Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Page 36
36 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006
Helgarblað DV
Guðbjörg Glóð Logadóttir eigandi Fylgifiska sem er sérverslun
með sjávarfang ræddi hugmyndina að rekstrinum sem hún fram-
kvæmdi eftir að hafa gengið með hana undir belti í tíu ár og síð-
ast en ekki síst áherslur íslendinga í kaupum á fiski í dag.
Uthald og hænlegt
magn aí kæruleysi
„Ég hef um áratugaskeið leitað að
þessari spumingu þegar viðtal er tek-
ið við karlmenn/'svarar Glóð þegar
við spyrjum hana hvernig gengur að
sameina starfið og heimilið og heldur
áfrarn: „Hún kemur sjaldnast. Bjarni
Ármanns á fullt af krökkum, Logi
Bergmann og Sigmundur Emir lfka. í
þjóðfélagi þar sem jafnrétti ríkir inni
á flestum heimiium finnst mér jafh
áhugavert að fá svar við þessari
spumingu hjá körlum og konum. Ég
vil því nota tækifærið og koma þess-
ari skoðun minni á framfæri. En svo
ég svari nú spumingunni þá er ég
ennþá ólofuð og barnlaus svo það
gengur ótrúlega vel að sameina
vinnu og heimili hjá mér."
Rétt fólk fékkst til starfa
„Fylgifiskar vom stofnaðir um
sumarið 2002. Ég hafði borið þessa
hugmynd undir belti í tíu ár og flétt-
að við hana hvert sem ég fór um
heiminn. Þetta ár virtist tíminn rétt-
ur auk þess var ég orðin smeik um
að einhver annar færi að fá sömu
hugmynd," svarar Glóð einlæg, að-
spurð hvar ævintýrið góða hófst.
„Þegar ég sló loksins til má segja að
allt hafi púslast rétt saman. Svona
kosmísk velvild. Þetta var gífurleg
vinna en allt small og þá er fátt
skemmtilegra. Rétta fólkið fékkst til
starfa og framkvæmdin tók ótrúlega
snöggan tíma miðað við umfang."
Fer verslun íslendinga á físki efíir
árstíðum eða jafnvel vikudögum?
„Hún gerir það og er bæði árs-
tíðabundin og vikubundin. Við
emm því með mjög ólíkar áherslur
eftir því hvaða árstíð er og vikudag-
ur. Fyrir helgarnar leggjum við
mesta áherslu á veislumat bæði for-
rétti og aðairétti en emm meira
hversdags hina dagana. Á sumrin
eru allir léttari í innkaupum og grilla
mikið eins og við vitum en yfir
dimmu mánuðina vill fólk heldur
eitthvað í ofninn og það sem minna
þarf að hafa fyrir."
Laxness með í ráðum
„Ég hef alltaf verið hrifin af Hall-
dóri Laxness og þegar það lá á borð-
inu að fiskbúðin yrði loks að vem-
leika þurfti að finna á hana nafn. Við
systurnar sátum í sófanum heima og
vomm að velta ýmsum nöfnum fýrir
okkur. Hún vildi endilega að búðin
héti Laxness. Og ég spyr hana á móti;
hverjir heldurðu að yrðu fylgifiskar
þess? Og - greip þar Fylgifiska á lofti.
Svo það má segja að Nóbelskáldið
hafi verið með í ráðum."
Eigin rekstur, hvað skiptir
máli?
„Aðalatriðið er að gera það sem
maður hefur gaman af. Vinnan er
það mikil og í flestum tilfellum fer
ekki að sjást árangur fyrr en eftir
nokkur ár svo maður verður að vera
tilbúinn að vinna langa daga og
herða „sultarólina" í töluverðan
tíma. Eftir það er þetta sambland af
markmiðasetningu, orðheldni, út-
haldi og hæfilegu magni af kæru-
leysi. Mín trú er á sígandi lukku og
það sem virðist vera of auðvelt til að
vera satt - er það oftast," segir hún
bjartsýn með svo fallegt bros svo að
eftir er tekið.
Markmiðin skýr
„Fylgifiskar stefna fram á veginn
og er markmiðið að dafna vel árið
2006. Við leggjum metnað okkar í að
nota ferskt og gott hráefni, bæði fisk
og krydd. Hádegistilboðin okkar eru
sífellt að verða vinsælli og við vifjum
vanda verk okkar eins og við getum.
