt, eða þarf að ræða. l>egar svo er komið, þá er blaðinu borgið, og við skulum minnast þess, að við getum mikið, ef við viljum. Ennfremur má geta þess, að það er ekki aðalatriði að greinar séu stílaðar fulikom- lega, heldur hitt, að góðar hugdettur komist í hendur ritstjórnarinnar, sem þá pól- erar þær, ef með þarf. Sem sagt: Iítið í ykkar eigin barm, þegar þið eruð með vandlæt- ingarsemi út í blaðið, og verið þið stolt yfir því, að stétt ykkar hefur í 45 ár hald- ið úti sliku málgagni, sem í mörgu stendur framar sams konar stéttarblöðum ná- granna þjóðanna. — V. V. ★ Símafólkið skemmtir sér víðar en í Reykjavík. Einkum fara sögur af því að það kunni þá list á Akureyri. Það sýna lika þessar þrjár myndir, tekn ar á einni skemmtun þess. Á fyrstu myndinni sjást tveir simamenn á „senunni", — á næstu mynd er Jóhanna Eli- asdóttir að heiðra Pál Bjarna- son fyrir það, að hann skuli vera til — og þriðja myndin er af náttfatatízkusýningu, sem var eitt skemmtiatriði. — Lengra út í skemmtiatriðin 26 SÍMABLAÐIÐ þorði myndasmiður og frétta- ritari blaðsins ekki að hætta sér.

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.