Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Side 34
34 LAUCARDAGUR 28. JANÚAR 2006
Helgarblaö 0V
4-
Shimmer body lotion
„Ég er mikið fyrir glingur
þannig að þetta hentar mér
mjög vel, fékk meira að segja
tvö svona í jólagjöf/' segir
Regína þegar hún
dregur upp krem
frá Body Shop.
I „Maður fær fal-
legan glans af
þessu án þess
að það sé
glimmer í því og
svo er bara svo góð
frískandi lykt
kreminu."
Augnskuggi
frá Mac
„Bestu
augnskuggarnir
koma frá Mac.
Þessi er brúnn
og sanseraður
og á vel við öll
tækifæri."
Kanebo-
púður
„Ég hef not-
að þetta lengi og
líkar ofslega vel.
Þetta er ekki beint púður og ekki
meik en þekur mjög vel."
Varalitur
„Ég er nýbúin að fá mér þenn-
an. Hann kemur frá Gosh og
mér finnst liturinn æð-
islegur enda mjög
hrifin af öllu
brúnu.
Merkið er
líka ódýrt
en gott sem
kemur sér
vel því ég
týni svona
jafnóðum."
Maskari frá Loreal
„Hann er tvöfaldur
og á að gera augn-
hárin voða löng.
Ég nota hann
samt bara
öðrum megin
því mér finnst
hvíti hlutinn
ekkert vera að
virka þótt ég sé
mjög hrifin af
möskurum frá þessu
merki."
„Ég kvarta ekkl yfir aðgerðaleysi. Fjarri því, en ég gleðst sömuleiðis yfir því að
hafa mikið að gera. Það er ekki sjálfsagt heldur er það eitthvað sem maður
þarf að vinna að," sagði söngkonan Regfna Ósk Óskarsdóttir þegar Helgarblað
DV hafði samband við hana. Hún er búin að vera á fullu f öllu því sem viðkem-
ur forkeppni Eurovision-keppninnar, auk þess sem hún er yfirkennari f Söng-
skóla Maríu og Siggu. „Ég hef verið að skipuleggja námskeið þar, svo er sjóið
hjá Björgvini Halldórssynl aftur að fara að byrja á Broadway auk þess sem
maður er alltaf f fjöida annarra verkefna," segir Regfna. Flestir vita að Regfna
hefur þrisvar áður tekið þátt í Eurovision-keppninni þótt hún hafi aldrei verið í
forgrunni. Hún segir þó ýmsa Eurovision-aðdáendur farna að kannast við sig
frá fyrri keppnum. Ef svo færi að hún ynni forkeppnina yrði hún þvi á hálfgerð-
um heimavelli. „Þetta eru skemmtilegustu ferðir sem ég hef farið f. Nú fer
keppnin líka fram í Aþenu f Grikklandi en það finnst mér mjög spennandi."
Athafnakonan
Vala Steinsdóttir er ungur fatahönnuður á
uppleið. Hún er nýflutt til Brighton á Englandi en bjó áður
í London. Vala útskrifaðist með láði með BA-gráðu í vöru-
hönnun og þróun fyrir tískuiðnaðinn frá London College of
Fashion síðasta sumar.
Bepip m 0
é Englandi
Vala Steins er Hafnfirðingur að
upplagi. Hún kláraði fatahönnun í
FB eftir stúdentspróið og hélt að
því loknu af landi brott í frekara
nám. Hún býr nú á Englandi ásamt
unnusta sínum. Þau vinna bæði
hjá fyrirtækinu d3o. „Við höfum
verið búsett í Bretlandi i tæp 5 ár.
Við búum í Brighton. Við erum ný-
flutt hingað frá London þar sem
við höfum verið frá 2001.“
Vala er hönnuður hjá d3o. „Fyr-
irtækið framleiðir efni sem það
fann sjálft upp. Efiúð er högghelt
(impact protection). Það hefur
þann eiginleika að vera mjúkt og
sveigjanlegt, en þegar það fær
högg á sig, læsast sameindimar i
eftiinu saman og draga í sig högg-
ið. Efnið verður svo aftur mjúkt og
virkar eins oft og þú þarft. Það
eyðileggst ekki eftir mikið högg,
eins og til dæmis vamir í hörðum
skeljum gera."
