Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Blaðsíða 16
16 LAUGADAGUR 28. JANÚAR 2006
Sport DV
Omari var
látinn fara
Körfuboltalið
KR heíur sagt
Bandaríkjamanni
sínum Omari
Westley upp störf-
um en hann var
dæmdur í fjögurra
leikja bann í vik-
unni. Á heimasíðu
KR er gerð grein
fyrir ákvörðun körfuknatt-
leiksdeildarinnar. „Þar sem
bannið gildir yfir helming
þeirra leikja sem eftir eru í
deiidarkeppninni, sem er
gríðarlega jöfn og spenn-
andi, var ákveðið að bregð-
ast við með því að skipta
um bandarískan leikmann,"
segir um málið en Omari
skoraði 34 stig í kveðjuleik
sínum (85-75 sigri á Skaila-
grími) og var með 23,1 stig
að meðaltali í átta leikjum
sínum í lceland Express
deildinni.
Bannið hefur
engin áhrif
KR-ingar hafa
ráðið tvo nýja leik-
menn í stað Omari
Westley en það eru
Bandaríkjamaður-
inn Melvin Scott
og Serbinn Ljubo-
drag Bogavac.
Meivin Scott vakti
athygli með
Bumbunni gegn Grindavík í
bikamum á dögunum en
hann er bakvörður fr á
Baltimore og lék með North
Carolina skólanum. Melvin
Scott er löglegur strax á
sunnudaginn gegn Keflavík
og hefur því bann Omari
engin áhrif á lið KR-inga.
Sendu inn
til öryggis
KR-ingar gengu
einnig frá samningi
við serbneska mið-
herjann Ljubodrag Boga
vac. Bogavac var boðinn KR
í desember og á heimasíðu
KR kemur fram að KR-ingar
lögðu inn félagaskipta-
beiðni fyrir hann áður en
félagaskiptaglugginn lokað-
ist 5. janúar. Bogavac verð-
ur löglegur 5. febrúar.
Hann er 29 ára gamall
Serbi. Hann er 204 cm á
hæð og 104 kg, hefur leikið
í Júgóslavíu, Serbíu, Rúm-
eníu, Lúxemborg og þýsku
2. deildinni.
Owen hefur
áhyggjur
Michael Owen, ein
helsta stjarna enska
landsliðsins og
framherji hjá
Newcastle, hefur
áhyggjuraf máli Svei
Göran Eriksson og segir að sá fjöl-
miðlasirkus sem hefur fylgt því gæti
haft áhrif á gengi liðsins á HM í sumar.
„Ef blöðin skrifa um þetta mál á hverj-
um degi og ræða fram og til baka um
hugsanlegan eftirmann hans gæti
það farið í taugarnar á nokkrum leik-
mönnum. Við viljum einbeita okkur að
keppninni," sagði Owen.
lillL ÞBÍÍÍ
tifi rI7i xqfjf) Í£JÍy_n£;j£o \',\fifl:;ÍU)
miL eii ftpkll iiimá írú
ÍLQUHi BI'IÍ ikflíi íiÚ
Uf-frf níl
cim k I f'f-n irri i riLTi rin.
r) r1 \ / r) r4-
i ují xíjíá)
lUUjílÖiíJÍÉk
1. Ólafur Stefánsson
2. Patrekur Jóhannesson
3. Valdimar Grímsson
4. Guðjón Valur Sigurðsson
5. Kristján Arason
6. Geir Sveinsson
7. Dagur Sigurðsson
8. Sigfús Sigurðsson
9. Gústaf Bjarnason
10. Sigurður Gunnarsson
170
118
113
88
79
74
71
VAR EKK1
GEGN DÖNUM í GÆR
Ólafur Stefánsson er eini landsliðsmaður íslands í handbolta
sem hefur skorað 200 mörk á stórmótum handboltans og gegn
Serbum á fimmtudaginn varð hann ennfremur fyrstur til þess að
skora 300 mörk á stórmótum. Ólafur hefur nú skorað 303 mörk í
60 landsleikjum sínum á HM, EM og ólympíuleikum. Flest mörk
hefur hann skorað í þeim fímm heimsmeistarakeppnum sem
hann hefur spilað eða alls 152 en Ólafur hefur einnig náð að
skora yfir 100 mörk á fjórum Evrópumeistaramótum sínum.
Evrópukeppnin i Sviss er tímamótamót fyrir Ólaf en þetta er tí-
unda stórmót hans með íslenska landsliðinu.
