Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUfí 15. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Vilja klifra í
tönkum
Björgunarsveitin Mann-
björg vlll fá leyfi skipulags-
og byggingarnefndar ölfuss
til að breyta stóru hráefn-
istönkunum að Hafnar-
skeiði í Þorlákshöfn í klifur-
og sigæfingaraðstöðu.
Nefndin bendir hins vegar
á að ekkert liggi fyrir um
vilja eigenda tankanna um
að breyta notkun þeirra. Þá
vanti að útlista hvernig eigi
að breyta tönkunum að
utan sem innan. Engu að
síður mælti nefndin með
því að heimila breytta
notkun á tönkunum að
uppfylltum venjulegum
sícilyrðum og því að erindið
komi frá eiganda tankanna.
Hættið að
vera hrædd
Vörður Leví Traustason. forstoðumaöur Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík, lenti i
hremmingum þegar hann ætlaði að taka mótorhjól frá Bandarikjunum úr gámi á
dögunum. Hann missti hjólið ofan á sig með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði.
Það verður þvi einhver bið á því að hann prófi hjólið.
Vörður Levi
Traustason
Forstöðumaður
Flladelfíusafn-
aðarins fót-
brotnaði þegar
hanntókámóti
draumahiólinu.
Samstarfsnefnd um lög-
gæslumálefni vill fá skýring-
ar á því hvers vegna íbúar
Reykjavíkur eru óöruggir í
miðborginni. Á fundi nefnd-
arinnar í fyrradag var sam-
þykkt að beina því til borg-
arráðs að stofna sérstakan
starfshóp sem ætlað
sé að finna skýring-
ar þessum
ótta sem sé í
fólki þrátt
fyrir að tölur
sýni að af-
brotum hafi fækkað í mið-
bænum. Starfshópurinn á
að vinna með samstarfs-
nefndinni og skila tillögum
til úebóta. í samstarfsnefnd-
inni sitja fulltrúar borgar-
innar annars vegar og lög-
reglunnar hins vegar.
Strætó til
í að flytja
Stjórn Strætós hefur lýst
sig jákvæða fyrir því að
flytja þá starfsemi fyrirtæk-
isins sem nú er á Kirkju-
sandi upp á Breiðhöfða.
Núverandi athafnasvæði er
eftirsótt undir nýbyggingar.
Sagðist stjórn Strætós þó
óska frekari upplýsinga um
kostnað vegna flutning-
anna og um leigukjör. Á
síðasta fundi stjórnarinnar
var einnig farið yfir fyrir-
hugaðar leiðabreytingar á
strætisvagnakerfinu sem
áformaðar eru 5. mars.
Meðal annars á að gera
breytingar á leiðum 23, 24
og 28.
„Þetta var nú fyrst og fremst klaufaskapur," sagði Vörður Leví
Traustason, forstöðumaður Fíladelfíusafrtaðarins í Reykjavík,
þegar hann var spurður hvernig horium tókst að fótbrötna við að
koma Harley Davidson-mótorhjóh sínu úr gámi fyrir tveimur
vikum. Síðan þá hefur hjólið staðið í gámnum og Vörður Leví
haltrar um bæinn með annan fótinn í gifsi.
„Það má eiginlega segja að ég sé hjólin," sagði Vörður Leví og hló
að láta gamlan draum rætast,"
sagði Vörður Leví um kaup sín á
glæsilegu Harley Davidson-mótor-
hjóli frá Bandaríkjunum á dögun-
um. „Ég var í löggunni í gamla dága
og kynntist þessum hjólum þar en
það er ekki nokkur spurning að nýja
hjólið mitt er miklu betra en löggu-
dátt. Nýja hjólið er 100 ára afmælis-
útgáfa Harley Davidson og sagði
Vörður Leví að það hefði ekki verið
dýrt miðað við önnur hjýl af sömu
tegund.
Þarf að bíða í mánuð
Eins og áður sagði missti Vörður
„Það er spurning
hvort ég stofni ekki
mótorhjólasamtökin
Holy Riders hérna í
kirkjunni."