Svo er bara að sjá hvert við látum
vindana bera okkur á þessu ári,"
segir hún og svarar aðspurð um
áhugmálin: „Ég er nú eiginlega hálf-
gert ‘nörd’ hef mest gaman að tón-
list, bókmenntum, kvikmyndum,
þjóðfélagsumræðu og grúski. En auk
þess matargerð, ferðalögum og svo á
ég árskort í ræktinni."
elly@dv.is
ÍSpáð í Guðbjörgu Glóð
fædd: 17.janúar 1972 (kl: 14.42) Steingeit (22.des- 19.jan)
Glóð hefur sterka tilfinningu fyrir
markmiðum sínum og leiðum.
Lífslöngun hennar er líka áberandi
sterk. Metnaðargirni Glóðar og
ákveðni er áberandi í stjörnum henn-
ar að sama skapi. Hún kemur sífellt á
óvart, er gífurlega trúföst, með gott
skopskyn og úthald sem sjaldan sést
en kemur sér vel I rekstri. Ábyrgðar-
tilfinning, traust, skipu-
lagshæfni og viljastyrkur
er áberandi i fari Glóðar
sem er næm fyrir þörfum
fólks (á við viðskiptavini og sam-
starfsmenn) og tekur hvers kyns
neyð eða vanda með dugnaði og
skilningi. Hún er hjartagóð og á auð-
velt með að mynda vináttusambönd
og
sýna
þeim
sem hún elsk-
ar hlýju og ást.
Forvitnilegt er að sjá að Glóð kýs
frekar að lesa góða bók við fætur
elskunnar sinnar umfram veraldlegt
amstur eða næturlíf.
Sameinaðar skína stjömur þeirra fyrir atbxn-ði líðandi stundar sem er
góður kostur því þar með flækist hvorki fortíð þeirra né framtíð fyrir
þeim. Sameiginlegur vinahópur ömu og Dags mun stækka með tím-
anum þar sem þessi stjömumerki sanka í sameiningu ómeðvitað að
sér góðu fólki sem líður vel í návist þeirra beggja.
Með forvimum augum og óbilandi vilja til að skara fram úr taka þau
ömgg skref í átt að draumum sínum sem þau geta vissulega látið ræt-
ast með sameiginlegu átaki og samheldni.
flrna Dögg Einarsdóttir 18.04.1975 Hrútur (21.mars - 19.april) Dagur B. Eggertsson 19.06.1972 Tviburi (21 .mai - 21 .júni)
- gæfusöm & óbyrg - örvandi, töfrandi & gefandi
- gott skopskyn - nýtur þess að reyna á hugann
- tápmikil, töfrandi & drífandi - orðheppinn & heillandi
- góður hlustandi - spurull, uppfinningasamur
- nýtur hvers skrefs á leiðinni - glöggskyggn og treystir innsæi sínu
- viðkvæm, ljúf& góð - trygglyndur
- rómantisk, ástúðleg og gefandi
Helqin framundan?
Friðrik Ómar flutti eftirminni-
lega ‘Það sem verður’ eftir Hall-
grím Óskarsson ásamt fríðu föm-
neyti síðastliðinn laugardag. Það
var áberandi að þau höfðu sam-
einuð unnið heimavinnu sína fyrir
flutninginn í söngvakeppni Sjón-
varpsins.
„Þetta var mjög gaman. Við
emm bara með allt í fimmta gír og
ætlum að taka þetta," svarar Frið-
rik Ómar brosandi og það er gam-
an að sjá hvað útgeislun hans er
áberandi falleg og öflug. „Þessa
helgi heíjast sýningar á ný á
Broadway. Ég er í hlutverki Jóns og
Björgvins Halldórssonar á yngri
ámm í sýningunni „Nína og Geiri".
Það er voða gaman og ég hlakka til
að hitta liðið eftir rúmlega mánað-
ar frí," útskýrir Friðrik Ómar að-
spurður um helgina framundan og
hann bætir við glaður í bragði: „Ég
er náttúrulega með hugann við
Eurovision keppnina og mun að
sjálfsögðu fylgjast vel með keppn-
inni á laugardagskvöldið. Ég
reikna fastlega með því að fagn-
aðarfundirnir á Broadway endi í
morgunsárið svo það er ekkert
betra á sunnudaginn en að fara í
bíó með einhverjum vel völdum.
Gott ef ég set ekki í þvottavél," seg-
ir hann og skellihlær. „Ég er hús-
móðirin á mínu heimili enda bý ég
einn. Annars fer mikill tími í æf-
ingar fyrir hin og þessi verkefni á
tónlistarsviðinu en ég er svo lán-
samur að það er nóg að gera hjá
mér á þeim vettvangi," segir hann
einiægur þegar kvatt er.