Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Side 12
72 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Ölvaður fangi
Fimmtudagskvöldin
virðast ekki fara jafn vel í
alla því maður var þá hand-
tekinn af Lögreglunni í
Keflavík og látinn gista í
fangaklefa. Var hann hand-
tekinn íyrir utan skemmti-
stað í Reykjanesbæ vegna
ölvunar og ofstopa. í fyrra-
dag var einnig tilkynnt um
innbrot í bát í Sandgerðis-
höfn. Svo virðist sem ætlun
þjófsins hafi verið að stela
lyfjum því það hafði verið
rótað til í lyfjakistu bátsins
en talið er að engu hafi ver-
ið stolið.
Eftirsótt
leikskólastörf
Það er önnur afstaða til
starfa á leikskólum austan
Heliisheiðar en á
Reykj avíkursvæð -
inu. Á meðan
fjöldi segir upp í
Reykjavík og
Kópavogi sóttu tíu
um fimm stöður
við leikskólann
Óskaland í Hveragerði, að
því er fram kemur á sunn-
lenska.is. Þrír voru ráðnir í
heilt starf og tveir í 50 pró-
sent starf. Tveir leikskólar
eru í Hveragerði og eru
stöðugildi alls 24.
Veiddi
Ókindina
Súgflrðingurinn Guð-
mundur Svavarsson fékk
svo sannarlega vænan afla
þegar hann veiddi hákarl á
línu í fyrradag, að því er
fram kemur á bb.is. Að sögn
Guðmundar var þetta í
fyrsta sinn sem hann veiðir
hákarl en lítið mál hafi verið
að koma honum um borð.
„Ég seldi hann svo strax
þegar ég kom í land en það
var slegist um hann,“ segir
Guðmundur. Hákarlinn
verður ekki klár fyrir þorra-
blót Súgfirðinga en hann er
kominn í verkun.
„Það er fjör framundan hjá
okkur hérna að Kárahnjúkum
þvf við munum halda upp á
kínversku áramótin í dag.Ár
rauða hundsins er að ganga í
garð og þvl verður fagnað
með
Landsíminn
elda-
sýningu í kvöld og veislu á
morgun. Annars gengur lífið
fínt hér að Kárahnjúkum.
Veðrið er þokkalegt og allt í
rólegum gír. Það er vetur núna
og þá hægist yfir mannskapn-
um I vinnu," segir Oddur Frið-
riksson, yfirtrúnaðarmaður að
Kárahnjúkum.
Uppbygging í Reykjanesbæ hófst í fyrrasumar en þá var ákveðið að bjóða út lóðir í
Innri-Njarðvík. Nú, rúmu hálfu ári seinna, eru 1.200 lóðir farnar og fleiri lóðir á
leiðinni í útboð. Viðar IVIár Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og skipu-
lagssviðs Reykjanesbæjar, telur nálægðina við flugvöllinn og tvöföldun Reykjanes-
brautar ástæðu þess að fólk hvaðanæva af landinu flykkist til bæjarins.
JJJJíJJJJ
ijjj
.
viðar Már Aðalsteinsson
Ásamtbæjarstjóranum, Árna Sig
fússyni. Eru bjartsýnir og byggja
nú nýjan bæ í Reykjanesbæ.
Sumir ráðast í að byggja hverfí og aðrir byggð en Reykjanesbær
er eflaust sá íyrsti sem ræðst í að byggja heilan bæ. Lóðirnar í
Innri-Njarðvík, undir einbýlishús, parhús, raðhús og fjölbýli
fjúka út eins og heitar lummur. Verktakar, einstaklingar og fyrir-
tæki hugsa sér gott til glóðarinnar enda gatnagerðargjöld lægri
en á höfuðborgarsvæðinu.
Uppbyggingin sem fyrir dyrum
stendur í Reykjanesbæ er svo mikil
að segja má að nánast sé verið að
byggja nýjan bæ með hátt í þúsund
íbúðir. Til viðmiðunar er hægt að
nefna að í Vogum á Vatnsleysu-
strönd eru rúmlega 360 heimili. Það
er því hægt að segja að það sé verið
að byggja þrjá Voga.
20 prósent fjölgun árlega
„Það er hárrétt," segir Viðar
Már Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri umhverfis- og skipulags-
sviðs Reykjanesbæjar, þegar hann
er spurður hvort það þurfi ekki 20
prósenta fólksfjölgun í Reykja-
nesbæ til að mæta þeirri upp-
byggingu sem nú fer fram í Innri-
Njarðvík.
Uppbygging í Innri-Njarðvík
hófst í fyrrasumar. Um er að ræða
1.200 lóðir sem hafa bókstaflega
fokið út. í fyrradag voru boðnar út
130 lóðir sem allar fóru út á mjög
skömmum tíma. í næstu viku verða
boðnar út enn fleiri lóðir.
„Efallt gengur upp þá
gætum við verið að
tala um eitthvað yfir
10% í fólksfjölgun á
þessu ári, alveg hik-
laust."