Leví hjólið yfir sig þegar hann var
að taka það út úr gámnum. „Hjólið
stendur enn í gámnum enda er ég
ekki í miklu standi til að keyra mót-
orhjól þessa dagana. Ég þarf að
bíða í mánuð í viðbót en það verður
bara enn skemmtilegra fyrir vikið,"
sagði hann og bætti þvf við að hann
vonaðist til að komast í göngugifs í
dag. „Það verður allt annað líf,“
sagði Vörður sem hefur verið frá
vinnu síðan slysið átti sér stað.
Stofnar Holy Riders
Vörður Leví var spurður hvort
hann sé meðlimur í Harley David-
son-samtökunum á íslandi og
sagði hann svo ekki vera. „Ég
hafði nú ekki hugsað mér að
ganga í samtökin en það er spurn-
ing hvort ég stofni ekki mótor-
hjólasamtökin Holy Riders hérna í
kirkjunni," sagði hann að lokum
hlæjandi.
Hannes fái Góðmennskuverðlaun Fréttablaðsins
, ■
Stundum finnst Svarthöfða sem
blaðamenn DV hugsi ekki heila
hugsun þegar þeir eru að slá fram á
forsíðuna hinu og þessu. Á mánu-
daginn var sett fram sú spurning
hvort Hannes Smárason flugkóngur
væri fatlaður? Bara af því að hann
lagði í stæði fyrir fatlaða. Hvurs
konar er þetta? í það minnsta gaf
markaðurinn hinum siðprúðy DV-
mönnum langt nef. SamfTdág
hækkuðu bréfin í FL Group um
fimm prósent. Og aftur í gær.
Hvernig halda blaðamenn DV að
það hafi verið fyrir flugfreyjurnar og
flugþjónana að dreifa þessu til-
tekna blaði í flugvélum Icelandair?
Svarthöfði
Svarthöfði hefur fyrir því heimildir
að það hafi verið mjög óþægilegt.
Stundum fep Svarthöfði með
Svarthöfðu að versla. Ekki oft. En
það kemur fyrir. Og honum blöskr-
ar alltaf jafn mikið þegar þann kem-
ur í Kringluna og víðár. Þar troðast
menn hver um annan þveran,
hvergi stæði, nema jú: Þessi bláu.
Fötluðu stæðin. Á besta stað og
alltaf tóm. Mörg. Þarna fara Svart-
höfða og Svarthöfði hring eftir
hring á sínum fjplskyldubíl og bíða
Hvernig hefur þú það?
,Ég hefþað bara fínt,"segir Addi FanndiyfcMjómsveitinniSkítamóral.„Vi&0tlúm að spila
I febrúar og mars og slðan taka fríyfir sumartimann. Erum búnir að vera aö spila I eigin-
lega þrjú ár I röð og ætlum þess vegna að prófa gott frí núna. Næst erum við á NASA 25.
febrúar en við vorum ISjallanum á Akureyrislðustu helgi ogþað var mikið fjör."
eftir stæði. Og sjá þessi bláu stæði
sem beinlínis glotta framan í lög-
hlýðnu Svarthöfðahjónin.
Þetta er ekki jákvæð mismunun.
Þetta er neikvæð mismunun. Því
hvað er jákvætt við það að vera í
vondu skapi af því að maður fær
ekki stæði? Svo bitnar þetta á af-
greiðslufólkinu þá loksins maður
nær að troða sínum fjölskyldubíl
einhvers staðar upp á umferðareyju
langt frá búðinni. Samtök verzlun-
armanna ættu að velta þessu fyrir
sér.
Hannes Smárason er hetja að
beijast gegn þessu. Og ætti að fá
Góðmennskuverðlaun Fréttablaðs-
ins. Og menn ættu líka að velta því
fyrir sér hvar þetta var. Við Hótel
Loftleiðir. Nú eru fatlaðir alltaf að
tala um það hversu litlar bætur þeir
fá. Sko, ef þeir eru að lepja dauðann
úr skel hvað ættu þeir þá að vilja á
hótel? Hammm?
Svarthöfði