Eini fatahönnuðurinn
Vala er eini fatahönnuðurinn
hjá fyrirtækinu og er því nóg að
gera hjá henni. „Hlutverk mitt hjá
fyrirtækinu hefur verið rannsókn-
arvinna, hönnun og þróunarvinna,
til að finna upp leið til að nota efn-
ið f flíkum, og þessa dagana er ég að
sjá um framleiðslu á flíkum fyrir
þrótmarlið d3o og allt sem því til-
heyrir. En d3o er ekki fatafyrirtæki,
heldur efnaframleiðandi. Þessar
flíkur mínar verða því aðeins not-
aðar sem markaðstól."
Þótt fyrirtækið og töfraefni þess
sé frekar nýtt af nálinni em fjöl-
margir aðilar þegar famir að nöta
efnið í fetnaðinn sinn, fyrirtæki
sem framleiða famað fyrir snjó-
bretta-, skíða- og hjólabrettafólk.
„Bandarísku og kanadísku skíða-
landsliðin em með d3o i fötunum
sínum, og vilja ekki sjá neitt annað
eftir að hafa prófað þetta. Þeir
verða í þessu á vetrarólympíuleik-
unum. Þau verða í göllum frá
Spyder, sem er risastór íþróttafata-
framleiðandi sem notar efrúð okk-
ar.“
Lftiö um frístundir
Auk vinnu sinnar fyrir d3o er
Vala „freelance" fatahönnuður og
hefur nóg að gera í þeim bransan-
um líka. „Ég er til dæmis að vinna
fyrir gamla skólann minn, London
College of Fashion, þar sem ég tek
að mér sérverkefrú. Þar er ég búin
að hanna línu af golffötum fyrir
svona „startup" fyrirtæki, og við
erum að fara í framleiðslu á henni
núna.“
Vala segist hafa mikinn áhuga á
að stofna sitt eigið fyrirtæki. „Ég er
að vinna f einni af mörgum hug-
myndum mínum í þeim fáu frí-
stundum sem ég hef.“
Vala segist ekki vera á leiðinni
heim á næstunni og stefnir frekar á
að stofiia sitt eigið merki í útlönd-
um. „Maöur veit svo sem ekki.
Maður á aldrei að segja aldrei, en
ég reikna með að vera hér allavega
næstu árin."
Fáðu fallegri hendur
Þú getur hugsað vandlega um hendur þínar og neglur
án þess að borga fyrir snyrtinguna. Farðu eftir þessum
ráðum. Þau eru ekki tímafrek og virka róandi á þig.
4. Þurrkaðu hendurnar á
þér vel og vandlega.
Settu góða næringu á
neglurnar og naglalakk-
aðu þig með fallegum lit.
1. Pússaðu neglur þínar með
naglaþjöl. Farðu alltaf í sömu
áttina. Ekki sarga af nöglun-
um.
2. Þvoðu hendurnar á þér og
bleyttu þær svo með heitu
vatni eða það sem er enn
betra, upp úr lífrænt ræktuðu
eplaediki. Sýrurnar í edikinu
eyða dauðum húðflögum.
3. Settu ólífuolíu á nagla-
bönd þín og alveg upp að
hvíta mánanum á nöglun-
um. Ýttu naglaböndunum
varlega aftur með til þess
gerðu verkfæri.
5. Þegar neglurnar
eru orðnar þurrar
skaltu setja á þig
handáburð. Reyndu
að bera handáburð-
inn á þig á hverjum
degi til að viðhalda
mýktinni.
Heimatilbúin
naglasnyrting
Þú sparar pening
og róar taugarn-
arlleiðinni.