Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Síða 45
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006 45
Listakokkurinn Davíö Hefur hefur náð völdum íeldhúsinu og er aðalkokkur heimilisins þó fullvíst sé að hann læriýmislegt afMaríu enda
búinn að missa 30 klló frá því að hann kynntist henni.
„Maður er alltafmeð
einhverjar fyrirfram
ákveðnar skoðanir á
því sem maður telur
best fyrir sig. Hann er
ekkert afþví sem ég
ætlaði mér en samt er
hann það."
áritun. Hann hafi veitt þeim hana
en svo hálf stuggað þeim í burtu
með höndinni og orðunum. „Ég er
að tala við þessa konu hérna.“
Ekkert af því sem ég ætlaði
mér
María segist hafa hrifist af því
hvað hann virkaði ákveðinn miðað
við aldur og fundist gaman að þeirri
athygli sem hann sýndi henni.
Henni hafi þó ekki komið til hugar
að þau myndu hittast aftur. „Maður
er alltaf með einhverjar fyrirfram
ákveðnar skoðanir á því sem maður
telur best fyrir sig. Hann er ekkert af
því sem ég ætlaði mér en samt er
hann það. “
„Þekkir þú Davíð Smára?"
í tvo mánuði fóru þau í felur með
samband sitt og hittust aðeins
heima fyrir til að forðast augnaráð
annarra. „Mér fannst þetta alveg
rosalegt fyrst vegna þess hvað
hann var þekktur. Þá var ég ekki
síst að hugsa um stelpurnar mínar.
Þegar við vorum búin að hittast í
nokkrar vikur hringdi hann samt
og ég bað Ingu Rún yngri dóttur
mína að svara. Hún sá nafnið á
símanum og svaraði. Um leið og
hún heyrði röddina leit hún á mig
og spurði ákveðin hvernig ég
þekkti Davíð Smára,“ segir María
og þau skella bæði upp.
Halldór Ásgrímsson er
skemmtilegur
María verið í skömmu hléi frá
heimi fjölmiðlana þó hún hefji aft-
ur störf næsta mánudag. Það er þó
ekki hægt að segja að hún taki því
rólega. Hún hefur hafið nám í förð-
unarfræði en þegar er hún mennt-
aður sjúkraliði. Síðustu vikur hafa
svo mikið farið í að sinna kosninga-
baráttu Björns Inga Hrafnssonar
sem oft er nefndur krónprins
Framsóknarflokksins. Hann hefur
hún þekkt frá því hann var barn en
hún er æskuvinkona Margrétar
Hrafnsdóttur, sem oft hefur verið
nefnd heilsudrottningin vegna
sambands síns við Jón Öttar Ragn-
arsson athafnamann, systur Björns
Inga. „Við vorum þremur árum
eldri en hann. Héldum þar af leið-
andi að við værum miklu eldri en
hann og hikuðum ekki við að hóta
honum ef hann segði frá einhverju
sem við fundum upp á unglingsár-
unum."
Þessar gömlu væringar eru þó
löngu gleymdar og segir María að
henni finnist afar skemmtilegt að
„Það er Herbalife
segirMaría ófeimin.
„Davíð var algerlega
á mótí þessu til að
byrja með. Fannst
þetta bull en þegar
konan hans á vinkonu
eins og Margréti sem
ámanneins ogJón
Óttar sem er doktor í
næringarfræði þýðir
lítið að reyna að rök-
ræða um þessi mál án
þess að þurfa að lúta í
lægrahaldí:"
geta aðstoðað hann í kosning-
arslagnum sem líkur í dag. „Hann
hefur svo margt fram að færa. Er
bará frábær í alla staði og gott að
vinna fyrir hann. Maður kynnist
líka svo mörgu skemmtilegu fólki í
gengum þetta."
Er Halldór Ásgrímsson skemm ti-
legur í návígi?
„Já, mjög. Hann kom mér mjög
á óvart. Reyndar hefði ég aldrei trú-
að því hvað hann er skemmtilegur.
Hann hittir alveg í mark," segir
María sannfærandi um þennan
fremur umdeilda stjórnmálaleið-
toga.
