Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2006, Side 16
J 6 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006
Sport DV
»•......
Eiríkur Stef
Ásgeirsson
skrifar frá
Englandi
Mikill áhugi
enskra
Enskir blaða-
menn sýndu lands-
liðiTrínidadogTó-
bagó mikinn áhuga
á blaðamannafundi
liðsins í Lundúnum
í gær en það er í sama riðli og
England á HM í sumar ásamt
Svíþjóð og Paragvæ. Sýndu
þeir mikinn áhuga á að fá að
vita allt milli himins og jarðar
um liðið en sýndu hins vegar
ieiknum í kvöld nákvæmlega
enga athygli. Umræðan sner-
ist að mestu leyti um skoðanir
Leo Beenhakker á stöðu enska
landsliðsþjálfarans og feril
Dwight Yorke í Ástralíu.
Warnerfór
hamförum
Austin „Jack“ Wamer,
einn varaforseta FIFA og ráð-
gjafi knattspymusambands
Trínidad og Tóbagó, hóf
blaðamannafund landsliðs-
ins í gær með því
að útskýra þriggja
þrepa áætlun
sambandsins fyrir
landsliðið. „Fyrst
var það að komast
áHM.Svoað
dragast í sama
riðil og England. Næst verður
það að vinna England á HM í
sumar." Wamer er afar um-
deildur og stendur í ströngu
vegna hneykslismáls varð-
andi aðgöngumiða á HM í
sumar og gæti farið svo að
hann þyrfti að segja af sér
vegna deilunnar. „Farið og
segið Eriksson þetta," bætti
hann við.
Gottað
hittast
Leo Beenhakker
er þjálfari liðs T&T
en þessi hollenski
þjálfari er marg-
reynduríbransan-
um og gerði til að
mynda Real Madrid
nokkrum sinnum að meist-
urum seint á níunda áratug
síðustu aldar. Hann stýrði
einnig landsliði Hollands á
HM á Ítalíu árið 1990. „Það
er mikilvægt að koma saman
og hittast á ný enda aðstæð-
ur liðsins ótrúlegar. Þetta er í
fyrsta sinn sem við hittumst
síðan við tryggðum farseðil-
inn á HM í haust og verður
mikilvægt að fá þetta tæki-
færi til að spila gegn íslandi.
Það verður þar að auki eini
leikur liðsins áður en form-
legur undirbúningur íyrir
HM hefst í maí."
Árniað
braggast
Ámi Gautur Ara-
son markvörður ís-
lenska landsliðsins
er allur að koma til eftir að
hafa verið frá í nokkra mán-
uði í vetur en hann er aðeins
nýlega orðinn leikfær á ný.
„Ég meiddist undir lok tíma-
bilsins í fyrra en kláraði það
engu að síður. Ég hef síðan
verið að jafna mig á þessu en
ég meiddist á öxl. Ég hef
núna spilað síðustu tvo leiki
Válerenga í Royal League-
keppninni og það hefur
gengið ágætlega," sagði Ámi.
Eyjólfur Sverrisson stýrir í dag sínum fyrsta A-landsleik er
íslenska landsliðið mætir HM-liði Trínidad og Tóbagó.
Eyjólfur sagði í samtali við DV Sport í Lundúnum í gær að
hann yrði ekki hræddur við að prófa nýja hluti í leiknum.
íslenska landsliðið kom saman í Lundúnum á sunnudag
en leikurinn í kvöld verður leikinn á Loftus Road, heima-
velli QPR. Síðasta æfing liðsins var í gær en Eyjólfur sagði
að hann myndi stilla upp liðinu samkvæmt leikkerfinu
4-4-2 með þá Eið Smára Guðjohnsen og Heiðar Helguson
saman í fremstu víglínu.
Eiður Smári og Heiðar hafa
eins og flestir vita leikið vel með
sínum félögum og Heiðar hefur til
að mynda verið iðinn við kolann
fyrir framan mark andstæðings-
ins. Eiður að sama skapi hefur
sýnt það og sannað að fáir em
betri en hann í að skapa færi og
möguleika fyrir félaga sína. Sam-
starf þeirra ætti því að verða at-
hyglisvert í kvöld.
