Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2006, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAFt 2006
Fréttir DV
Fjölgun tjalda
Nýting tjaldsvæðis í
landi Reykjanesbæjar hjá
Alex, ferðaþjónustu við Að-
algötu, jókst um 21% á milli
ára 2004 og 2005. Fjöldi
gistinátta var alls um 4.200
en tjaldsvæðið var
opið frá 1. júnítil
15. september. Að
sögn Guðmundar
Þóris Einarssonar,
rekstrarstjóra Alex,
virðist sem ferða-
menn hafi tekið
þessari nýju staðsetningu
fagnandi. Smáhýsi sem sett
voru upp síðastliðið vor
nýttust jafnframt mjög vel í
sumar og haust. Gestir eru
bæði íslendingar á leið úr
landi og „stop-over“-far-
þegar að því er fram kemur
á vf.is.
Kurr er meðal félagsmanna Sálfræðingafélags íslands vegna fjölda manna sem titla
sig ráðgjafa og veita fólki sálarró með einum eða öðrum hætti. Bæði Landlæknis-
embættið og Sálfræðingafélag íslands segja nauðsynlegt að kanna bakgrunn við-
komandi ráðgjafa, hver svo sem hann sé.
SálMingar áhyggfulullir
vegna ófaglærðra ráðgjafa
Sækja sorp í
Landeyjar
Ábúendum á sveitabæj-
um í Austur-Landeyjum
verður að þeirri ósk sinni að
heimilissorp verði sótt heim
til þeirra. Sveitar-
stjóm Rangár-
þings eystra sam-
þykkti þetta eftir
íbúarnar höfðu
safnað undir-
skriftum á lista og
lagt þá fram fyrir sveitar-
stjórnina sem síðan var
samhljóma í þeirri ákvörð-
un að sorpið yrði sótt heim
á bæina með líkum hætti og
gert er víða annars staðar í
sveitarfélaginu.
Keyrði út af
Ökumaður á jeppa
missti stjórn á honum á
föstudaginn, þar sem hann
kom út á malarveginn rétt
utan Prestbakka í Bæjar-
hreppi. Þar myndaðist
mjög snögglega hálka um
morguninn, þannig að
erfitt var að varast hana, að
því er fram kemur á strand-
ir.is. Skjótt var brugðist við
með söltun á veginn þegar
ljóst var um breytt ástand,
þannig að þegar frá leið
minnkaði hálkan. Það má
teljast nokkuð gott hjá öku-
manninum að halda bfln-
um á hjólunum. Bfllinn
skemmdist nokkuð, en
ökumaðurinn slapp með
skrekkinn. Sveinn Karlsson
tók meðfylgjandi mynd.
„Það er mikið um að vera hér
á Isafirði," segir Kolbrún Elma
Schmidt, blómastúlka I
Blómaturninum á Isafirði.
„Það var haldið sundlaugar-
þorrablót á Suðureyri um síð-
ustu helgi. Þá sitjum við í lítilli
útisundlaug og borðum
Landsíminn
drekk-
um, syngjum og skemmtum
okkur. Við mætum ísundföt-
um en sumar konur mæta í
kjólum og sumir menn með
bindi eða hatta. Þetta er I átt-
unda sinn sem við höldum
svona þorrablót. Svo er allt á
fullu i tónlistarlífínu á Isafírði
ogégvarað koma úr píanó-
tíma úr Listaskóla Rögnvaldar
en þar er mikil gróska í listalíf-
inu."
Kári Eyþórsson
ráðgjafi Káriertið-
ur gestur íspjall-
þættinum Islandi í
bitið þar sem hann
ræðir mannleg efni.
Titillinn ráðgjafí er ekki lögverndað starfsheiti og því ná engin
lög yfir þá sem þannig starfa. Þetta hefur farið fyrir brjóstið á sál-
fræðingum, sem hafa eytt í það minnsta fímm árum ævi sinnar í
að fá starfsréttindi á sviði sálfræðimeðferðar. Ráðgjafar kalla sig
hins vegar ekki sálfræðinga, en margir hafa misskilið það og talið
víst að þeir hafi verið að ganga til sálfræðings.
Meðal þeirra ráðgjafa sem helst
hefur borið á er Kári Eyþórsson. Hann
kallar sig ráðgjafa og hefur þannig
haldið námskeið, komið fram í sjón-
varpi og boðið einstaklingum ráðgjöf.
Hann segist aldrei hafa komið fram
sem sálfræðingur.
Ingi Jón Hauksson Framkvæmdastjóri Sál-
fræðingafélags Islands hvetur fólk tll að kanna
bakgrunn og hæfi viðkomandi ráðgjafa.
Þrátt fýrir það eru mörkin ekki skýr
og fjöldi viðskiptavina ráðgjafa á
þessu sviði hefur sótt tíma hjá þeim í
þeirri trú að um sálfræðing væri að
ræða. Kári segist ekki vita til þess að
skjólstæðingar hans telji hann vera
eitthvað annað en ráðgjafa. Kári á að
baki fjögur vikulöng kvöldnámskeið
þar sem hann lærði meðal annars dá-
leiðslu.
