Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2006, Síða 33
Menning DV
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 33
Maríubjallan, leikrit eftir Vassily Sigarev, höfund verksins Svört mjólk, verður
frumsýnt í nýju leikhúsi LA annað kvöld. Álfrún Helga Örnólfsdóttir, einn leik-
ara í sýningunni, segir að verkið láti engan ósnortinn.
Voninni teílt negn
„Maríubjallan er kraftmikið og
magnað nútímaverk," segir í frétta-
tilkynningu frá Leikfélagi Akureyr-
ar um verkið sem sýnt verður í
Rýminu, Hafnarstræti 73. „Á einu
kvöldi fáum við innsýn í líf persón-
anna, kynnumst sorgum þeirra og
þrám. í ömurlegum aðstæðum er
að finna allt litróf mannlegra til-
finninga og hver um sig hefur
fundið sína leið til að lifa af.“
Álfrún Helga örnólfsdóttir er
einn leikaranna í sýningunni og
segir í stuttu spjalli við menningar-
síðu að verkið sé mjög sterkt: „í því
er fjallað um ungt fólk í Rússlandi -
fólk sem liflr við mikla fátækt á jaðri
samfélagsins. Þessa krakka vantar
þann ramma sem okkur þykir sjálf-
sagður hlutur og þau eru t.a.m. ekki
vön því að foreldrar þeirra verndi
þau, eða að þau njóti öryggis innan
veggja heimilisins. Þau hafa flosnað
upp úr skóla en hafa enga vinnu og
ekki við neitt að vera, en allt snýst
um að redda tíkalli fyrir næsta sí-
garettupakka. Júlka, mín persóna,
hefur að vísu annan bakgrunn - þar
sem hún kemur frá menntaheimili
og stundar nám í háskóla. En hún
er forvitin og mjög opin fýrir þeim
áhrifum sem hún verður fyrir þetta
kvöld.“
Álfrún segir að sjálf hafi hún
líka orðið fyrir áhrifum af verkinu,
sem og leikhópurinn allur. „Þetta
hefur verið dýrmæt upplifun og
lærdómsrík. Við höfum stundað
rannsóknarvinnu og kynnt okkur
ástandið eftir fall Sovétríkjanna.
Okkur þótti til dæmis sláandi
Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir Hún leikur eitt aðal-
hlutverkanna ÍMaríubjöll-
unni.sem veitirinnsýn lllf
lágstéttanna i Rússlandi eftir
fall Sovétríkjanna.
tn
hvernig vestrænu áhrifin hafa
flætt þar yfir af krafti og hvað
neyslubrjálæðið er orðið hrika-
legt. Allt snýst um að græða og
geta keypt - og auðvitað getum
við Vesturlandabúar samsamað
okkur því. Maríubjallan á brýnt
erindi við okkur öll, þar sem verk-
ið snýst um vonina, náungakær-
leikann og hið mannlega, sem
teflt er gegn efnishyggjunni. Per-
sónurnar eru fyrst og fremst
mannlegar verur og því rúmast
flestar tilfinningar í samskiptum
þeirra; fyndni, ást, sorg og drama-
tík. Ég leyfi mér að fullyrða að
Maríubjallan lætur engan ósnort-
inn,“ segir Álfrún.
Vassily Sigarev er talinn eitt
fremsta leikskáld nýrrar kynslóðar í
Evrópu og hefur hlotið fjölda verð-
launa á síðastliðnum misserum.
Meðal annarra verka hans eru
Plasticine og Svört mjólk sem bæði
voru frumsýnd í Royal Court-leik-
húsinu í London. Það síðarnefnda
var einnig sýnt í Þjóðleikhúsinu
fyrir skömmu við góðar undirtektir.
Árni Bergmann þýddi verkið úr
Áðeins tvær sýningar eftir af söngfarsanum í Iðnó
Gesturinn Gestur býr sig undir að kveðja
Það fer hver að verða síðastur
til þess að sjá söngfarsann „Gestur
- Síðasta máltíðin" eftir Gaut G.
Gunnlaugsson og Gunnar Krist-
mannsson í leikstjórn Þrastar
Guðbjartssonar. Farsinn er sýndur
í Iðnó og einungis tvær sýningar
eru eftir. Sú fyrri er á sunnudag kl.
20 en sú síðari á miðvikudag eftir
viku, einnig kl. 20.
Gestur er íslensk hinsegin óper-
etta eða leikverk með söngvum.