Það var gaman að sjá til Ólafs Stef-
ánssonar gegn Serbum þar sem hann
var kominn með fimm mörk strax í
fyrri hálfleik og nýtti alls 8 af 9 skotum
sínum utan af veÚi. Það var aðeins eft-
irsjá í þeim tveimur vítaskotum sem
hann misnotaði, skaut fyrst yfir en lét
síðan serbneska markvörðinn verja frá
sér. Ólafi hefur alltaf gengið vel gegn
Júgóslövum á stórmótum en þetta var
fimmti landsleikur hans gegn Serbum
og Svartfellingum sem áður léku und-
ir nafni Júgóslavíu og hefur Ólafur
skorað 36 mörk í þessum fimm leikj-
um eða 7,2 mörk að meðaltali í leik.
Ólafur hefur ekki skorað fleiri mörk
gegn einstakri þjóð en er með 28 mörk
í 5 leikjum gegn Slóvenum og 27 mörk
í 5 leikjum gegn Rússum.
Fyrsta stórmótið á íslandi
Ólafur lék sína fyrstu landsleiki á
stórmóti á HM á íslandi 1995 og fyrsti
leikur hans var í 27-16 sigri á Banda-
ríkjamönnum. Ólafur skoraði síðan
sín fyrstu mörk í næsta leik á eftir sem
var 25-21 sigur á Túnis en Ólafur skor-
aði alls 4 mörk í leiknum. Hann endaði
sem fimmti markahæsti leikmaður ís-
lenska liðsiris ásamt Sigurði Val
Sveinssyni en báðir skoruðu þeir 11
mörk í sjö leikjum íslenska liðsins á
mótinu.
Ólafur var ekki með gegn
Dönnum
Ólafur Stefánsson spilaði ekki með
gegn Danmörku f gær vegna meiðsla
sem hann hlaut í leiknum gegn
Serbíu-Svartfjallalandi. Ólafur fékk
mikið högg á vinstri síðuna frá
Serbum, átti erfitt með andardrátt eft-
ir leikinn en harkaði engu að síður af
sér og kláraði hann með miklum
glæsibrag. Ólafúr var búinn að fara ifla
með serbneslcu vömina hvað eftir
annað og þeir létu hann finna fyrir því
um leið og hann spilaði uppi Einar
Hólmgeirsson í hægra horninu.
Var búinn að spila 60 leiki í röð
Fyrir leikinn gegn Dönum í gær þá
var Ölafur Stefánsson búinn að spila
60 stórmótsleild íslands í röð eða alla
leiki íslands á HM, EM og ólympíu-
leikum síðan á HM í Svíþjóð 1993. Síð-
asti leikur án Ólafs var gegn Tékkum
um 7. sætið á HM í Svíþjóð. Sá leikur
fór fram 19. mars 1993 og tapaðist
með einu marki, 21-22. örvhentu leik-
mennimir Bjarki Sigurðsson (8) og
Sigurður Sveinsson (6) voru marka-
hæstu leikmenn íslands í þessum leik.
Nú er bara að vonast til að Ólafur stígi
upp úr þessum meiðslum og bæti
mun fleiri mörkum við þau 303 sem
hann hefur þegar skorað fyrir íslenska
landsliðið á stórmótum. ooj@dv.is
Guðjón Þórðarson eftirsóttur?
Guðjón orðaður við
stjórastöðu Leicester
Samkvæmt heimildum
fréttastofú BBC í Notting-
ham mun Guðjón Þórðar-
son koma sterklega til
greina sem næsti þjálfari
Leicester City, sem sonur
hans, Jóhannes Karl, leik-
ur einmitt með.
Guðjón mun vera
meðal nafna á stuttum
lista knattspymustjóra
sem forráðamenn Leicester vinna
nú eftir. Hann er sem stendur knatt-
spymustjóri 3. deildarliðsins Notts
County sem em í 10. sæti deildar-
innar en honum hefur tekist að rífa
liðið að stórum hluta úr þeirri lægð
sem það hefur verið í síðustu ár.
Samkvæmt frétt BBC kom Guð-
jón einnig sterklega til greina er Cr-
eig Levein var ráðinn en
hann var rekinn úr starf-
inu á dögunum. Leicester
er sem stendur í 22. sæti 1.
deildarinnar og hefur ekki
unnið leik síðan 26. nóv-
ember síðastliðinn.
Jóhannes Karl er þegar
kominn með samningstil-
boð frá hollenska úrvals-
deildarliðinu AZ Alkmaar
sem harm mun taka nema eitthvað
annað „betra“ bjóðist. En skyldu
þær áætianir breytast ef karl faðir
hans kæmi til félagsins. „Ég býst
ekki við því,“ sagði hann glaðbeitt-
ur í samtali við DV Sport. „Það
þyrfti þó að skoða það eins og allt
annað.
eirikurst@dv.is
Guðjón Þórðarson