Búinn að missa rúm 30 kíló
Það er ólíkt skemmtilegra að
horfa á Davíð Smára nú heldur en
þegar hann var í Idolkeppninni. Ekki
að hann hafi verið til leiðinda þar en
hann er orðið sannkallað augnayndi
enda búinn að missa rúmlega 30
kíló. Minnug þess hve mikið betur
Björn Ingi Hrafnsson h'tur út en áður
spyr ég Maríu varfæmilega hver
ástæðan sé fyrir því að allir karlmenn
í kringum hana grennast svona mik-
ið. „Það er Herbalife," segir María
ófeimin. „Davíð var cdgerlega á móti
þessu til að byrja með. Fannst þetta
bull en þegar konan hans á vinkonu
eins og Margréti sem á mann eins og
Jón Óttar sem er doktor í næringar-
ffæði þýðir lítið að reyna að rökræða
þessi mál án þess að þurfa að lúta í
lægra haldi."
Þó vinkonurnar María og Mar-
grét séu ákaflega nánar er greinilegt
að þær hafa farið ólíkar leiðir í ástar-
málum sínum. Marfa hefur kosið
yngri mann en Margrét töluvert
eldri. María segir þó að það komi
ekkert að sök þegar þær stöllur hitt-
ast ásamt mönnum sínum. „Það er
alveg ótrúlegt hvað Davíð og Jón
Óttar ná vel saman. Þeir geta talað
alveg út í eitt. Jón hefur nú verið að
vinna að heimildarmynd um Stein
Steinarr og þeir ræða mikið um
hvaða tónlist væri við hæfi í henni.
Það er mjög fi'nt fyrir okkur Möggu."
Karlmenn þurfa ekki að
óttast
Það er samt ekki að sjá að aldurs-
munurinn hái þessu sæta pari nokk-
uð. Þegar eldri dóttir Maríu kemur
inn í stofu til að spyrja um eitthvað
sem hana vaphagar um svarar Dav-
íð Smári henni eins og besti faðir.
María segir hann hafa lagt sig mikið
fram um að reynast þeim vel og
áhugi hans á föðurhlutverkinu leyn-
ir sér ekki þegar hann talar við stúlk-
urnar. „Það er ekki eins og ég sé að
reyna eitt eða neitt heldur hef ég
bara mikinn áhuga á þessu. Ég held
að karlmenn sem kynnast konum* ■*
sem eiga böm af fyrra sambandi séu
oft hræddir við eitthvað sem þeir
þurfa ekkert að óttast. Það er að
minnsta kosti mín reynsla," segir
Davíð ákveðinn.
Eins og skipta úr smábíl yfir á
Benz
Það er augljóst að hann er afar
ástfanginn af Maríu og tilbúinn að
gera flest allt sem hún vill. Hann
segist þó hafa hafa nær öll völd inn-
an eldhússins. „Maríu finnst leiðin-
legt að elda en mér gaman þannig
að það em sanngjörn skipti," segir
hann og María hlær dátt en tekur
ffam að hún hafi eldað indverskan
rétt fyrir tveimur vikum. Hún taki^-
því smá þátt í eldhúsverkunum.
Var ekkert undarlegt að stíga út
úr hálfgerðum unglingaheimi inn í
heim þeirra fullorðnu?
„Nei, alls ekki. María er bara svo
yndisleg. Án þess að ég vilji á
nokkurn hátt gera lítið úr þeim
stelpum sem ég hef áður verið með
þá má eiginlega líkja samböndum
mínum við að keyra smábfl en
skipta svo yfir á góðan Benz," segir
Davíð hreinskilnislega.
Hann segir allan sinn þankagang
hafa breyst eftir kynni sín við hana.
María segir góðan vin sinn eitt sinn >
hafa sagt við sig að þeir sem eldri
væm ættu að leiða sambandið og
það er greinilegt að María hefur leitt
þau í rétta átt. Þeim er einfaldlega
ætlað að vera saman hvað sem
kreddur samfélagsins segja um ald-
ursmun.
karen@dv.is
Davíð og María Njóta þess að vera I faðmi fjölskyldunnar.