Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2006, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006
Sport DV
Leikurvið
Spánverja
í haust
Knattspymusamband ís-
lands hefur samið við
Knattspyrnusamband
Spánar um að A-landslið
þjóðanna leiki vináttu-
landsleik á Laugardalsvelli
16. ágúst næstkomandi en
nokkur óvissa var um
þennan landsleik eftir að
þjóðirnar drógust saman í
undankeppni Evrópumóts-
ins í Sviss og Austurríki árið
2008. Island mætir Spán-
verjum í undankeppninni
28. mars og 8. september
2007 og mætast þjóðirnar
því þrisvar sinnum á 13
mánuðum.
Zaragoza í úr-
slit spænska
bikarsins
Real Zaragoza komst í
gær áfram í úrslitaleik
spænsku bikar-
keppninnar þar
sem liðið mætir
annaðhvort
Deportivo eða
Espanyol. Real
Madrid tapaði
fyrrileiknum 6-1
á útivelli og menn
í Madríd voru ekki
bjartsýnir fyrir
leikinn. Real
komst hins vegar í 3-0 eftir
aðeins tíu mfnútna leik og
þurfti þá bara tvö mörk til
viðbótar. Brasilíumennirnir
Cicinho, Robino og Ron-
aldo færðu liðinu von á ný
en þrátt fyrir stórsókn náði
liði ekki að bæta við mörk-
um í fyrri hálfleik. Roberto
Carlos skoraði fjórða mark-
ið á 60. mínútu en það
fimmta leit ekki dagsins ljós
og Zaragoza fór áfram.
Úrslit leikja í gær
ÚRVALSDEILD
ENGLAND
Liverpool-Arsenal 1-0 Luis Garcia (86.) 1-0
Jens Lehmann varði víti frá Steven
jGerrard á 32. mínútu.
1 . D E 1 L D ^ -
ENGLAND z.
Bumley-Wolves 0-1
Crewe-lpswich 1-2
Crystal Palace-QPR 2-1
Leeds-Watford Gylfi Einarsson var á varamannabekk Leeds. 2-1
Leicester-Derby 2-2
Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrj-
unarliði Leicester Luton-Cardiff 3-3
Millwall—Hull 1-1
Norwlch-Brighton 3-0
Sheff. Utd-Reading 1-1
fvar Ingimarsson var í byrjunarliði Reading og lékallan leikinn en Brynj- ar Björn Gunnarsson var ekki með
vegna meiðsla. Stoke-Plymouth 04
Hannes Þ. Sigurðsson kom inn á sem varamaður strax á 18. mínútu leiksins.
3 D E 1 L D EN6LAND -fei
1 Notts County-Wycombe 1-2 I
Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans eru 112. sæti eftir úrslit gærkvöldsins. Brian O'Callaghan, fyrrum leikmaður Keflavíkur, skoraði mark liðsins í gær og jafnaði leikinn.
Sögusagnir eru um að einn af fjórum eftirsóttustu leikmönnum Barcelona, Ronald-
inho, Lionel Messi, Samuel Eto7o og Deco, verði seldur í sumar. Roman Abra-
movich vill kaupa Kamerúnann Eto'o til Chelsea.
tvpjp 3,3 millia
Næsta stjarnan á Brúnni
Samuel Eto'o gæti orðið félagi
Eiðs Smára Guðjohnsen hjá
Chelsea I sumar. DV-mynd:
Nordicphotos/Getty Images
að komast til
Chelsea gætu
laun Samuel Eto’o
hækkað umtalsvert. |
í dag fær hann um
6,6 milljónir á viku á
sama tíma og félagi
hans í framlínu
Barcelona, Ronaldin-
ho, er að fá um 17,4
milljónir í viku ^
hverri eða
meira en tvö-
falt hærri ,,
laun.
ooj@dv.is 4*.
Samuel Eto’o er orðinn efstur á innkaupalista ensku meistaranna í
Chelsea í sumar. Eigandinn Roman Abramovich vill fá eldfljðta
Kamerúnann á Stamford Bridge til þess að auka hraðanní sókn-
arleik Chelsea-liðsins og það er ekki skrítið að rússneski auðjöf-
urinn vilji fá meiri sdknarþunga eftir að hafa horft upp á sína
menn tapa 0-3 fyrir Middlesbrough um síðustu helgi. Enski
meistaratitilinn er kominn langleiðina á Brúna annað árið
í röð og nú eru menn farnir að huga að því að styrkja hið
frábæra lið Chelsea enn fr ekar.
Það er orðrómur í Katalóníu að
einn af fjórum eftirsóttustu leik-
mönnum liðsins, Ronaldinho, Lion-
el Messi, Eto’o og Deco, verði seldur
í sumar og eru það þeir tveir síðast-
nefndu sem þykja líklegastir til þess
að vera falir íýrir góða upphæð því
ólíklegt er að Barcelona vilji missa
undrabörnin sín tvö, Ronaldinho
eða Lionel Messi. Deco er orðinn 29
ára og því ekki eins vænlegur kostur.