Ætlar að nýta sér styrkleika
Eiðs Smára
Eyjólfur segir það eðlilegt að
byggja upp liðið í kringum leik-
mann eins og Eið Smára. „Eiður
Smári verður annar framherjinn í
liðinu en hann fær það hlutverk
að leita í auða svæðið fyrir framan
vörn andstæðingsins og er það
von okkar að þar getum við nýtt
hans sendingargetu sem er með
eindæmum góð. Hann hefur búið
til mörg tækifæri fyrir félaga sína í
Chelsea og vonandi náum við að
nýta okkur þessa styrkleika hans í
íslenska landsliðinu."
Eiði Smára vantar aðeins eitt
mark upp á að jafna markamet
Ríkharðs Jónssonar og því aldrei
að vita nema leikurinn í kvöld
verði sögulegur í því ljósi. Hann
verður sem fyrr fyrirliði íslenska
landsliðsins.
Liðsheildin mikilvæg
Eyjólfur segir mikilvægt að
nýta sér það að leikmenn íslenska
liðsins koma nú til leiks fullir
sjálfstrausts enda hefur gengið vel
í vetur hjá flestum þeirra. „Við
munu byggja eins mikið og við
getum á þessu sjálfstrausti. Sú
liðsheild sem hefur verið til staðar
í íslenska landsliðinu er einnig
mikilvæg og nauðsynlegt að
skapa góðan anda innan hóps-
ins."
Aðspurður segist Eyjólfur ætla
að reyna að gefa öllum leikmönn-
um liðsins tækifæri á að sýna sitt
og sanna hvað þeir geta. „Við get-
um skipt inn á sex leikmönnum
og ég reikna með að reyna að
koma því við að nota alla vara-
mennina," sagði Eyjólfur og ef
marka má hans orð má jafnvel
búast við því að Daði Lárusson fái
tækifæri á milli stanganna í kvöld.
Aðeins sautján leikmenn eru í
íslenska hópnum þar sem Kári
Árnason meiddist í síðustu viku
og var ekki nýr leikmaður boðað-
ur í hans stað, þar sem fyrirvarinn
var skammur.
Snýst fyrst og fremst um
okkar lið
En Eyjólfur segist nálgast
þennan leik öðruvísi en hann
myndi gera til að mynda í und-
ankeppni EM eða HM. „Þessi
leikur snýst fyrst og fremst um
okkar lið. Ég er ekki að velta því
fyrir mér hvaða veikleika ég eigi
að nýta mér í andstæðingnum
eða hvaða styrkleikum þeir búa
yfir. Ég er með nokkur atriði sem
ég vil reyna í okkar liði, eins og
ákveðnar varnarfærslur sem ég
vil prófa. Við þurfum að finna
ákveðið jafnvægi á milli varnar
og sóknar og finna ákveðinn flöt
á þeim leik sem við viljum til-
einka okkur."
íslenska landsliðið
Tíu landsleikir við
HM-þjóðir
Islenska landsliöið I knattspyrnu hefurspilaö
10 vináttulandsleiki við þjóðir sem hafa
tryggt sér sæti á HM og eru að undirbúa sig
fyrir úrsiitakeppnina. Leikurinn við Trinldad
og Tóbagó I kvöld verður því 11. leikurinn. Is-
land hefur aðeins unnið einn afþessum leikj-
um gegn Bandarikjunum fyrirtæpum 16
árum.
Leikir við verðandi HM-þjóðir:
lifflnÍM
Kúvæt (úti) 0-0 jafiitefli
- Kúvæt endaði í 21. sæti á HM 1982
ö. Hprii lö3ö
Bandarfldn (úti) 1-4 tap
- Bandaríkin enduðu í 23. sæti á
HM 1990
K0» ftprí! IÍIM
Sádí-Arabía (Frakklandi) 0-2 tap
- Sádí-Arabía endaði í 12. sæti á HM
1994
M, qprð Ui»4
Bandarfldn (úti) 2-1 sigur
- Bandaríkin enduðu í 14. sæti á
HM 1994
4* mití 1994
Brasilía (úti) 0-3 tap
- Brasilía varð heimsmeistari 1994
7. tlrtieinljnei' íði?
