Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Side 22
22 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006
Helgarblað DV
Ragnheiður „Mamma var og er algjör
drottning. Faðir minn féll gjörsamiega fyrir
henm. Heppin að það hafi ekki frosið undan
strákum úti
Þá væri ég ekki til!‘
Við erum stödd á kaffihúsinu
Adesso. Þær Sigríður Lund
Hermannsdóttir útvarpskona,
Ragnheiður Guðfinna Guðna-
dóttir sjónvarpskona og Eva Dögg Sigur-
geirsdóttir tískuráðgjafi höfðu komið sér
vel fyrir þegar Ellý Ármanns hitti þær og
spurði spjörunum úr um kynþokka,
íslenska karlmenn, ástina og stefnumóta-
menninguna hér á landi.
■: ' •
" J|
m
....... A
Hvað felst í orðinu
„kynþokki"?
Ragnheiöur: „Hvemig karlmaður ber sig
er það fyrsta sem maður tekur eftir, beinn í
baki sem gott dæmi, göngulag, líkamstján-
ing, talandi og orðaval segir ofboðslega
mikið. Fallegt og stórt bros er sjúklega
sjarmerandi. Sjálfsöryggi í fari karlmanns er
nauðsynlegt, þá er ég ekki að tala um brjál-
að egó, bara að viðkomandi sé mjög með-
vitaður um sjálfan sig og hafi allt á hreinu i
sínu umhverfi, eins g vel valda vini, heil-
brigðan lífsstíl, markmið og stefnu í lífinu.
Þetta allt sést í gegnum augun og þegar
meður les augu sér maður hvernig viðkom-
andi líður og hvort hann er sáttur við sitt
líf, það skiptir rosalega miklu máli að vera
sáttur við líf sitt og það sem maður hefur til
að geta lifað lífinu til fulls,“segir hún bros-
andi og bætir við einlæg: „Pínulítil feimni
er sjarmerandi."
Eva: „Við grínumst oft með það vinkon-
umar að karlmenn „rífi í“. Ætíi það sé ekki
dulmál yfir það að viðkomandi hefur haft
áhrif á mann á einhvern hátt sem ég skil-
greini sem kynþokka," segir hún kát og
heldur áfram:„Kynþokki getur verið hrifrí-
ing eða áhrif sem einstaklingur hefur á
annan einstakling af gagnstæðu kyni - get-
ur verið framkoma, útlit, bros, lykt, hlátur,
húmor, augnaráð, snerting. Það er oft á tíð-
um mikill misskilningur með daður og kyn-
þokka. Ég held að við ættum að taka ítali til
fyrirmyndar og læra að daðra án þess að
það þýði endilega að við ætíum beint upp í
rúm með viðkomandi. Það er hollt fyrir alla
að daðra upp að vissu marki og öllum
finnst gott að fá hrós.“
Sigríður: „Að mínu mati er ekki hægt að
skilgreina kynþokka. Kynþokki er einhvers
konar sjarmi sem birtist í mörgum mynd-
um. Kynþokki getur falist í góðu útíiti,
stæltum líkama eða sjarmerandi persónu-
leika, jafnvel sveittum líkama í ræktinni.
Kynþokki birtist á mörgum sviðum í öllum
regnbogans litum."
„Fráhrindandi
karlmenn?"
Eva: ,,‘Törn off í fari karlmanna er
drukkinn karlmaður sem labbar upp að
manni og getur varla komið orðum að því
sem hann vill segja og jafnvel bara bendir á
mann - nei, takk. Drukkinn karlmaður er
ekki eitthvað sem rffur í. Það er líka alveg
hrikalegt törn-off þegar karlmaður byrjar á
því að ræða um fyrrverandi mislukkuð
sambönd og er fastur í fortíðinni. Ég hef
lent á þannig samræðum sem enduðu
næstum með því að ég sofnaði yfir kaffi-
bollanum og svo benti ég bara viðkomandi
á sálfræðing," segir hún hlæjandi og heldur
áfram: „f dag er vinsælasta pikköpp-aðferð-
in sú að menn senda SMS. Ég veit ekki
hvort ég tala bara fyrir mig en mér finnst
það eins og að vera 14 ára og þora ekki að
segja stakt orð. Mér finnst þessi tækni
MSN, SMS og tölvupóstur vera misnotuð
þegar kemur að því að reyna að kynnast
viðkomandi. Ef karlmaður byrjar á því að
senda manni SMS fara viðvörunarbjöllur í
gang. Auðvitað getur verið gaman að vera í
SMS-daðri en það er bara innantómt hjal
og dægrastytting."
Ragnheiður: „Svo eru þeir sem falla
undir „Límmiði Límmiðason". Það er al-
gjörlega fráhrindandi þegar maður lendir á
uppáþrengjandi mönnum,“segir hún og
stelpurnar skella upp úr. „Dramakóngar
eru ekki málið, sífellt að búa til vandamál
og tuða yfir hlutunum, sífellt kvartandi,"
segir hún kímin á svip en bætir við: „Maður
er betur settur einn en að vera með svo-
leiðis gaur á bakinu. Einnig gaurar sem
segja vinum sínum strax hluti sem eru að
gerast í ástalífinu, þannig að hann geti
sýnst algjör höslari bara fyrir vini sína. Við
stúlkurnar viljum fara hljótt af stað, myndi
ég segja."
