Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2006
Helgarblað DV
Díana
drenllim
Samrýmd
systkini
/
1
Stephanie prinsessa og Albert
fursti af Mónakó skemmtu sér kon-
unglega þegar þau skelltu sér í sirkus á
dögunum.Systkinin létu vel að hvort öðru
og voru mynduð í faðmlögum á meðan þau
horfðu á trúða leika listir sínar. Albert hefur í
nógu að snúast þessa dagana en læturfjölskylduna
ekki sitja á hakanum. Albert tók nýlega við furstadæmi
föður síns en Rainier fursti lést á síðasta ári.
Almenning-
ur velur
veislumat
drottningar
Breskur almenningur verður látinn
velja veislumatinn í tilefni af 80 ára af-
mæli Elísabetar drottningar.BBC sjón-
varpsstöðin mun framleiða þáttarröð
þar sem hin fjögurra rétta máltíð verður
valin en 14 af bestu matreiðslumönnum
landsins munu sjá um eldamennskuna.
Könnun mun svo skera úr um hvaða
réttir verða í veislunni sem haldin verður
drottningunni til heið-
urs.„Maturinn
okkar hefur
lengi verið talinn *v $>
sá versti í heimi en ^
nú munum við held-
ur betur af-
sanna þá
kenningu,"
sagði einn
kokkanna.
Engin partý
prinsessa
Madeleine prinsesessa er komin
með nóg af þvi að vera kölluð
„partýprinsessan". Sænska prinsessan,
sem er 23 ára,segist löngu hætt að
djamma þar sem allur hennar tími fari í
lærdóminn. Madeleine kláraði í vikunni
gráðu í lista- og nútímasögu (háskól-
anum í Stokkhólmi og er nú á leiðinni
til New York þar sem hún verður lær-
lingur hjá Barnadeild Sameinuðuþjóð-
anna.Ef til vill mun prinsessan heim-
sækja börn á stríðshrjáðum svæðum
en það kemur í Ijós síðar.
Jóakim á flakki
Jóakim Danaprins mun halda
til Kambódíu í marsmánuði og
heimsækja munaðarleysingja-
heimili barna með HIV.
Landið hefur eitt hæsta
hlutfall eyðnismitaðra en
3,5% fullorðinna eru
með sjúkdóminn. Jóakim
mun eyða viku í landinu
og mun einnig
heimsækja
j bændur og
, kynna sér land-
’ búnaðarmál.
Prinsinn heldur
síðan til Víetnam
til að fylgjast
með fram-
i förum fá-
I tækra þar-
lenskra
. kvenna sem
l hlotið hafa
, styrk úr
dönskum
s styrktar-
sjóði.
Christian Valdemar Henri John sonur A/lary og Friðriks krónprins Dana var skírð-
ur um síðustu helgi. Litli drengurinn hefur fengið viðurnefnið „Grabby“ þar sem
hann leitaði ítrekað að brjósti móður sinnar á skírnarathöfninni. Fyrri nöfnin
hans tvö eru algeng nöfn á konungum en síðari nöfnin tvö eru í höfuðið á öfum
litla prinsins. Meðlimir flestra konungsfjölskyldnanna mættu i skírnina til að votta
litla verðandi ríkisarfanum virðingu sína.
Prmsmn
svannur
Alltaf jafn vinsæl
Á gestalista í skírnaveislu litla
danska prinsins voru allar evr-
ópsku konungsijölskyldunnar.
Enginn fékk þó eins hlýjar mót-
tökur hjá danska almúganum og
Alexandra prinsessa. Prinsessan
var glæsileg að vanda er hún
heilsaði aðdáendum sínum og
kom sér svo fyrir ásamt Jóakim
fyrrverandi eiginmanni sínum og
sonum þeirra tveimur. Jóaldm
prins er guðfaðir litla prinsins og
sat því hjá Mary og Friðrik í kirkj-
unni með Felix son sinn í fang-
inu.
Sonur Friðriks krónprins og
Mary prinsessu Danmerkur var
skírður um síðustu helgi við fallega
athöfn sem foreldrarnir báðir
táruðust við. Prinsinn hlaut nafnið
Christian Valdemar Henri John sem
þykir sannarlega nafn á konungi.
Mary segir litla drenginn hafa verið
svangan í athöfninn enda sé hann
algjört matargat. „Hann er orðinn
helmingi þyngri en þegar hann
fæddist," sagði Mary en Christian
litli fæddist 15. október. „Hann vildi
fá að drekka í kirkjunni og leitaði af
brjóstinu."
Mary og Friðrik héldu litla 65
manna veisiu í vikunni í tilefni
nafngiftarinnar. Á gestalistanum
var fjölskylda Mary frá Ástralíu
ásamt helstu meðlimum evrópsku
konungsfjölskyldnanna. Veislan er
sú fyrsta sem Mary heldur án hjálp-
ar tengdamóður sinnar, Margrétar
drottningar. Drottningin hafði
nefnilega bæði puttana í giftingar-
og trúlofunarveislu ungu hjónanna
en í þetta skiptið vildi Mary sjá sjálft
um veitingarnar og fékk einkakokk
sinn til starfsins.
Nafnið Christian kom engum á
óvart enda hafa danskir konungar
borið það nafn eða Frederik í ald-
anna rás. Talið er að öll fjögur nöfn
litla prinsins munu nú aukast í vin-
sældum í Danmörku og þá sérstak-
lega nafnið Valdimar sem var al-
gengt konungsnafn á miðöldum.
Bæði John prófessor, faðir
Mary, og Henrik prins faðir
Friðriks eru sagðir himinlif-
andi og stoltir af nýjan nafn-
anum. Prinsinn liefur hins
vegar verið kallaður prins
„Grabby" í góðlátlegu
glensi í fjölmiðlum þar sem
hann reyndi margoft að
grípa í brjóst móður sinnar
í athöfninni. „Við köllum
hann alltaf Lilleman," sagði Mary
prinsessa eftir athöfnina svo greini-
legt er að ungu foreldrarnir verða að
fara að venja sig við nýju nöfnin.
Harry prins mun ljúka herþjálfuninni í apríl.
Harry sendur til íraks
Harry prins gæti verið á leiðinni til
íraks. Harry er að ljúka herþjálfun sinni
í Sandhurstherskólanum. Prinsinn,
sem er 21 árs og sá þriðji í röðinni eftir
bresku krúnunni, hefúr sótt um inn-
göngu í Blues og Royals en deildin mun
væntanlega halda til íraks í nánustu
framtíð. Harry mun ljúka herþjálfun-
inni í apríl. Ef yfírmenn breska hersins
kæra sig um segist Harry vera tilbúinn
að berjast í fremstu víglínu. Hann gæti
Júns vegar einnig fengið það hlutverk
að gæta Elísabetar drottingar ömmu
sinnar.
f sjónvarpsviðtali sem prinsinn veitti
í september í tilefni af 21 árs afmæli
sínu sagðist hann þess fullviss að berj-
ast á fremstu vígstöðvum. „Ég ætla ekki
að þrauka í gegnum þennan erfiða
skóla án þess að nota það sem ég lærði.
Ég ætla ekki að sitja á rassinum á með-
an vinir mínir eru að berjast fyrir land
okkar. Þetta hljómar kannski asnalega
en ég þarf enga sérstaka meðhöndlun."