Sádí-Arabía (úti) 0-0 jafntefli
m tm( mm
Sádí-Arabía (Frakldandi) 1-1 jafntefli
- Sádí-Arabía endaði í 28. sæti á HM
1998
«. |itm iðáil
Suður-Afilka (Þýskalandi) 1-1 jafntefli
- Suður-Afrfka endaði í 24. sæti á
HM 1998
lO.JanÉffiN8
Sádí-Arabía (úti) 0-1 tap
- Sádí-Arabía endaði í 32. sæti á HM
2002
I), niAlfi IMI
Brasilía (úti) 1-6 tap
- Brasilía varð heimsmeistari 2002
Samantekt:
10 leikir
1 sigur
4 jafntefli
5 töp
6 mörk skoruð
19mörkfenginásig
5 leikir viö Asluþjóðir
4 leikir við Amerikuþjóðir
1 leikur viö Afrikuþjóðir
Mætt verðandi heimsmeisturum Islenska
landsliðið spilaði bæði við Heimsmeistaralið
Brasiliu árið 1994 sem og árið 2002.
Dwight Yorke, fyrirliði Trínidad og Tóbagó, fyrir leikinn gegn íslandi í kvöld
ísland gefur góða mynd af mótherjum okkar á HM
Dwight Yorke er án efa lang-
þekktasti leikmaður landsliðs Trín-
idad og Tóbagó sem mætir íslend-
ingum á Loftus Road í Lundúnum í
kvöld. Hann sagði á blaðamanna-
fundi í gær að hans menn hlökkuðu
til að sýna hvað í þeim býr gegn fs-
lendingum í kvöld og að það væri
mikilvægt að hefja undirbúninginn
fyrir úrslitakeppni HM í sumar með
sigri.
„Þetta er í fyrsta sinn sem lands-
liðið hittist frá því það tryggði sér
farseðilinn á HM í sumar gegn Bar-
ein í haust og leikurinn gegn íslandi
er mikilvægur af því tilefni. Núna
hefst vinnan fyrir alvöru og við erum
mjög spenntir fyrir þeim undirbún-
ingi sem er framundan og hefst á
leiknum á morgun."
Yorke sagði aðspurður að knatt-
spyrnuforysta síns lands hefði valið
að mæta íslandi á þessu stigi máls-
ins af ákveðinni ástæðu. „Islenska
liðið mun gefa góða mynd af and-
stæðingum okkar á HM í sumar,"
sagði Yorke en liðið er í riðli með
Englandi, Svlþjóð og Paragvæ á HM
í Þýskalandi í sumar.
„Við vitum ekki mikið um ís-
lenska liðið," sagði Yorke. „Eiður
Guðjohnsen er auðvitað frábær leik-
maður og við vitum að aðrir leik-
menn eru góðir. Þetta verður ekki
auðvelt heldur búumst við þvert á
móti við fótbolta í háum gæðaflokki
á morgun."
Leo Beenhakker þjálfari liðsins
sagði að hann væri að mestu leyti
með sitt sterkasta lið í Lundúnum í
dag. Það hefur þó verið áberandi að
margir leikmenn sem eiga ættir að
rekja tii Trínidad og Tóbagó hafa
sett sig í samband við Beenhakker til
að gefa kost á sér í
landsliðið. Því
hafa nokkrir af
landsliðs-
gömlu
mönnunum verið
settir út í
kuldann.
■
Stoltur Trínidadi Dwight
Yorke er fyrirliði Trínidad og
Tóbagó sem mætir íslenska
landsliðinu íkvöld. DV-mynd
Nordic Photos/Getty