Sálfræðingur eða ráðgjafi?
Samkvæmt laganna bókstaf er
ekkert sem kemur í veg fyrir að hver
sem er kalli sig ráðgjafa. Hann þarf
ekki að hafa neina fagmenntun að
baki og getur boðið þjónustu sína
hveijum sem er. Það er viðskiptavin-
arins að finna út hvort hann sé pen-
inganna og tímans virði. Sálfræðingur
þarf hins vegar að stunda nám í fimm
ár til að geta starfað sem og kallast sál-
fræðingur. Það er lögvemdað starfs-
heiti, en ráðgjafi þarf hins vegar ekk-
ert að hafa á bak við sig í menntun.
Áhyggjur sálfræðinga
Ingi Jón Hauksson, framkvæmda-
stjóri Sálfræðingafélags íslands, segir
að íjöldi sálfræðinga hafi komið að
máli við sig og lýst áhyggjum sínum af
vinnubrögðum ráðgjafa.
„Það er ekkert í lögum sem bannar
mönnum að selja þjónustu sína sem
ráðgjafar," segirlngijón. „Éghefsamt
heyrt margar áhyggjuraddir innan
raða félagsmanna um starfsaðferðir
ráðgjafa eins og Kára. Við hvetjum
fólk eindregið til að vega og meta þá
þjónustu sem það kaupir, að ráðgjaf-
amir kunni til verka."
Sálífæðingar sem DV ræddi við
taka undir það. Einn þeirra tjáði
blaðamanni að einhveijir skjólstæð-
ingar hans hafi „lent í þeim“ eins og
hann orðaði það. Hann segir það
sjálfsagt að ráðgjafar starfi sjálfstætt
og bjóða almenningi upp á þjónustu
sína. Það sé viðskiptavinarins að meta
hvort þeim tíma og pening sem íjár-
fest er, sé vel varið. Ástæða sé til að
vekja athygli á mismuninum á þjón-
ustu sálfræðinga og ráðgjafa.
Landlæknisembættið varar
við
Matthías Halldórsson aðstoð
arlandlæknir hvetur alla til að at-
huga faglegan bakgrunn þeirra
sem gefa sig út fýrir að vera ráðgjafa.
„Þar sem starfsheitið ráðgjafi er
ekki lögvemdað eins og fagheiti inn-
an heilbrigðisgeirans er hverjum sem
er heimilt að gefa sig út fýrir að vera
ráðgjafi," segir Matthías. „Það er því
kaupandans að athuga gaumgæfilega
hver faglegur bakgrunnur viðkom-
andi ráðgjafa sé og hvort hann sé
starfinu vaxinn. Fólk hefúr haft sam-
band við okkur vegna slflcra ráðgjafa
og kvartað yfir þeirra vinnubrögðum.
Þar sem þeir em ekki innan heilbrigð-
isgeirans höfum við ekkert vald yfir
þeim. Því beinum við
fólki frekar á að
fara til Neyt-
endasamtak-
anna eða
jafnvel lög-
reglunnar ef|
fólk telur við- '
komandi vera !
að villa á sér 1
heimildir."
haraldur@dv.is ]
Deilur á milli íbúa og hverfisráðs
Framkvæmdir í Gullengi án leyfis
„Við bíðum enn úrskurðar úr-
skurðarnefndar skipulags- og bygg-
ingamála," segir Guðni Þorvaldsson
jarðræktarfræðingur.
Miklar deilur hafa verið í
Gullengi í Grafarvogi vegna skipu-
lagsmála. Framkvæmdir em hafnar
við Gullengi 2 og 6, þrátt fyrir að
hugsanlega verði ekki af þeim. Deil-
an snýst fyrst og fremst um þrjú hús
sem hugað er að byggja við Gullengi.
fbúar hverfisins em ósáttir við stærð
húsanna og segja þau ekki í sam-
ræmi við húsin í kring.
Guðni segir að þau eigi eftir að
skyggja á útsýni og mikið ónæði
verði af umferð um svæðið. „Það er
óeðlilegt að framkvæmdir skuli vera
hafnar," segir Guðni og telur það
lágmark að beðið verði eftir úrskurði
úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingamála.
„Það er kurteisi að bíða eftir úr-
skurði skipulagsnefndar," segir Stef-
án Jón Hafstein, borgarfulltrúi og
formaður hverfaráðs Grafarvogs og
Kjalarness. Stefán styður nýtt skipu-
lag og segir eðlilegt að reisa meiri
byggð í hverfinu. Hann segist hafa
reynt að koma til móts við óánægða
íbúa hverfisins. Til dæmis með því
að hægja á umferðinni niður í 30
kflómetra hraða.
„Við viljum bara fara eftir sann-
gjörnum leikreglum," segir Stefán
Jón og ítrekar að sér þyki það óeðli-
legt að framkvæmdir séu hafnar.
valur@dv.is
Grafarvogur Miklar óá-
nægjuraddir eru i Gullengi
vegna framkvæmda.
DV-mynd Vilhelm