Sigríður: „Veikgeðja karlmenn eru frá-
hrindandi fyrir mig," útskýrir hún en bætir
við einlæg: „Það fer rosalega í mig þegar
menn eru hræddir og þora ekki. Eg hrífst af
karlmönnum sem eru ákveðnir og vita
hvað þeir vilja. Dónalegir menn og menn
sem nenna ekki að huga að útíitinu eru
rosalega fráhrindandi."
Eva: „Það verður margt spennandi í
boði í Smáralind á konukvöldinu. Verslanir
hússins ætla að vera með sérþjónustu þetta
kvöld og vera með ýmsar uppákomur og
veitingar auk þess sem ýmis tilboð verða í
gangi á göngugötunni, allt til að dekra við
konur kvöldsins. Margar verslanir ætía að
bjóða uppá ráðgjöf, í fatavali, förðun,
snyrtingu og umhirðu húðar og hárs,
þannig að það ættu allar konur að finna
eitthvað við sitt hæfi á göngugötunni.
Sigríðun „Árlegt Konukvöld Létt 96,7
veður haldið í Smáralindinni miðvikudags-
kvöldið 8. febrúar. Þetta er í fimmta sinn
sem Konukvöldið er haldið og er alveg
óhætt að segja að þetta sé flottasta konu-
kvöldið til þessa. Það ríkir mikil spenna og
eftirvænting hjá okkur sem höfum verið að
undirbúa kvöldið. Við eigum von á lands-
frægum tónlistarmönnum, frábærum
skemmtiatriðum og happadrættið verður á
sínum stað. Vinningarnir hafa aldrei verið
veglegri og svo megum við ekki gleyma að
við ætíum að krýna kynþokkafyllsta karl-
mann íslands á kvöldinu. Það vekur jafnan
gífurlega lukku hjá kvenþjóðinni. Við byrj-
um að gefa miða í byrjun febrúar svo það
er nauðsunlegt að fylgjast vel með á Létt
96,7 til að freista þess að fá sæti í Smára-
lindinni. Þetta verður hreinlega stærsta og
flottasta Konukvöld íslands."
Ragnheiður: „Gaman að segja frá því að
ég verð í Vero Moda á Konukvöldinu. Þar
mun ég aðstoða gesti og gangandi við lita-
val, val á sniðum og samsetningum."
Sönn hamingja?
Eva: „Við verðum að byrja á okkur sjálf-
um og muna, eins og í flugvélunum: „Setjið
grímuna fýrst á ykkur áður en þið aðstoðið
bamið." Vökva sjálfan sig til að geta vökvað
hina. Bömin em auðvitað mikilvægasti
hluturinn í lífinu en ef þú ert sjálf vannærð
og illa haldin þá fá þau ekki það sem þau
þurfa frá þér. Fegurðin kemur að innan og
útgeislun og glaðleg framkoma er það sem
við eigum að rækta. Dýrir hlutir og stein-
steypa er ekki það sem gefur lífinu gildi,"
segir Eva og hugsar sig um: „Maður hefur
bara séð allt of mörg dæmi um það að pen-
ingar gefa manni ekki hamingjuna þó svo
að þeir óneitanlega auðveldi manni lífið."
Ragnheiður: „Okkar vellíðan er númer
eitt tvö og þrjú. Ef okkur líður vel blómstr-
um við og þá tökum við rétt á lífinu og elsk-
um börnin okkar til fulls, veitum þeim frá-
bært uppeldi, eignumst yndislega vini og
tækifærin fljúga upp í fangið á okkur. Ef þér
líður ekki vel ertu ekki að uppskera eins og
þú gætir og það bitnar á börnunum, vinn-
unni, vinum og fjölskyldu. Það er enginn
sem hugsar um þig nema þú sjáff. Það er
enginn sem gerir þig hamingjusama, nema
þú sjálf."
Sigríður: „Við konur þurfum fyrst og
fremst að þekkja okkur sjálfar og vita hvað
við viljum. Við verðum að finna þann stað í
lífinu þar sem við erum sáttar við sjálfar
okkur og okkur líður vel. Allt annað ætti að
koma í framhaldi af því. Það er svo margt
sem gefur lífinu gildi. Ég á svo góða að, er í
frábærri vinnu. Eg á stóra drauma og hef
háleit markmið. En það sem skiptir mig
mestu máli og gefur lífinu mesta gildið er
fjölskylda mín og það að eiga góð samskipti
við hana og að sjálfsögðu er sonur minn
þar fremstur í flokki. Hann er sólargeislinn
minn."
Ást, ást, ást „Þaðer
fulltafsætum
um allt!“