Kamerúninn snjalli gæti hins vegar
verið nokkra milljarða virði en talið
er að Chelsea ætli að bjóða í hann
3,3 milljarða íslenskra króna. Eto'o
er sem stendur markahæsti leik-
maður spænsku deildarinnar með
18 mörk í 20 leikjum og varð einnig
markakóngur Afríkukeppninnar á
dögunum eftir að hafa skorað 5
mörk í 4 leikjum. Þessi 24 ára fram-
herji hefur þegar tvisvar sinnum ver-
ið kosinn knattspyrnumaður Afríkp
þrátt fyrir ungan aldur og gæti því
verið framtíðarframherji Chelsea-
liðsins.
Fjármögnun kaupa á Henry
Með því að selja Eto’o gæti
Barcelona-liðið fjármagnað fyrir-
huguð kaup sín á Thierry Henry sem
á enn eftir að skrifa undir súper-
sammngmn sem
Arsenal bauð honum á
dögunum. Með þessu
gætu peningarnir sem
Chelsea notar í kaupin
á Samuel Eto’o fengið
tvöfalt vægi því jafnframt
færu þessir peningar í að taka aðal-
skyttuna úr liði erkifjendanna í
Arsenal sem taka í notkun nýjan og
glæsilegan leikvang á næsta tíma-
bili.
Stutt í leikinn
Það er í enskum æsifréttastfl að
koma með þessar fréttir aðeins viku
áður en Chelsea og Barcelona leika
fyrri leik sinn í 16 liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu en Eto’o var
ekki alltof ánægður með meðferðina
á sér í síðasta leik liðanna þegar
Chelsea sló Barcelona út með 4-2
sigri á heimavelli í síðari leik átta liða
úrslita Meistaradeildarinnar. Eto’o
kvartaði þá undan kynþáttahatri
starfsmanna Stamford Bridge og á
móti var hann sakaður um að
hrækja á starfsmenn Chelsea.
Með helmingi lægri laun
Peningar geta breytt ótrúlegustu
hlutum á stuttum tíma og með því
42 mörk í 57 leikjum
Samuel Eto'o hefur átt tvö
frábær tfmabil með
Barcelona, skoraði 24 mörk
í37 leikjum í fyrra og hefur
gert 18 mörkí 20 leikjum f vetur. i
DV-mynd: Nordicphotos/Getty Images |
Liverpool vann Arsenal 1-0 í ensku úrvalsdeildin í knattspyrnu í gær
Varamaðurinn Luis Garcia tryggði sigurinn
Spánverjinn Luis Garcia skoraði
sigurmark Liverpool gegn Arsenal í
ensku úrvalsdeildinni í gær aðeins
tveimur mínútum eftir að hafa kom-
ið inn á sem varamaður. Luis Garcia
kom inn á sem varamaður á 84. mín-
útu og var réttur maður á réttum
stað eftir að sóknarmönnum liðsins
hafði ffam að því gengið lítið að
finna leiðir framhjá Þjóðverjanum
Jens Lehmann í marki Arsenal. Með
þessum sigri er Liverpool aðeins
þremur stigum á eftir Manchester
United í baráttunni um annað sætið
en Chelsea er eins og flestir vita með
yfirburðaforustu og aðra hendi á
bikamum.
Luis Garcia skoraði markið mikil-
væga þegar hann fylgdi eftir þrumu-
skoti Dietmar Hamann sem hafði
einnig komið inn á sem varamaður.
Jens Lehmann sem átti frábæran
leik í marki Arsenal tókst ekki að
halda boltanum og Spánverjinn var
fyrstur að átta sig.
Robbie Fowler var stórhættuleg-
ur í sókn Liverpool en var óheppinn
bæði í færum sem hann fékk sjálfur
sem og að félagar hans náðu oft ekki
að klára tækfæri sem Fowler skapaði
fyrir þá. Liverpool var mun sterkari
aðilinn en það var eins og Arsenal-
liðið ætlaði að halda einu stigi þar til
kom að sigurmarki Luis Garcia. Jens
Lehmann varði margoft frá
Liverppool-mönnum í leiknum og
þar á meðal vítaspyrnu Steven Gerr-
ard á 32. mínútu leiksins sem Liver-
pool fékk þegar Emmanuel Eboue
hrinti Femando Morientes að mati
dómarans Graham Poll.
Hetja Liverpool I gær
Luis Garcia skoraði sigur-
markið gegn Arsenal.
Viti varið
JensLehmann
sést hér verja
vfti frá Steven
Gerrardá
glæsilegan
háttfgær.