Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Blaðsíða 44
44 LAUGARDACUR 28. JANÚAR 2006
Helgarblað DV
.'1 ■
„Ég var alveg ákveðin og
þess vegna þótti vinkon-
um mínum alveg ótrúlega
fyndið þegar ég sagði
þeim frá því hvaða mann
ég væri að hitta."
Tónlistarmaöurinn Davíð Smári Harðarson og útvarpskonan
María Sveinsdóttir hafa komið sér vel fyrir í lífinu. Þau hafa
mikið að gera hvort sem það er í vinnu eða einkalífi en reyna
ávallt að styðja við bakið á hvort öðru. Fyrst eftir að þau
kynntust fóru þau leynt með samband sitt enda virtust æði
margir hafa skoðun á því að hún er áratug eldri en hann. Sá
tími er liðinn enda hefur Davíð sannað sig í foðurhlutverkinu.
Ástin leynir sér ekki
þau eru hamingjusöm
saman og standa þétt
við bakið á hvert öðru.
Jftítw a/cluf*&fniiiu/ut
að er notaleg stemning
heima hjá þeim Maríu og
Davíð. Heimilið er fallegt
og kveikt hefur verið á
kertum. María býður kaffi
og ég sest niður með þeim í sófann.
Davíð er þó fljótlega kominn með
gítar í hönd slær á létta strengi í bók-
staflegri merkingu. Þau eru afslöpp-
uð enda vön því að vera í sviðsljós-
inu þó hingað til hafi þau ekki verið
hrifin af því að fá fjölmiðlafólk inn á
heimili sitt. Það er ef til vill ekki að
undra ef litið er til þess hve sam-
band þeirra hefur verið mikið milli
tannanna á fólki. Ekki aðeins fyrir
þær sakir að hún er þekkt útvarps-
kona og hann umtalaður eftir
frækna frammistöðu í Idolkeppn-
inni heldur vegna þess að hún er
Æ, heilum áratug eldri en hann.
„Þetta gerðist um leið
og ég sá hárið á
henni. Ég varð bara
að koma viðþað."
Óþekktur og í eldri kantinum
María á tvær dætur úr fyrra sam-
bandi sínu við Snorra Sturluson fjöl-
miðlamann og segir hún skilnað
sinn við hann hafa orðið til þess að
hún ákvað að næsti maður í lífi
hennar þyrfti að uppfylla tvö skil-
yrði. Hann mátti ekki vera þekktur
og átti að vera í eldri kanúnum. „Ég
var alveg ákveðin og þess vegna
þótti vinkonum mínum alveg ótrú-
lega fyndið þegar ég sagði þeim
hvaða mann ég væri að hitta," segir
María og skellir upp úr við minning-
una enda er Davíð Smári talinn einn
eftirtektaverðasú keppandi í sögu
Idolsins en vinsældir þess stóðu
hvað hæst þegar þau voru að sú'ga
sín fyrstu slaef í sambandinu.
Göldrótt og dáleiðandi
Þau hittust fyrst í teiti á vegum
Stöðvar 2 og segist Davíð strax hafa
fallið kylliflatur fyrir Maríu. „Þetta
gerðist um leið og ég sá hárið á
henni. Ég varð bara að koma við
það," segir Davíð dreyminn. María
hlær og útskýrir að hann hafi í raun
gengið að henni tekið spennu sem
hún var með £ hárinu og byrjað að
fikta í því alveg dolfallinn. „Hann
renndi fingrunum í gegnum hárið á
mér og spurði Svavar Örn sem ég
var að tala við hvaða kona þetta
væri og hann kynnti okkur. Ég fór
svo á barinn en var ekki fyrr búin að
Davíð Smári Er þroskaður miðað við aldur.
panta drykkinn fyrr en hann var
búin að borga hann og svo fylgdi
hann mér í raun eftir allt kvöldið."
Þú hefur ekkert verið að passa
þig að vera ekki ofágengur?
„Ekki neitt ég var bara dáleidd-
ur," svarar hann og mig rennur í
grun að hann hafi ekki enn vaknaði
úr leiðslunni. Blaðamaður spyr þar
af leiðandi Maríu varfærnislega
hvort hún sé nokkuð göldrótt og
áður en hún nær að svara, fullyrðir
Davíð að það sé hún tvímælalaust.
Öðrum konum stuggað í
burt
Eins og áður segir fékk Davíð
mikla athygli á þessum tíma og ekki
síst frá hinu kyninu. María minnist
þess að sama kvöld og þau kynntust
hafi nokkrar stúlkur hópast að hon-
um og beðið hann um eiginhandar-
DV-myrtd Hgjjða'