Verkið fjallar um þá Lauga og Óli-
ver sem eru samkynhneigð „hjón“
í Grafarholtinu og nýja- nágrann-
ann þeirra, atvinnuflugmanninn
og sjarmatröllið Gest, sem leikinn
er af Hrólfi Sæmundssyni. Laugi er
heimavinnandi en Óli vinnur í
banka og þeir una nokkuð glaðir
við sitt þar til gesturinn Gestur set-
ur líf þeirra úr skorðum. Smávægi-
legur misskilningur kallar fram af-
brýði og hefndarhug sem kemur af
stað bráðfyndinni atburðarás með
óvæntum endi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ís-
lenskt verk af þessu tagi er frum-
sýnt hérlendis og því stórme.rkileg-
ur viðburður í íslensku menning-
arlífi," segja aðstandendur sýning-
arinnar og bæta því við að tónlist-
in sé ákaflega vönduð og áheyrileg
og spanni fjölmargar stflgerðir
vestrænnar tónlistar. Eina stund-
ina sé hún létt og fjörug í ætt við
Mozart og hina hádramatísk og
rómantísk. Gautur og Gunnar
sömdu leikritið, tónlistina og text-
ann, auk þess sem þeir fara með
hlutverk í sýningunni. Heyrst hef-
ur að þeir Gautur og Gunnar hafi
nú þegar byrjað að semja annan
söngfarsa.
I Gunnar, Hrólfur og
I Gautur Hinirsamkyn-
I hneigðu una glaðir við
I sitt uns Gestur velgir
| þeim undir uggum.
|o semur enn
Lucas
Lego hefur gert nýjan fimm
ára samning við Lucasfilm sem
tryggir fyrirtækinu áframhaldandi
tekjur af sölu gripa sem tengjast
Star Wars-vörum, greindi Politi-
ken frá í gær. Er vonast til að tap
sem verið hefur á fyrirtækinu að
undanförnu réttist við í framhaldi
af samningnum. Lego hefur rétt
til að selja áfram kubbakassa,
leikföng og leiki, og jafnvel sjón-
varpsþáttaröð undir merki Star
Wars. Lucas er ánægður með
samstarfið við danska fyrirtækið
sem tryggir honum milljarða tekj-
ur. Upprunalegur samningur var
gerður 1999 og hefur fært samn-
ingsaðilum góðan hagnað. Var
helmingur tekna Lego úr þeirri
deild fyrirtækisins. En það dugði
ekki til. Fjárfestingar og minnk-
andi sala í öðrum merkjum Lego
dróst saman. Gríðarlegt tap var á
Lego 2004 - nærri 20 milljarðar.
Samningurinn var kynntur á
leikfangamessu sem nú stendur
yfir í New York. Þar er mál manna
að hin hefðbundnu leikföng séu á
undanhaldi en rafmagnsleikföng
sæki æ meir á og tengist gjarna
heimi kvikmynda og tölvuleikja.
rússnesku en Jón Páll Eyjólfsson er
leikstjóri sýningarinnar. Leikmynd
og búninga hannar Halla Gunnars-
dóttir, lýsing er í höndum Björns
Bergsteins Guðmundssonar og
höfundur tónlistar er Hallur Ing-
ólfsson. Leikarar eru, auk Álfrúnar
Helgu, Esther Talía Casey, Guðjón
Davíð Karlsson, Guðjón Þorsteinn
Pálmarsson, Jóhannes Haukur Jó-
hannesson og Þráinn Karlsson.
Leikhópurinn heldur úti æf-
ingadagbók á netinu. Slóðin er:
www.mariubjallan.blogspot.com.
I Sigurður Gylfi
I Magnússon. Er
j hluti af þverfag-
j legum hópi um
ilistlalmenn-
j ingsrými.
Málþing um list í
almenningsrými
Opinn fundur menningar- og
ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar
verður haldinn í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsi á laug-
ardag kl. 13.30 - 16.30. Þetta er
málþing og umræður um stefiiu-
mótun um list í opinberu rými.
Málþingið hefst með fyrirlestri
Charlotte Cohen um strauma og
stefnur samtímans í list í almenn-
ingsrými. Hún er málefninu mjög
kunn þar sem hún var forstöðu-
maður þeirrar stofnunar sem tek-
ur ákvarðanir um listaverk í opin-
beru rými fyrir New York-borg.
Cohen er fiilltrúi í alrfldsnefnd
sem hefur það lilutverk að taka
ákvarðanir um list á almannafæri
á norðausturströnd Bandaríkj-
anna.
Eftir kaffihlé verða opnar um-
ræður um stefnumótun Reykja-
víkurborgar varðandi list í opin-
beru rými. Umræðurnar hefjast
með innleggi frá þverfaglegum
hóp um list í almenningsrými
sem ætlað er að leggja grunn að
stefnumótun um málefnið. Haf-
þór Yngvason safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur leiðir hópinn
en hann skipa Helga Bragadóttir
skipulagsfulltrúi, Júlíana Gott-
skálksdóttir listsagnfræðingur,
Ólöf Nordal myndlistarmaður,
Pétur H. Ámansson arkitekt og
Dr. Sigurður Gylfi Magnússon
sagnfræðingur.