Hvaðanæva að
Viðar segir fólkið sem kaupi
lóðirnar koma hvaðanæva af land-
inu. Hann telur að nálægð við flug-
völlinn og tvöföldun Reykjanesbraut-
ar geri það að verkum að fólk flytji til
Reykjanesbæjar ásamt því að gatna-
gerðargjöld séu töluvert lægri en á
höfuðborgarsvæðinu.
„Við munum bjóða upp á 77 lóðir
í svokölluðu Dalshverfi 2 sem er nán-
ast uppi á Stapa. Þar verða bæði ein-
býlishús og slatti af par- og raðhús-
um ásamt fjölbýli. Það er feikilega
mikið framboð en eftirspurnin er
miklu meiri en við þorðum að vona,"
segir Viðar Már.
Verslunarmiðstöð
En það er enginn bær án fýrir-
tækja. I Innri-Njarðvík er engin versl-
unarmiðstöð, sjoppa eða banki en
Viðar Már segir að þar verði breyting
á.
„í Tjamarhverfinu mun verða
starfrækt hverfisþjónusta á tveimur
hæðum en það gæti til dæmis hýst
útibú banka og sjoppu. Síðan er áætl-
að að þarna rísi 25 þúsund fermetra
verslunarmiðstöð," segir Viðar Már.
Hvað skemmtanalíf þessara nýju
íbúa varðar hefur ekkert verið ákveðið
með skemmtistað eða bar en Viðar
Már segir þó að hann hafi heyrt af
áhuga fólks á því. atli@dv.is
10% fjölgun 2006
„Ef allt gengur upp gætum við
verið að tala um eitthvað yfir 10% I
fólksfjölgun á þessu ári, alveg hik-
laust," segir Viðar Már.
Lóðirnar eru ekki dýrar, ef mið-
að er við að einstaklingur ætli að
byggja sér 200 fermetra hús gæti
lóðin kostað um 2,2 milljónir
króna. Þrátt fyrir að hundruð lóða
séu farin út segir Viðar Már að bær-
inn komi út á núllinu: „Við erum
eiginlega ekkert að þéna á þessu.
Það er kostnaður við gatnagerð,
opin svæði, gangstíga og margt
fleira."
Sveitarstjóri sagður ætla sér jörð án þess að auglýsa hana til sölu
Óska ekki eftir sérafgreiðslu mértil framdráttar
Ársæll Guðmunds-
son „Ómálefnalegri
umfjöllun og að-
dróttunum vísa ég til
föðurhúsanna," segir
sveitarstjórinn.
Ársæll Guðmundsson, sveitar-
stjóri í Skagafirði, segir Sigurð Árna-
son, varafulltrúa Framsóknarflokks-
ins í sveitarstjórn, fara með rakalaus
ósannandi þegar hann segi að Ár-
sæll og kona hans hafi óskað eftir því
að fá jörð keypta af sveitarfélaginu
án augiýsingar.
Sigurður ræddi málið í grein sem
birtist í blaðinu Feyki á miðvikudag-
inn. Ársæll segir hið rétta í málinu
vera að hann hafi lagt inn ósk um að
fá keypta jörðina Hraun í Unadal.
Það hafi hann gert eins og hver ann-
ar íbúi sveitarfélags gæti gert.
„Hvorki nú né áður hefur sveitar-
stjóri farið fram á sérafgreiðslu mála
sér til framdráttar. Hvergi er hér far-
ið með pukur eða yfirvarp. Ætlast ég
til að viðkomandi nefndir sveitarfé-
lagsins fjalli um erindið eins og
hvert annað innsent erindi og hvergi
er farið fram á annað en að af-
greiðslan verði á jafnræðisgrunni,
fyrir opnum tjöldum og rökstudd.
Ómálefnalegri umfjöllun og að-
dróttunum vísa ég til föðurhúsanna
og bið fulltrúa Framsóknarflokksins
í sveitarstjórn að ræða erindi og af-
greiðslur á málefnalegan hátt en
ekki með persónulegum ávirðing-
um,“ sagði í harðorðri bókun sem
Ársæll lagði fram á fundi sveitar-
stjórnar á fimmtudag.
Sigurður Árnason sat ekki sveit-
arstjórnarfundinn á fimmtudag en
bæjarfulltrúinn Gunnar Bragi
Sveinsson tók upp hanskann fyrir
Sigurð og lagði fram bókun:
„Undirrituð viljum leggja áherslu
á að ef selja á landareignir eða aðrar
eignir sveitarfélagsins verði þær
auglýstar til sölu á almennum mark-
aði eftir að búið er að fara ítarlega
yfir livað eigi að selja og hvað ekki.
Jafnframt hörmum við að sveitar-
stjóri skuli ráðast á Sigurð Árnason
vara sveitarstjórnarfulltrúa þar sem
hann er ekki á staðnum til að svara
fýrir sig."
Jörðin Hraun var fýrir samein-
ingu sveitarfélaga í Skagafirði í Hofs-
hreppi. Unadalsá rennur um land
Hrauns. Þar er silungsveiði.